Viðskipti innlent

Hætta að­komu að Lím­tré Vír­neti eftir ellefu ár

Eiður Þór Árnason skrifar
Starfsstöð Límtrés Vírnets á Flúðum.
Starfsstöð Límtrés Vírnets á Flúðum. Vísir/Vilhelm

Stekkur fjárfestingarfélag ehf. hefur keypt 35% hlut í iðnfyrirtækinu Límtré Vírneti. Fyrir átti Stekkur 45% hlut í félaginu og nemur eignarhlutur Stekks 80% eftir viðskiptin.

Seljendur eru hjónin Hjörleifur Jakobsson og Hjördís Ásberg í gegnum félag sitt Bingo ehf. Hafa þau nú selt alla hluti sína í Límtré Vírneti eftir að hafa verið hluthafar í rúm ellefu ár. Kaupin eru háð samþykki Samkeppniseftirlitsins.

Greint er frá þessu í tilkynningu en Límtré Vírnet framleiðir og selur vörur fyrir íslenskan byggingariðnað, á borð við stál- og álklæðningar, límtré og yleiningar úr íslenskri steinull. Höfuðstöðvar eru í Reykjavík en framleiðslu- og sölustöðvar eru reknar í Borgarnesi og á Flúðum.

Spennandi tímar fram undan

Guðlaug Kristbjörg Kristinsdóttir, framkvæmdarstjóri Stekks og stjórnarformaður Límtré Vírnets, segir stjórnendur hafa óbilandi trú á fyrirtækinu sem hafi náð góðum árangri á undanförnum árum.

„Það eru spennandi tímar framundan og teljum við að eftirspurn eftir umhverfisvænni íslenskri framleiðslu Límtré Vírnets muni halda áfram að vaxa. Reynsla viðskiptavina okkar er góð og sífellt fleiri velja okkar íslenska byggingarefni, enda gæðin óumdeild og þjónustan til fyrirmyndar. Við hlökkum mikið til að stýra félaginu inn í framtíðina, halda áfram að þróa nýjar lausnir og vaxa á því framkvæmdaskeiði sem er framundan,“ segir Guðlaug í tilkynningu.

Hjörleifur Jakobsson, annar eigandi og stjórnarformaður Bingo, segir að hjónin vilji nú einbeita sér að færri kjarnaverkefnum.

„Þetta hefur verið stórskemmtilegt verkefni þar sem fyrstu árin fóru í að ná utan um rekstur félagsins en síðan tók við stöðug uppbygging með breiðara vöruframboði sem leitt hefur til aukinnar veltu og bættrar afkomu. Fyrirtækið stendur vel, með frábæran hóp starfsmanna og stjórnenda, sterkan hluthafahóp og er í kjörstöðu til að nýta fjölbreytt tækifæri til sóknar. Ég vil þakka stjórnendum, starfsfólki og stjórn félagsins fyrir einstaklega ánægjulegt samstarf á síðastliðnum 11 árum og óska fyrirtækinu og hluthöfum þess velfarnaðar í frekari þróun Límtré Vírnets.”





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×