Innlent

Núverandi fyrirkomulag á landamærum gildir til 1. febrúar

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra lagði til óbreytt fyrirkomulag á landamærum næstu tvo mánuði.
Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra lagði til óbreytt fyrirkomulag á landamærum næstu tvo mánuði. Vísir/Vilhelm

Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra lagði til á ríkisstjórnarfundi í morgun að núverandi fyrirkomulag á landamærum gildi áfram til 1. febrúar. Tillagan var samþykkt. 

Þetta tjáði Katrín fréttatofu að loknum fundinum um klukkan eitt í dag. Í núverandi fyrirkomulag stendur fólki til boða að fara annaðhvort í tvöfalda skimun með sóttkví á milli eða að fara í fjórtán daga sóttkví.

Frá 10. desember getur fólk á EES-svæðinu framvísað Covid-19 vottorðum á landamærum.

Berghildur Erla Bernharðsdóttir ræddi við Katrínu að loknum ríkisstjórnarfundi.

Ætla að sjá hverju gjaldfrjáls skimun skili

Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir lagði til á dögunum að gera skimun á landamærum gjaldfrjálsa og sömuleiðis að gera skimun á landamærum að skyldu. Fallist var á fyrri tillögu Þórólf og varð skimunin gjaldfrjáls fyrr í vikunni.

„Við metum þetta þannig að það sé mjög mikilvægt að það séu engar fjárhagslegar hindranir. 

En það er líka mikilvægt, í ljósi þess að skimun er læknisrannsókn, að það er ekki svo að fólk verði með auðveldum hætti þvingað til læknisrannsóknar.

Katrín segir að 2,6% fólks sem komi til landsins hafi kosið fjórtán daga sóttkví fram yfir skimun. Nú ætli þau að bíða og sjá hverju það skilar að hafa skimunina gjaldfrjálsa.

Full ástæða til að gæta varúðar

Katín segir að núverandi fyrirkomulag hafi gefist mjög vel en vinna sé í skoðun hvað muni taka við. Ýmsar leiðir séu til skoðunar, þar á meðal tillaga sem fram kom frá verkefnahópi á dögunum um þrefalda skimun og smitgát fyrir ferðamenn á milli skimana.

Aðspurð hvort samráð hafi verið haft við ferðaþjónustuna við ákvörðunina um fyrirkomulag á landamærum segir Katrín að slíkt samtal sé í gangi og tillögur þaðan skoðaðar. Hún bendir á að faraldurinn sé víðast hvar í vexti á meðan Íslendingar séu á þeim stað að okkar aðgerðir eru að skila árangri.

„Það er full ástæða til að gæta áfram ítrustu varúðarráðstafana á landamærum.“

Forsætisráðherra segir að fyrirkomulag sem taki gildi 1. febrúar verði kynnt ekki síðar en 15. janúar.

Vottorð vegna Covid-19 á EES-svæðinu

Þá nefndi Katín að þeir sem hafi fengið Covid-19 og eru innan Evrópska efnahagssvæðisins muni frá 10. desember geta framvíst vottorðum þess efnis á landamærum. Hingað til hafi aðeins íslensk vottorð verið tekin gild. Mikil vinna hafi staðið yfir um viðurkenningu vottorða og byggt á þeirri vinnu. 

Að neðan má sjá tilkynningu sem Stjórnarráðið sendi vegna málsins á öðrum tímanum. 

Sóttvarnaráðstöfunum á landamærum Íslands verður fram haldið í óbreyttri mynd þar til 1. febrúar á næsta ári. Þetta var ákveðið á fundi ríkisstjórnar í morgun. Þar var ennfremur tekin sú ákvörðun að frá og með 10. desember verði vottorð um að fólk hafi fengið COVID-19 og að sýking sé afstaðin tekin gild og veiti undanþágu frá þeim kröfum sem annars eru gerðar. Næsta ákvörðun um fyrirkomulag á landamærum verður tekin eigi síðar en 15. janúar.

Ákvörðunin byggir m.a. á minnisblaði vinnuhóps heilbrigðisráðuneytisins um viðurkenningu vottorða og efnahagslegu mati starfshóps fjármála- og efnahagsráðuneytisins á tillögum að breyttum aðgerðum á landamærum.

Farþegar geta samkvæmt þessu áfram valið á milli þess að fara í tvær sýnatökur vegna COVID-19 með 5 daga sóttkví á milli þar til niðurstaða seinni sýnatöku liggur fyrir, eða sleppa sýnatöku og sitja í 14 daga sóttkví frá komunni til landsins.


Tengdar fréttir

Telur erfitt að skylda fólk í skimun á landamærum

Dómsmálaráðherra segir að erfitt geti reynst að skylda fólk til að fara í skimun fyrir kórónuveirunni á landamærum, horfa þurfi til annarra ráðstafanna þar. Sóttvarnalæknir segir að verið sé að skoða málið frá mörgum hliðum.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×