Sigurmarkið kom í uppbótartíma í framlengingu

Alexis Sánchez skoraði sigurmarkið.
Alexis Sánchez skoraði sigurmarkið. AFP

Inter Mílanó er meistari meistaranna í ítalska fótboltanum eftir 2:1-sigur á Juventus í framlengdum leik á heimavelli fyrrnefnda liðsins. Sigurmarkið kom í uppbótartíma í framlengingu.

Bikarmeistarar Juventus komust yfir gegn Ítalíumeisturunum þegar Weston McKennie skoraði á 25. mínútu. Tíu mínútum síðar jafnaði Lautaro Martínez úr víti og var staðan í hálfleik 1:1.

Ekkert mark var skorað í seinni hálfleik og því varð að framlengja. Þar var markalaust þangað til Alexis Sánchez skoraði sigurmarkið þegar ein mínúta var komin fram yfir venjulegan leiktíma og þar við sat.  

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert