Farið að hægja á tilkynningum um hópuppsagnir Sunna Sæmundsdóttir skrifar 30. nóvember 2020 12:10 Unnur Sverrisdóttir forstjóri Vinnumálastofnun vísir/Egill Aðalsteinsson Tvær hópuppsagnir hafa verið tilkynntar til Vinnumálastofnunar nú rétt fyrir mánaðarmót. Forstjóri Vinnumálastofnunar segir farið að hægja á hópuppsögnum en að frost ríki hins vegar á vinnumarkaði.
Tilkynnt var um eina hópuppsögn fyrir helgi hjá fyrirtækinu Borgun. Þá sagði að 35 manns hefði verið sagt upp en síðar reyndist unnt að fækka í hópnum og samkvæmt tilkynningu sem fyrirtækið sendi frá sér í morgun var að lokum 29 sagt upp störfum í því skyni að draga úr rekstrartapi. Unnur Sverrisdóttir, forstjóri Vinnumálastofnunar, segir að tilkynnt hafi verið um aðra hópuppsögn í morgun. „Það er hjá fyrirtæki sem tengist ferðaþjónustunni og þar eru þrettán manns að missa vinnuna.“ Farið er að hægja á tilkynningum um hópuppsagnir. Í faraldrinum voru þær flestar í einum mánuði í apríl, eða 57. Tilkynningarnar voru níu í september og tvær í október. Fleiri tilkynningar gætu þó borist í dag, á síðasta degi mánaðarins. „Ég held að fyrirtækin séu mörg búin að gera þær ráðstafanir sem þau horfðu fram á með haustinu,“ segir Unnur. Atvinnuleysi mældist 11,1% í október.Vísir/Hanna Ekki eru komnar atvinnuleysistölur fyrir nóvembermánuð en í október mældist það 11,1 prósent. Um tuttugu og fimm þúsund manns voru á almennum- eða hlutabótum. Hún segir spár virðast vera ganga eftir varðandi áframhaldandi aukningu. „Það hafa verið að koma inn svona þrjú þúsund manns á mánuði að meðaltali, stundum meira en stundum minna. Sú spá hefur bara gengið eftir. “ Hún telur fyrirtækin vera að halda að sér höndum eins og er. „Það eru náttúrulega allir að bíða eftir nýjum fréttum af bóluefni. Hvenær það kemur og hvenær það fer að hafa einhver áhrif..“ Lítil velta sé á vinnumarkaði. „Það er náttúrulega eitthvað um að fólk fari af atvinnuleysisskrá og í vinnu en það er ekki mikið. Það má segja að það sé frost. Það er náttúrulega búið að vera algjört frost í ferðaþjónustunni. Bara alkul,“ segir Unnur.
Vinnumarkaður Tengdar fréttir Þrettán sagt upp hjá fyrirtæki sem tengist ferðaþjónustu Þrettán hefur verið sagt upp í hópuppsögn hjá fyrirtæki sem tengist ferðaþjónustu. 30. nóvember 2020 11:18 29 starfsmönnum Borgunar sagt upp 29 starfsmönnum Borgunar var sagt upp í hópuppsögn í dag. Þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu. 30. nóvember 2020 10:09 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Staldraði við þegar talað var um fóstur sem frumuklasa Innlent Einhver í herberginu segi ekki satt Innlent Spánverjar neita skipi með vopn innanborðs um að leggja að bryggju Erlent Svona voru kappræður sex efstu í baráttunni um Bessastaði Innlent Treysta sér til þess að vernda þjóðkirkjuna Innlent Katrín tekur forystuna á ný og Halla T í sókn Innlent Skipstjórinn gistir fangageymslur ásamt stýrimanni Innlent Kviknaði í bensínbíl í akstri á Dalbraut Innlent „Við erum ekki hlutlaus þjóð“ Innlent Magnús Geir vill fimm ár í viðbót í Þjóðleikhúsinu Innlent Fleiri fréttir Bein útsending: MenntaStefnumót í Reykjavík Treysta sér til þess að vernda þjóðkirkjuna Magnús Geir vill fimm ár í viðbót í Þjóðleikhúsinu Telur ekki óeðlilegt að sýna mótmælendum samstöðu Staldraði við þegar talað var um fóstur sem frumuklasa Skipstjórinn gistir fangageymslur ásamt stýrimanni Kviknaði í bensínbíl í akstri á Dalbraut Einhver í herberginu segi ekki satt „Við erum ekki hlutlaus þjóð“ Katrín tekur forystuna á ný og Halla T í sókn Vendingar í nýrri könnun og mannbjörg á ögurstundu Svona voru kappræður sex efstu í baráttunni um Bessastaði Spyr hvort eðlilegt sé að ráðherrar taki þátt í erlendum mótmælum Viktor hvetur forsetaframbjóðendur til að sniðganga Stöð 2 Skipstjórinn og tveir stýrimenn handteknir vegna sjóslyssins Óvinnufær eftir harkalegt fall þegar strappur slitnaði Skipuð aðstoðarlögreglustjóri á höfuðborgarsvæðinu Valdimar Hermannsson nýr sveitarstjóri Vopnafjarðarhrepps Bjarni ætlar að geta Katrínar í formálanum Þórey í Konukoti hlaut mannréttindaverðlaun Reykjavíkur Nafnið Hroði of hroðalegt Fékk sting í hjartað þegar hann sá nafnið á bátnum Um 920 mál óafgreidd hjá kærunefnd útlendingamála Færa almannavarnastig niður á óvissustig vegna vatnslagnarinnar Fólk muni ekki borga 200 þúsund fyrir „heimili sem það notar sem sumarbústað“ Vísbending um að flutningaskip hafi hvolft bátnum Skikkar lögreglu til að rannsaka stjórn aðventista Sjóslys, Þórkatla og framtíð Play Kvikusöfnunin áfram stöðug Tóku niður íslenska svikasíðu með FBI Sjá meira
Þrettán sagt upp hjá fyrirtæki sem tengist ferðaþjónustu Þrettán hefur verið sagt upp í hópuppsögn hjá fyrirtæki sem tengist ferðaþjónustu. 30. nóvember 2020 11:18
29 starfsmönnum Borgunar sagt upp 29 starfsmönnum Borgunar var sagt upp í hópuppsögn í dag. Þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu. 30. nóvember 2020 10:09