Greindist smitaður á blóð- og krabbameinslækningadeild Samúel Karl Ólason skrifar 13. janúar 2021 23:38 Aðrar deildir muni aðstoða 11EG eftir þörfum og vonast er til þess að þjónusta spítalans við viðkvæman sjúklingahóp deildarinnar verði órofin. Vísir/Vilhelm Sjúklingur á blóð- og krabbameinslækningadeild Landspítala (11EG) greindist í kvöld smitaður af Covid-19. Innlagnir á deildina hafa því verið stöðvaðar og fara um þrjátíu sjúklingar og þrjátíu starfsmenn í skimun í fyrramálið.
Í tilkynningu frá spítalanum segir að ekki sé vitað hvernig viðkomandi sjúklingur smitaðist en talið sé að hann hafi verið smitaður við innlögn. Smitrakning stendur yfir og fyrstu niðurstöður úr skimuninni ættu að liggja fyrir um hádegisbilið á morgun Þar segir einnig að smitið hafi greinst á níunda tímanum í kvöld og viðkomandi einstaklingar hafi verið settir í sóttkví eða vinnusóttkví B. Samhliða því hafi verið gripið til ítrustu sóttvarnaaðgerða á deildinni. Grípa þurfti til sambærilegra aðgerða á hjartadeild fyrir um sólarhring. Þar fór þó betur en á horfðist. Í áðurnefndri tilkynningu segir að þetta séu alvarlegir atburðir í starfsemi spítalans og viðbrögð við þeim séu umfangsmikil og útbreidd. Aðrar deildir muni aðstoða 11EG eftir þörfum og vonast sé til þess að þjónusta spítalans við þennan viðkvæma sjúklingahóp verði órofin og hnökralaus. Tilkynning Landspítalans í heild sinni: Inniliggjandi sjúklingur á blóð- og krabbameinslækningadeild Landspítala (11EG) fékk jákvætt svar við Covid-19 skimun um kl. 20 í kvöld, miðvikudaginn 13. janúar. Blóð- og krabbameinslækningadeild hefur því verið lokuð fyrir nýjum innlögnum, en er þó í fullri starfsemi. Um 30 sjúklingar og 30 starfsmenn verða skimaðir snemma í fyrramálið, fimmtudaginn 14. janúar. Um hádegisbil ættu fyrstu niðurstöður úr þeirri skimum að liggja fyrir. Viðkomandi einstaklingar eru ýmist í sóttkví eða vinnusóttkví B þar til þær niðurstöður berast. Samhliða hefur verið gripið hefur verið til ítrustu sóttvarnaaðgerða á deildinni. Ekki liggur fyrir hvernig sjúklingurinn smitaðist, en þó er talið líklegast að sjúklingurinn hafi þegar við innlögn verið smitaður. Smitrakning stendur yfir. Sjúklingurinn var lagður inn á 11EG síðdegis í gær, þriðjudaginn 12. janúar. Skimun leiddi í ljós virkt Covid-19 smit á níunda tímanum í kvöld. Sjúklingurinn hefur verið fluttur á smitsjúkdómadeild Landspítala (A7) í Fossvogi og settur í einangrun, vegna veikinda sinna. Sólarhringur er síðan Landspítali þurfti að grípa til svipaðs viðbragðs vegna smits sem kom upp á hjartadeild. Þetta eru alvarlegir atburðir í starfsemi spítalans og viðbragðið í kjölfarið því ætíð umfangsmikið og útbreitt. Aðrar deildir munu aðstoða 11EG eftir þörfum og vonir standa til þess að þjónusta spítalans við þennan viðkvæma sjúklingahóp verði órofin og hnökralaus.
Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Landspítalinn Tengdar fréttir Reyndist vera með gamalt kórónuveirusmit Betur fór en á horfðist þegar sjúklingur á hjartadeild Landspítalans greindist jákvæður fyrir kórónuveirunni í gær. Aðrir sjúklingar á deildinni og starfsmenn hennar reyndust allir neikvæðir. 13. janúar 2021 19:21 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Of þung en annars hraust á Ozempic Innlent Bergvin dæmdur fyrir að áreita þrjár konur Innlent Skuldirnar bíði þegar frelsið taki við Innlent Gular viðvaranir á Suðurlandi, Suðausturlandi og Faxaflóa á morgun Innlent Ekki megrunarlyf heldur lyf við offitu Innlent Segja grafalvarlegt mál að fresta atkvæðagreiðslu Innlent Myndband sýnir árás Diddy Erlent „Það er miður að það falli til kostnaður vegna þessa“ Innlent „Engu okkar er boðið að koma þarna og sjá“ Innlent Fleiri fréttir Bergvin dæmdur fyrir að áreita þrjár konur Slasaður eftir hestaslys í Ölfusi Nauðsynlegt að fresta atkvæðagreiðslu um umdeilda verksmiðju Ekki megrunarlyf heldur lyf við offitu Segja grafalvarlegt mál að fresta atkvæðagreiðslu „Það er miður að það falli til kostnaður vegna þessa“ Átök í Ölfusi og offitulyf Ákærður fyrir að pissa daginn eftir Fiskidaginn mikla Gular viðvaranir á Suðurlandi, Suðausturlandi og Faxaflóa á morgun Nauðugur sá kostur að fresta atkvæðagreiðslunni „Engu okkar er boðið að koma þarna og sjá“ Skuldirnar bíði þegar frelsið taki við Of þung en annars hraust á Ozempic Slagsmálahundar afþökkuðu aðstoð lögreglu Útgjöld ríkissjóðs vegna Grindavíkur hátt í hundrað milljarðar Fresta íbúakosningu í Ölfusi um mölunarverksmiðju Lífleg og skrautleg kosningabarátta að mati forsætisráðherra Dregur saman með efstu frambjóðendum Mesta kvika frá því að kvikugangurinn myndaðist Nota sykursýkislyf til að léttast og Rottweilerhundar bjóða í partý Látin móðir ekki dæmd í tugmilljóna lyfjasölumáli sonarins Sendiherra, sveitarstjóri og bæjarstjóri skipuð í nefnd Ætlar alla leið í baráttu fyrir nafninu sínu Stuðningslán með ríkisábyrgð fyrir grindvísk fyrirtæki Skipið leggur úr höfn „Alls ekki svo að við tútturnar séum að taka yfir“ Framkvæmdir hafnar við brú yfir Fjarðarhornsá Segist kallaður „stríðsæsingarmaður“ vegna fyrirhyggju Sjúklingum Landspítala fjölgaði um 4.500 milli ára Skólastjóradrama í Kóraskóla fær óvæntan endi Sjá meira
Reyndist vera með gamalt kórónuveirusmit Betur fór en á horfðist þegar sjúklingur á hjartadeild Landspítalans greindist jákvæður fyrir kórónuveirunni í gær. Aðrir sjúklingar á deildinni og starfsmenn hennar reyndust allir neikvæðir. 13. janúar 2021 19:21