„Ógeðslega gaman að leiða þetta geggjaða lið“ Valur Páll Eiríksson skrifar 25. júlí 2021 15:46 Sævar Atli hefur átt frábært tímabil, líkt og Leiknisliðið. Vísir/Hulda Margrét Sævar Atli Magnússon, fyrirliði Leiknis úr Breiðholti, er óvænt stjarna Pepsi Max-deildar karla í sumar. Sævar hefur nú skorað tíu mörk í 13 leikjum, og segist hafa komið sjálfum sér á óvart. Sævar verður í liði Leiknis sem mætir KA síðar í dag. „
Ef að ég á að vera alveg hreinskilinn þá bjóst ég ekki við því að skora svona mörg mörk,“ sagði Sævar Atli. „Framistaða mín, ef við teljum mörkin ekki með, er búin að vera bara fín, bara ágæt og ég get gert betur. En þegar maður er að skora og að spila frammi þá getur maður ekki verið að kvarta. Ég er mjög ánægður með tímabilið hingað til, en það er nóg eftir og ég ætla bara að halda áfram.“ Nýtur sín í fyrirliðahlutverkinu Sævar Atli er fyrirliði Leiknis þrátt fyrir að vera aðeins 21 árs gamall. Hann segist njóta sín í því hlutverki. „Tímabilið í fyrra var mikil reynsla, að vera fyrirliði, og ég hef alltaf verið fyrirliði í yngri flokkum þannig að þetta hentar mér mjög vel. Ég er ekki mikið að garga og öskra menn áfram heldur reyni ég frekar að leiða með fordæmi á vellinum og drífa liðið áfram þannig fremst á vellinum, ég vil vera að hlaupa mikið og vera með læti. Ég fékk bara einn leik í efstu deild seinast, þannig að þetta er í raun mitt fyrsta tímabil í efstu deild, og þetta er bara ógeðslega gaman að leiða þetta geggjaða lið í efstu deild.“ segir Sævar Atli. Klippa: Sævar Atli Fóru pressulausir inn í mótið Sævar Atli segir það hafa hjálpað Leiknismönnum að vera spáð botnsætinu af mörgum miðlum fyrir mót. Leiknir er með 17 stig, sem eru fleiri stig en liðið hefur nokkurn tíma fengið í efstu deild, í 6. sæti deildarinnar eftir 13 leiki. „Mér fannst við koma nokkuð pressulausir inn í mótið þar sem okkur var spáð 12. sæti nánast alls staðar. Það kom okkur smá á óvart en samt ekki. Við fórum pressulausir inn í þetta og höfum sýnt að við getum haldið boltanum vel og við erum með hörkulið,“ segir Sævar sem segir um markmið liðsins: „Markmiðið fyrir tímabilið var að halda okkur uppi og gera það sem Leikni hefur ekki tekist áður, að spila tvö tímabil í röð í efstu deild,“ Hlakkar til að spila fyrir Blika Sævar hefur samið við Breiðablik um að ganga í raðir félagsins að tímabilinu loknu. Hann hefur verið orðaður við brottför til útlanda. Hann segir ekkert benda til annars en að hann fari í Kópavoginn. „Ég setti mér langtímamarkmið fyrir tveimur árum að vera kominn út í atvinnumennsku árið 2022. Það er markmiðið og eins og er er ég að fara að spila fyrir Breiðablik. Ég er mjög spenntur fyrir því, þetta er frábært lið og ég tel að ég muni bæta mig mikið þar því þeirra leikstíll hentar mér held ég mjög vel,“ Fleira kemur fram í viðtalinu við Sævars Atla sem má sjá í heild sinni að ofan. Leiknir mætir KA klukkan 17:00 í dag og getur jafnað Norðanmenn að stigum í töflunni með sigri. Leikurinn verður sýndur beint á Stöð 2 Sport og hefst beint útsending klukkan 16:50.
Pepsi Max-deild karla Leiknir Reykjavík Mest lesið Sara hrundi niður listann eftir leiðréttingar Sport Davíð Tómasi bárust ljót skilaboð eftir leik: „Fokking mongolitið þitt“ Körfubolti Rashford: Nú er nóg komið Enski boltinn Virk sprengja úr seinni heimsstyrjöldinni undir leikvangi Mainz Fótbolti „Krakkarnir í stúkunni eru byrjaðir að taka upp á þessu líka“ Körfubolti Sjáðu og heyrðu sjónvarpslýsanda sturlast yfir Brynjólfi Fótbolti Littler stríddi stuðningsmönnum Liverpool Sport Leikmaður Newcastle tók meirapróf Enski boltinn Sjáðu ótrúlegan flautuþrist Þorvaldar Orra Körfubolti Leik lokið: Haukar 28-25 Fram | Aftur unnu Haukakonur eftir framlengingu Handbolti Fleiri fréttir Fékk prófessorsnafnið frá Gaupa: „Ég er bölvaður nörd“ Víkingar fengu góða sumargjöf Stórleikur í Garðabænum og Fram mætir þriðju deildarliðinu Berglind Björg komin með félagaskipti í Val Uppgjörið: Keflavík - Breiðablik 2-1| Sami Kamel afgreiddi Blika KR fékk ungan Svía fyrir gluggalok 350 þúsund krónur i sektir og tveir fá þriggja mánaða bann Tíu Grindvíkingar unnu í Eyjum Æfði með FH en fékk ekki samning og skipti síðan í Hauka Bikarmeistararnir bjóða frítt á völlinn „Hún á eftir að fá að skína aðeins meira“ Krakkalæti og langt bann eða gult og málið dautt? Taka gamlar hetjur fram skóna í bikarnum í dag? „Á sama tíma í fyrra held ég að þetta hafi verið gult“ „Skrítið að spila á móti liði sem þú varst í þegar þú varst ungur“ Lærisveinninn laut í lægra haldi Tíu KR-ingar skoruðu níu í gölnum leik Áhugaverður skiptidíll FH og Vals á leikdag Uppgjörið: Valur - FH 3-0 | Nýtt leikskipulag skilaði frábærum árangri Vaktin: Lokadagur félagsskiptagluggans á Íslandi Vestri fær liðsstyrk úr dönsku úrvalsdeildinni Fylkir fær liðsstyrk frá Stjörnunni Óli Kalli í Val og Beitir í HK Danijel Djuric á markið: Annars hefði ég aldrei fagnað svona Fjölnir fyrsta liðið í sextán liða úrslit Ekroth og þrír aðrir í banni í næstu umferð Bestu deildarinnar Glugginn að lokast – Íslandsmeistari í KFA og Málfríður heim Gary Martin til Ólafsvíkur Ótrúlegur lækningamáttur í dalnum vekur furðu „Mér fannst ódýrt af Arnari að bera þetta saman“ Sjá meira