Íslenski boltinn

Sjáðu axlar- og bak­mark í Eyjum, „eld­rauða spjaldið“ og neglur Atla og Gísla

Sindri Sverrisson skrifar
Theódór Elmar Bjarnason skoraði fyrir KR í sigrinum dýrmæta gegn Fram í gærkvöld.
Theódór Elmar Bjarnason skoraði fyrir KR í sigrinum dýrmæta gegn Fram í gærkvöld. vísir/Anton

Það var nóg um að vera í áttundu umferð Bestu deildar karla í fótbolta sem lauk í gær. KR vann langþráðan sigur gegn Fram, Víkingur jók forskot sitt á toppnum og Keflavík fór á botninn þrátt fyrir markalaust jafntefli við Val.

Í gærkvöldi fóru fram þrír leikir og þar unnu KR-ingar loks sinn annan sigur á tímabilinu, 2-1, eftir langa markaþurrð. Atli Sigurjónsson skoraði fyrra mark KR með glæsilegu skoti og vann svo boltann af Brynjari Gauta Guðjónssyni til að leggja upp seinna markið fyrir Theódór Elmar Bjarnason. Brynjar Gauti átti heiðurinn að marki Fram sem var sjálfsmark gestanna.

Klippa: Fram- KR

Í Eyjum unnu FH-ingar dramatískan sigur, 3-2, þar sem að sigurmarkið var í raun sjálfsmark Guy Smit en skot Davíðs Snæs Jóhannssonar fór í stöngina og bakið á markverðinum. 

Áður höfðu Hermann Þór Ragnarsson og Alex Freyr Hilmarsson skorað fyrir ÍBV og Gyrðir Hrafn Guðbrandsson og Steven Lennon, sem skoraði með öxlinni, skorað fyrir FH. Hermann fékk rauða spjaldið á 80. mínútu.

Klippa: ÍBV - FH

Í Garðabæ var mikið fjör í endurkomu þjálfarans Rúnars Páls Sigmundssonar, en Stjarnan og Fylkir enduðu á að gera 2-2 jafntefli þar sem Emil Atlason jafnaði metin í uppbótartíma. Ísak Andri Sigurgeirsson hafði komið STjörnunni yfir en Pétur Bjarnason jafnaði metin og lagði svo upp mark fyrir Nikulás Val Gunnarsson á 85. mínútu.

Klippa: Stjarnan - Fylkir

Á sunnudag unnu Víkingar 2-1 sigur gegn HK í Kórnum, með mörkum frá Viktori Örlygi Andrason og Nikolaj Hansen, en Eyþór Aron Wöhler minnkaði muninn í lokin eftir að Víkingar höfðu misst Karl Friðleif Gunnarsson af velli með rautt spjald, fyrir brot á Eyþóri. Arnar Gunnlaugsson, þjálfari Karls, lýsti því broti þannig að það hefði verðskuldað eldrautt spjald.

Klippa: HK - Víkingur

Valur og Keflavík gerðu markalaust jafntefli eins og fyrr segir en Breiðabik fagnaði 2-0 sigri gegn KA í fyrsta leik sínum á nýja gervigrasinu á Kópavogsvelli. Gísli Eyjólfsson var aðalmaðurinn í sigrinum en hann fiskaði víti sem Höskuldur Gunnlaugsson skoraði úr, og skoraði svo magnað mark eftir langan sprett með skoti í þverslána og inn.

Klippa: Breiðablik - KA

Besta deildin er á Stöð 2 Sport. Smelltu hér til að horfa á leiki og þætti. Besta deildin er hluti af Stöð 2 Sport Ísland sem kostar 4.990 kr. á mánuði og má kaupa hér.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×