11 með Delta en 10 Ómíkron

Starfsmenn Landspítalans.
Starfsmenn Landspítalans. Ljósmynd/Landspítali/Þorkell

Ellefu af þeim 37 sem liggja inni á Landspítalanum með- eða vegna Covid-19 smituðust af Delta-afbrigðinu og eru níu þeirra óbólusettir.

Tíu af þessum 37 smituðust af Ómíkron-afbrigðinu. Tveir þeirra eru óbólusettir og tveir fullbólusettir.

Raðgreining veiruafbrigðis er í vinnslu í átta tilfellum.

Þetta kemur fram í yfirliti sem Landspítalinn hefur gefið út í fyrsta sinn yfir þá sem liggja inni með- eða vegna Covid-19. Þeir eru flokkaðir eftir veiruafbrigði og bólusetningarstöðu, auk þess sem greint er nánar frá ástæðu innlagnar.

Tafla með þessum upplýsingum verður uppfærð á fimmtudögum, að því er kemur fram í tilkynningu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert