Sjúklingur með Covid-19 lagður inn á Landspítala Kristín Ólafsdóttir skrifar 18. júlí 2021 18:04 Landspítali háskólasjúkrahús Fossvogi Foto: Vilhelm Gunnarsson/Vilhelm Gunnarsson Sjúklingur var lagður inn á Landspítala vegna Covid-19 í gær. Þetta er fyrsta innlögnin í nokkrar vikur, að sögn yfirmanns Covid-deildar. Hann telur að herða eigi aðgerðir á landamærum, til dæmis með skimun á Íslendingum.
Níu greindust með kórónuveiruna innanlands í gær, allir utan sóttkvíar, samkvæmt bráðabirgðatölum frá almannavörnum. Sjö af níu voru bólusettir og um 400 eru nú í sóttkví. Sjö greindust á landamærum. 111 voru í eftirliti hjá Covid-göngudeild Landspítala síðdegis í dag, þar af átta börn, og reiknað með að bætist í hópinn í dag. Fyrsti Covid-sjúklingurinn í nokkrar vikur var lagður inn á Landspítala í gær; öldruð kona, fullbólusett. „Vegna slappleika og vökvaskorts, það er eitthvað sem er viðbúið en telst ekki mjög alvarlegt. Það má alveg búast við því að fólk þurfi að leggjast inn á spítala en það getur líka verið út af einhverju öðru en Covid-19 því þeir sem eru smitaðir núna þeir eru langflestir með mjög væg einkenni eða engin,“ segir Runólfur Pálsson, yfirmaður Covid-göngudeildar Landspítala. Runólfur Pálsson er yfirmaður Covid-göngudeildar á Landspítala.Vísir/Sigurjón Smit undanfarna daga hafa teygt anga sína víða; mörg tengjast skemmtanalífinu og þá var báðum verslunum Nexus lokað í dag eftir að starfsmaður greindist með veiruna. Verið er að rekja smit gærdagsins. „Það bara er til marks um það að það eru smitaðir einstaklingar þarna úti, margir eru einkennalausir, þannig að þeir vita ekki einu sinni að þeir eru smitaðir og við getum ekki greint þá,“ segir Runólfur. „Ef ekki væri svo góð staða hvað snertir hlutfall bólusettra á Íslandi eins og raun ber vitni þá myndi þetta smit fara hér um eins og eldur í sinu.“ Mætti hugsanlega skima Íslendinga Runólfur reiknar ekki með því að stór bylgja sé í uppsiglingu. Hann bendir þó á að veiran hafi komið inn í landið með ferðamönnum og telur ráðlegt að grípa til aðgerða. Til dæmis væri skynsamlegt að krefjast neikvæðrar niðurstöðu úr PCR-prófi við komu til landsins. „En svo mætti hugsanlega skima hááhættuhópa sem koma frá hááhættusvæðum, til að mynda Íslendinga sem koma til landsins erlendis frá sem eru náttúrulega að koma beint inn í samfélagið.“ Mikilvægt sé að fólk haldi áfram persónubundnum sóttvarnaaðgerðum. „Fólk verður líka að hafa í huga að þó að það sé ungt og hraust og telji sig geta tekið við þessari veiru þá kallar þetta á einangrun og mögulegri sóttkví einstaklinga sem tengjast viðkomandi, þannig að það er best fyrir alla að komast hjá þessu,“ segir Runólfur. „Og ef til dæmis að fólk telur sig vera í umtalsverðri smithættu, miklu fjölmenni og svo framvægis, þá ætti fólk jafnvel að grípa til andlitsgríma aftur.“
Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Landspítalinn Bólusetningar Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið „Nú á dögunum tók sonur minn líf sitt innan veggja fangelsisins“ Innlent Staldraði við þegar talað var um fóstur sem frumuklasa Innlent Einhver í herberginu segi ekki satt Innlent Baldur vinsælasta plan B Innlent Svona voru kappræður sex efstu í baráttunni um Bessastaði Innlent Spánverjar neita skipi með vopn innanborðs um að leggja að bryggju Erlent Viðtal á Stöð 2 kveikir upp í færeyskum stjórnmálum Erlent Gríðarleg fjölgun á dvalarleyfum til Víetnama á grundvelli sérfræðiþekkingar Innlent Boða sérstakan bæjarstjórnarfund vegna bréfs Eggerts Innlent Treysta sér til þess að vernda þjóðkirkjuna Innlent Fleiri fréttir Fordæma brottvísun mansalsþolenda og vilja nýja stefnu Slökktu eld á Seltjarnarnesi Mögulegt umboðsleysi stjórnar Aðventista gæti skipt Ölfyssinga máli Fara í það minnsta fram á farbann Sjómenn í haldi og ÁTVR í bobba Bréf First Water veldur ringulreið í bæjarstjórn Ölfuss Konráð nýr efnahagsráðgjafi ríkisstjórnarinnar Umhverfis- og loftslagsmálin „Icesave okkar tíma“ Boða sérstakan bæjarstjórnarfund vegna bréfs Eggerts Skipstjórinn og stýrimaðurinn fluttir til Reykjanesbæjar Gríðarleg fjölgun á dvalarleyfum til Víetnama á grundvelli sérfræðiþekkingar „Nú á dögunum tók sonur minn líf sitt innan veggja fangelsisins“ Baldur vinsælasta plan B Bein útsending: MenntaStefnumót í Reykjavík Treysta sér til þess að vernda þjóðkirkjuna Magnús Geir vill fimm ár í viðbót í Þjóðleikhúsinu Telur ekki óeðlilegt að sýna mótmælendum samstöðu Staldraði við þegar talað var um fóstur sem frumuklasa Skipstjórinn gistir fangageymslur ásamt stýrimanni Kviknaði í bensínbíl í akstri á Dalbraut Einhver í herberginu segi ekki satt „Við erum ekki hlutlaus þjóð“ Katrín tekur forystuna á ný og Halla T í sókn Vendingar í nýrri könnun og mannbjörg á ögurstundu Svona voru kappræður sex efstu í baráttunni um Bessastaði Spyr hvort eðlilegt sé að ráðherrar taki þátt í erlendum mótmælum Viktor hvetur forsetaframbjóðendur til að sniðganga Stöð 2 Skipstjórinn og tveir stýrimenn handteknir vegna sjóslyssins Óvinnufær eftir harkalegt fall þegar strappur slitnaði Skipuð aðstoðarlögreglustjóri á höfuðborgarsvæðinu Sjá meira