Albert lék í tapi Genoa Smári Jökull Jónsson skrifar 5. febrúar 2023 17:15 Albert Guðmundsson. Vísir/Getty Albert Guðmundsson var í byrjunarliði Genoa sem tapaði 2-0 á útivelli gegn Parma í Serie B deildinni á Ítalíu í dag. Genoa er í harðri baráttu um að tryggja sér sæti í efstu deild.
Albert kom inn í byrjunarlið Genoa í dag eftir að hafa byrjað leikinn gegn Pisa í síðustu umferð á varamannabekknum. Fyrir leikinn var Genoa í öðru sæti deildarinnar, ellefu stigum á eftir Frosinone sem situr nokkuð öruggt í efsta sæti. Parma var hins vegar um miðja deild. Parma var sterkari aðilinn í leiknum í dag þó Genoa hafi verið meira með boltann. Á 32.mínútu kom Adrian Benedyczak Parma yfir þegar hann skoraði eftir sendingu frá Franco Vazquez. Í upphafi síðari hálfleiks fengu heimamenn síðan dæmda vítaspyrnu sem áðurnefndur Vazquez skoraði úr. Staðan orðin 2-0 heimamönnum í vil. Genoa náði aðeins einu skoti á rammann í leiknum og sköpuðu sér lítið af færum. Lokatölur 2-0 en Albert Guðmundsson var tekinn af velli á 78.mínútu. Genoa er enn í öðru sæti Serie B en tvö efstu lið deildarinnar fara beint upp í efstu deild. Reggina og Sudtirol koma í humátt á eftir þannig að það má búast við harðri baráttu um að fylgja toppliði Frosinone upp.
Ítalski boltinn Mest lesið Þetta gerðist í lokaumferðinni í enska | City meistari og Jóhann Berg kvaddi Enski boltinn Usyk fyrstur til að vinna Fury Sport Í beinni: FH - Afturelding | Úrslitin fara af stað Handbolti Daníel stórbætti þrjátíu ára Íslandsmet Jóns Arnars Sport Telur að Usyk hafi unnið vegna stríðsins í Úkraínu Sport Manchester City Englandsmeistari fjórða árið í röð Fótbolti Skytturnar gerðu sitt en horfa samt á eftir titlinum Enski boltinn Klopp kvaddi með sigri Fótbolti Klopp segir að Liverpool verði í góðum höndum hjá Slot Enski boltinn Tapið í gær þýðir að Kane missir af enn einum titlinum Fótbolti Fleiri fréttir Kvaddi stuðningsmennina og kenndi þeim lag um nýja stjórann Lærisveinar Freys einum leik frá því að takast hið ómögulega Meistararnir köstuðu frá sér þriggja marka forystu Í beinni: Stjarnan - Breiðablik | Hörkuslagur í bikarnum Albert kom inn af bekknum er Genoa tapaði gegn tíu Rómverjum Valur og Þróttur flugu inn í átta liða úrslit Þetta gerðist í lokaumferðinni í enska | City meistari og Jóhann Berg kvaddi Manchester City Englandsmeistari fjórða árið í röð United skemmdi kveðjupartý De Zerbi Skytturnar gerðu sitt en horfa samt á eftir titlinum Klopp kvaddi með sigri Ísak lagði upp mark í fyrsta byrjunarliðsleiknum Missti af rauðvínsglasi með Sir Alex Klopp segir að Liverpool verði í góðum höndum hjá Slot Ten Hag segir United í betri stöðu en fyrir ári Tapið í gær þýðir að Kane missir af enn einum titlinum Chelsea sækir undrabarn frá Brasilíu Var spáð falli en eru á leið í Meistaradeildina Ótrúlegir yfirburðir tryggðu tíunda bikarmeistaratitilinn Stutt gaman hjá Birki er Brescia missti af sæti í efstu deild AC Milan hleypti Torino inn í Evrópubaráttu Keflavík og Grindavík tryggðu sér sæti í átta liða úrslitum Jón Daði og félagar náðu ekki að koma sér upp um deild Hayes kvaddi Chelsea með fimmta titlinum í röð og Dagný komin í hóp Leiknir vann Breiðholtsslaginn og Njarðvík með fullt hús stiga Reus kvaddi með draumamarki og Leverkusen kláraði tímabilið ósigrað De Zerbi hættir hjá Brighton Foden valinn bestur á Englandi Sandra María lagði upp bæði mörk Þórs/KA í bikarsigri á Dalvík Hélt upp á landsliðsvalið með marki Sjá meira