Herinn mun bólusetja spænsku landsliðsmennina fyrir EM Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 10. júní 2021 11:31 David De Gea og félagar í spænska landsliðinu hafa ekki getað æft saman í síðustu vikunni fyrir EM. EPA-EFE/Pablo Garcia Leikmenn spænska knattspyrnulandsliðsins munu allir fá bólusetningu fyrir Evrópumótið en tveir leikmenn hafa þegar fengið kórónuveiruna á síðustu dögum. Fyrirliðinn Sergio Busquets var sá fyrsti til að smitast og svo bættist varnarmaðurinn Diego Llorente í hópinn. Spænska liðið hefur verið í sóttkví síðan. Spænska ríkissjónvarpið, RTVE, fékk það staðfest að leikmennirnir munu fá bólusetningu en smitið innan liðsins hefur sett allan undirbúning spænska liðsins í mikið uppnám. View this post on Instagram A post shared by RTVE Noticias (@rtvenoticias) Heilbrigðisráðuneytið samþykkti það loksins í gær, samkvæmt frétt RTVE, að liðið yrði bólusett en þá voru aðeins fimm dagar í fyrsta leik Spánverja á EM. Það var mikil pressa á þessa niðurstöðu frá bæði spænska knattspyrnusambandinu sem og frá mennta- og íþróttamálaráðuneytinu á Spáni. Margir gagnrýndu það að Ólympíufarar Spánar hefðu fengið bólusetningu en ekki EM-hópurinn. Spænska knattspyrnusambandið hefur verið að reyna að fá bólusetningu í tvo mánuði til að forðast það sem Spánverjar hafa þurft að ganga í gegnum síðustu daga. Landsliðsþjálfarinn Luis Enrique er einnig búinn að setja saman búbblu sem inniheldur sex aukaleikmenn eða þá Kepa Arrizabalaga, Raul Albiol, Rodrigo Moreno, Carlos Soler, Brais Mendez og Pablo Fornals. Enginn þeirra var í 24 manna hópnum en þeir eru til taks ef fleiri smitast í EM-hópnum. UPDATE: Army personnel will vaccinate the Spanish national team players after Diego Llorente and Sergio Busquets tested positive for coronavirus. The Health Ministry has approved the decision ahead of an upcoming Euro 2020 match in Seville https://t.co/nnDCJLmEPl— El País English Edition (@elpaisinenglish) June 9, 2021 Eftir að Diego Llorente smitaðist líka þó voru einnig ellefu leikmenn 21 ára landsliðsins kallaðir inn í þessa búbblu. Spænska A-landsliðið gat ekki spilað síðast æfingaleik sinn fyrir EM vegna smitanna en 21 árs landsliðið spilaði í staðinn og vann Litháen samt 4-0. Fyrsti leikur spænska liðsins er á heimavelli því þeir mæta þá Svíum í Sevilla á mánudaginn kemur en svo bíða leikir á móti Póllandi og Slóvakíu. Það er ekki ljós hvaða bóluefni spænska landsliðið fær, hvort þeir þurfa einn eða tvo skammta eða hvenær þeir verða sprautaðir. Það sem er öruggt samkvæmt frétt ESPN er að það verður spænski herinn sem mun bólusetja spænsku landsliðsmennina. EM 2020 verður sýnt á Stöð 2 Sport EM 2020 sem er hluti af Sportpakkanum, Stóra pakkanum og Risapakkanum. EM 2020 verður einnig hægt að kaupa stakt á kr. 6.990 en fyrir viðskiptavini með aðra áskrift en ofangreindar frá Stöð 2 kostar áskriftin kr. 3.990. EM 2020 í fótbolta Spánn Mest lesið Í beinni: ÍBV - FH | Tekst gestunum að senda ÍBV í sumarfrí? Handbolti Guðni stal senunni í Smáranum: „Sástu forsetann þarna?“ Körfubolti Heillaóskum rigndi yfir fimmtán ára hetju Fram í skólanum Íslenski boltinn „Ansi erfitt fyrir Grindvíkinga að hann hagi sér svona og fái mögulega leikbann“ Körfubolti Fengið nóg af því að vera ruslakista fyrir viðbjóð frá fólki Körfubolti Remy Martin ekki meira með í þessari úrslitakeppni Körfubolti Uppgjörið, viðtöl og myndir: Stjarnan - Keflavík 85-82 | Hvolpasveitin jafnaði einvígið Körfubolti „Vestri hefur verið að taka leikhlé“ Íslenski boltinn Lewandowski gæti verið seldur á brunaútsölu Barcelona Fótbolti Kenndi gráðugum Kim um bæði mörkin gegn Real Madrid Fótbolti Fleiri fréttir Í beinni: Dortmund - PSG | Berjast um sæti í úrslitum Logi kom inn af bekknum og skoraði í stórsigri Mark dæmt af Bjarka og dramatík hjá Alexöndru Sjáðu mörkin úr stórleiknum í München Júlíus og félagar unnu frækinn bikarsigur á Rosenborg Kenndi gráðugum Kim um bæði mörkin gegn Real Madrid Lewandowski gæti verið seldur á brunaútsölu Barcelona Bellingham reyndi að taka Kane á taugum fyrir vítið Heillaóskum rigndi yfir fimmtán ára hetju Fram í skólanum „Vestri hefur verið að taka leikhlé“ Courtois ekki með Belgíu á EM Einvígið galopið eftir jafntefli í Þýskalandi „Þú veist alveg svarið við þessu“ Sextán ára og skoraði hjá Arsenal eins og Rooney forðum Víkingar bjóða Grindvíkingum í Víkina á morgun „Real Madrid lofaði mér að ég yrði arftaki Modric“ Félögin sömdu um að banna Sigurbergi að spila Tuchel fullyrti að Gnabry muni skora á móti Real Madrid í kvöld Þrír Íslendingar í liði umferðarinnar Gáttaðar á því að fyrirliði Víkings var settur á bekkinn Guy Smit sendir frá sér afsökunarbeiðni Keflavík og Aftureldingu spáð sigri í Lengjudeildunum Bara Eiður Smári og Bjargvætturinn höfðu skorað fyrir sextán ára afmælið Sjáðu ungar hetjur bjarga Fram og Stjörnunni Hundfúll og ýtti ungum KR-krökkum frá sér: „Ekki fallegt að sjá“ „Mo Salah sá sem að gekk of langt“ Valur sýndi Berglindi meiri áhuga en Breiðablik Fótboltafortíð fjölskyldunnar í sviðsljósinu í viðtali DR við Andra Lucas Manchester-liðin og Aston Villa á móti því að eyðsluþak verði sett á Lopetegui tekur við AC Milan Sjá meira
Fyrirliðinn Sergio Busquets var sá fyrsti til að smitast og svo bættist varnarmaðurinn Diego Llorente í hópinn. Spænska liðið hefur verið í sóttkví síðan. Spænska ríkissjónvarpið, RTVE, fékk það staðfest að leikmennirnir munu fá bólusetningu en smitið innan liðsins hefur sett allan undirbúning spænska liðsins í mikið uppnám. View this post on Instagram A post shared by RTVE Noticias (@rtvenoticias) Heilbrigðisráðuneytið samþykkti það loksins í gær, samkvæmt frétt RTVE, að liðið yrði bólusett en þá voru aðeins fimm dagar í fyrsta leik Spánverja á EM. Það var mikil pressa á þessa niðurstöðu frá bæði spænska knattspyrnusambandinu sem og frá mennta- og íþróttamálaráðuneytinu á Spáni. Margir gagnrýndu það að Ólympíufarar Spánar hefðu fengið bólusetningu en ekki EM-hópurinn. Spænska knattspyrnusambandið hefur verið að reyna að fá bólusetningu í tvo mánuði til að forðast það sem Spánverjar hafa þurft að ganga í gegnum síðustu daga. Landsliðsþjálfarinn Luis Enrique er einnig búinn að setja saman búbblu sem inniheldur sex aukaleikmenn eða þá Kepa Arrizabalaga, Raul Albiol, Rodrigo Moreno, Carlos Soler, Brais Mendez og Pablo Fornals. Enginn þeirra var í 24 manna hópnum en þeir eru til taks ef fleiri smitast í EM-hópnum. UPDATE: Army personnel will vaccinate the Spanish national team players after Diego Llorente and Sergio Busquets tested positive for coronavirus. The Health Ministry has approved the decision ahead of an upcoming Euro 2020 match in Seville https://t.co/nnDCJLmEPl— El País English Edition (@elpaisinenglish) June 9, 2021 Eftir að Diego Llorente smitaðist líka þó voru einnig ellefu leikmenn 21 ára landsliðsins kallaðir inn í þessa búbblu. Spænska A-landsliðið gat ekki spilað síðast æfingaleik sinn fyrir EM vegna smitanna en 21 árs landsliðið spilaði í staðinn og vann Litháen samt 4-0. Fyrsti leikur spænska liðsins er á heimavelli því þeir mæta þá Svíum í Sevilla á mánudaginn kemur en svo bíða leikir á móti Póllandi og Slóvakíu. Það er ekki ljós hvaða bóluefni spænska landsliðið fær, hvort þeir þurfa einn eða tvo skammta eða hvenær þeir verða sprautaðir. Það sem er öruggt samkvæmt frétt ESPN er að það verður spænski herinn sem mun bólusetja spænsku landsliðsmennina. EM 2020 verður sýnt á Stöð 2 Sport EM 2020 sem er hluti af Sportpakkanum, Stóra pakkanum og Risapakkanum. EM 2020 verður einnig hægt að kaupa stakt á kr. 6.990 en fyrir viðskiptavini með aðra áskrift en ofangreindar frá Stöð 2 kostar áskriftin kr. 3.990.
EM 2020 verður sýnt á Stöð 2 Sport EM 2020 sem er hluti af Sportpakkanum, Stóra pakkanum og Risapakkanum. EM 2020 verður einnig hægt að kaupa stakt á kr. 6.990 en fyrir viðskiptavini með aðra áskrift en ofangreindar frá Stöð 2 kostar áskriftin kr. 3.990.
EM 2020 í fótbolta Spánn Mest lesið Í beinni: ÍBV - FH | Tekst gestunum að senda ÍBV í sumarfrí? Handbolti Guðni stal senunni í Smáranum: „Sástu forsetann þarna?“ Körfubolti Heillaóskum rigndi yfir fimmtán ára hetju Fram í skólanum Íslenski boltinn „Ansi erfitt fyrir Grindvíkinga að hann hagi sér svona og fái mögulega leikbann“ Körfubolti Fengið nóg af því að vera ruslakista fyrir viðbjóð frá fólki Körfubolti Remy Martin ekki meira með í þessari úrslitakeppni Körfubolti Uppgjörið, viðtöl og myndir: Stjarnan - Keflavík 85-82 | Hvolpasveitin jafnaði einvígið Körfubolti „Vestri hefur verið að taka leikhlé“ Íslenski boltinn Lewandowski gæti verið seldur á brunaútsölu Barcelona Fótbolti Kenndi gráðugum Kim um bæði mörkin gegn Real Madrid Fótbolti Fleiri fréttir Í beinni: Dortmund - PSG | Berjast um sæti í úrslitum Logi kom inn af bekknum og skoraði í stórsigri Mark dæmt af Bjarka og dramatík hjá Alexöndru Sjáðu mörkin úr stórleiknum í München Júlíus og félagar unnu frækinn bikarsigur á Rosenborg Kenndi gráðugum Kim um bæði mörkin gegn Real Madrid Lewandowski gæti verið seldur á brunaútsölu Barcelona Bellingham reyndi að taka Kane á taugum fyrir vítið Heillaóskum rigndi yfir fimmtán ára hetju Fram í skólanum „Vestri hefur verið að taka leikhlé“ Courtois ekki með Belgíu á EM Einvígið galopið eftir jafntefli í Þýskalandi „Þú veist alveg svarið við þessu“ Sextán ára og skoraði hjá Arsenal eins og Rooney forðum Víkingar bjóða Grindvíkingum í Víkina á morgun „Real Madrid lofaði mér að ég yrði arftaki Modric“ Félögin sömdu um að banna Sigurbergi að spila Tuchel fullyrti að Gnabry muni skora á móti Real Madrid í kvöld Þrír Íslendingar í liði umferðarinnar Gáttaðar á því að fyrirliði Víkings var settur á bekkinn Guy Smit sendir frá sér afsökunarbeiðni Keflavík og Aftureldingu spáð sigri í Lengjudeildunum Bara Eiður Smári og Bjargvætturinn höfðu skorað fyrir sextán ára afmælið Sjáðu ungar hetjur bjarga Fram og Stjörnunni Hundfúll og ýtti ungum KR-krökkum frá sér: „Ekki fallegt að sjá“ „Mo Salah sá sem að gekk of langt“ Valur sýndi Berglindi meiri áhuga en Breiðablik Fótboltafortíð fjölskyldunnar í sviðsljósinu í viðtali DR við Andra Lucas Manchester-liðin og Aston Villa á móti því að eyðsluþak verði sett á Lopetegui tekur við AC Milan Sjá meira
Uppgjörið, viðtöl og myndir: Stjarnan - Keflavík 85-82 | Hvolpasveitin jafnaði einvígið Körfubolti
Uppgjörið, viðtöl og myndir: Stjarnan - Keflavík 85-82 | Hvolpasveitin jafnaði einvígið Körfubolti