Áfall fyrir Arsenal

Kieran Tierney fór meiddur af velli gegn Liverpool.
Kieran Tierney fór meiddur af velli gegn Liverpool. AFP

Kieran Tierney, bakvörður enska knattspyrnufélagsins Arsenal, verður frá næstu vikurnar vegna meiðsla.

Þetta staðfesti félagið á heimasíðu sinni í dag en Tierney skaddaði liðbönd í hné í 3:0-tapi Arsenal gegn Liverpool í ensku úrvalsdeildinni í London um síðustu helgi.

Tierney þurfti að fara af velli vegna meiðslanna í fyrri hálfleik en hann verður frá í fjórar til sex vikur.

Bakvörðurinn, sem er 23 ára gamall, gekk til liðs við Arsenal frá uppeldisfélagi sínu Celtic síðasta sumar fyrir 25 milljónir punda.

Hann hefur byrjað 23 leiki í ensku úrvalsdeildinni á tímabilinu þar sem hann hefur skorað eitt mark og lagt upp önnur tvö.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert