Arnór ósigraður sem þjálfari

Arnór Þór Gunnarsson er fyrrum leikmaður Bergischer
Arnór Þór Gunnarsson er fyrrum leikmaður Bergischer Ljósmynd/Bergischer

Arnór Þór Gunnarsson, þjálfari Bergischer í þýsku deildinni í handbolta karla, vann annan leik sinn í röð þegar liðið tók á móti Erlangen í dag.

Arnór stýrði liðinu í fyrsta skipti gegn botnliði Balingen í síðustu umferð og hafði Bergischer þar betur 21:25. Í dag kom Erlangen í heimsókn en Erlangen er sæti ofar en Bergischer í deildinni og síðasta örugga sæti deildarinnar. 

Bergischer gerði sér lítið fyrir og vann 28:25 og hleyptu spennu í fallbaráttuna þar sem Erlangen er einungis tveimur stigum fyrir ofan Bergischer eftir leikinn. Fjórir leikir eru eftir í deildinni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert