Segir af sér sem trúnaðarmaður Blaðamannafélagsins á Morgunblaðinu

Trúnaðarmaður Blaðamannafélags Íslands á Morgunblaðinu hefur ákveðið að hætta sem slíkur. Ástæðuna segir hann vera „afskipti stjórnar BÍ af auglýsingabirtingu á mbl.is“. Telur hann að stjórnin hafi brotið gegn lögum eigin félags.

Morgunblaðshúsið
Auglýsing

Guðni Ein­ars­son hefur sagt af sér sem trún­að­ar­maður Blaða­manna­fé­lags Íslands (BÍ) á Morg­un­blað­inu. Þetta kemur fram í bréfi Guðna sem stjórn BÍ barst í morgun og greint er frá á vef Blaða­manna­fé­lags­ins í dag.

„Ástæða þess eru afskipti stjórnar BÍ af aug­lýs­inga­birt­ingu á mbl.­is. Með þeim fer stjórn félags­ins langt út fyrir sitt hlut­verk að mínu mati og það hvorki get ég né treysti mér til að verja sem full­trúi félags­ins á mínum vinnu­stað,“ segir Guðni.

For­sagan er sú að for­maður BÍ, Sig­ríður Dögg Auð­uns­dótt­ir, sendi bréf um helg­ina, fyrir hönd stjórnar BÍ, á Har­ald Johann­essen, fram­kvæmda­stjóra Árvak­urs, og Magnús Krist­jáns­son, þar sem stjórnin lýsti óánægju með birt­ingu aug­lýs­ingar Sam­herja sem hún segir að sé „hluti af ófræg­ing­ar­her­ferð gegn Helga Seljan og félögum hans í Kveik“.

Auglýsing

Í bréfi stjórnar BÍ segir að á fjöl­miðlum séu skörp skil milli aug­lýs­inga­deilda og rit­stjórna en með þess­ari aug­lýs­ingu hafi verið stigið yfir þá línu því her­ferð Sam­herja sé ekki aðeins her­ferð gegn einum frétta­manni eða einni rit­stjórn heldur bein­ist hún gegn öllum blaða­mönnum og öllum rit­stjórn­um, þar á meðal blaða­mönnum á mbl.­is.

Telur að stjórnin hafi brotið gegn lögum eigin félags

Guðni bendir á í bréfi sínu til stjórnar að sam­kvæmt lögum félags­ins sé til­gangur þess að gæta „fag­legra og stétt­ar­legra hags­muna félags­manna í hví­vetna“ (1. gr.). Einnig að „standa vörð um prent- og tján­ing­ar­frelsi“ (1.2 b gr.) og að hafa „áhrif á opin­bera stefnu og sam­fé­lags­lega umræðu um fjöl­miðlun og tján­ing­ar­frelsi“ (1.2 d). Síð­ast en ekki síst: „Að standa vörð um rit­stjórn­ar­legt frelsi og sjálf­stæði fjöl­miðla“ (1.2 e).

Spy hann hvort stjórnin hafi verið að gæta hags­muna allra félags­manna sinna eða að standa vörð um prent- og tján­ing­ar­frelsi. „Var hún að slá skjald­borg um sjálf­stæði fjöl­miðla? Með ákvörðun sinni tel ég að stjórnin hafi brotið gegn lögum eigin félags. Hún ætti að sjá sóma sinn í að draga gagn­rýni sína til baka og að ein­beita sér að til­gangi félags­ins.“

Segir Guðni að þegar hann byrj­aði í blaða­mennsku hafi hann lært að „kína­m­úr“ væri á milli rit­stjórnar og aug­lýs­inga­deild­ar. Blaða­menn skiptu sér ekki af aug­lýs­ingum og skrif­uðu ekki aug­lýs­inga­efni og öfugt. Þessi regla hafi almennt gilt á rit­stjórnum sem hafa ein­hvern metnað og sjálfs­virð­ingu. Telji menn að til­teknar aug­lýs­ingar séu meið­andi eða ósannar þá séu leiðir til að taka á því, til að mynda fyrir dóm­stól­um.

„Ekki þarf að fjöl­yrða um erfið rekstr­ar­skil­yrði allra ann­arra fjöl­miðla en Rík­is­út­varps­ins, sem árlega fær hátt með­lag frá skatt­greið­endum auk þess að vera fyr­ir­ferð­ar­mikið á aug­lýs­inga­mark­aði. Aðrir útgef­endur reiða sig að miklu leyti á aug­lýs­inga­tekjur og sumir á áskrift­ar­tekjur að auki. Það að stétt­ar­fé­lag blaða­manna skipti sér af tekju­öflun ein­stakra útgef­enda er í mínum huga langt fyrir utan verk­svið þess,“ skrifar hann að lok­um.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent