Dauðsföll ná nýjum hæðum og Bolsonaro segir fólki að hætta að væla Samúel Karl Ólason skrifar 5. mars 2021 10:34 Jair Bolsonaro, forseti Brasilíu, hefur ítrekað gert lítið úr alvarleika faraldurs nýju kórónuveirunnar. EPA/Joedson Alves Dauðsföll vegna Covid-19 hafa náð nýjum hæðum í Brasilíu. Undanfarna tvo daga hefur metfjöldi fólks dáið vegna sjúkdómsins sem nýja kórónuveiran veldur og í gærkvöldi sagði Jair Bolsonaro, forseti Brasilíu, fólki að hætta að væla.
Þegar kemur að dauðsföllum í Brasilíu hafa rúmlega 260 þúsund manns dáið, svo vitað sé. Í gær var opinberað að 1.910 hefðu dáið á milli daga í Brasilíu en ekki höfðu fleiri dáið á einum degi síðan í júlí. Eingöngu hafa fleiri dáið í Bandaríkjunum, þar sem talan er rúmlega 520 þúsund, samkvæmt tölum Johns Hopkins háskólans en þær byggja á opinberum tölum. Gífurlegt álag á sjúkrahúsum Faraldurinn er þó í rénum í Bandaríkjunum og hefur smituðum farið fækkandi dag frá dagi. Staðan er ekki þannig í Brasilíu og samkvæmt frétt AP fréttaveitunnar er álag á sjúkrahús og heilbrigðisstarfsmenn orðið gífurlega mikið. Heilbrigðisráðherrar einstakra ríkja Brasilíu hafa kallað eftir og beitt umfangsmiklum sóttvarnaraðgerðum þar sem þeir geta. Fólk á götum Sao Paulo þar sem búið er að grípa til hertra sóttvarna.EPA/Sebastiao Moreira Ráðamenn í Brasilíu, höfuðborg Brasilíu, Sao Paulo og Rio de Janeiro hafa tilkynnt samkomutakmarkanir og sóttvarnaaðgerðir, svo eitthvað sé nefnt. Ráðamenn hafa sérstakar áhyggjur af nýju afbrigði veirunnar sem virðist smitast auðveldar á milli fólks og jafnvel geta smitað fólk sem hefur smitast áður, samkvæmt frétt Reuters frá því í gær. Brást pirraður við Bolsonaro brást pirraður við þeim aðgerðum í ræðu í gær þar sem hann sagði fólki að hætta að væla. „Hversu lengi mun þetta væl halda áfram? Hversu lengi er hægt að vera heima hjá sér og loka öllu? Það þolir þetta enginn lengur,“ sagði forsetinn meðal annars. Hann bætti við að hann væri sorgmæddur yfir dauðsföllum en þörf væri á lausnum. Fjöldi þeirra sem deyja vegna Covid-19 hefur fverið að aukast í Brasilíu.EPA/RAPHAEL ALVES Ríkisstjórar og læknar í Brasilíu hafa ítrekað sakað alríkisstjórn Bolsonaro um slæm viðbrögð við faraldrinum og að hafa ekki haldið rétt á spöðunum. Sjálfur hefur forsetinn ítrekað dregið úr alvarleika faraldursins og staðið gegn sóttvarnaraðgerðum. Þrátt fyrir það er Bolsonaro tiltölulega vinsæll í Brasilíu og hefur það að miklu leyti verið rakið til neyðarpakka sem samþykktur var í fyrra. Sá pakki sneri að því að almenningur fékk greiðslur úr ríkissjóði og stendur til að framlengja þær greiðslur á þessu ári.
Brasilía Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Tengdar fréttir Þurfa að velja milli sjúklinga vegna súrefnisskorts Víða í Afríku og Suður-Ameríku glíma heilbrigðisstarfsmenn við súrefnisskort. Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin og læknar segja skortinn hafa verið fyrirsjáanlegan og að hann hafi leitt til óþarfa dauðsfalla. 25. febrúar 2021 12:23 Hafa áhyggjur af fjölgun afbrigða Með sífellt aukinni dreifingu nýju kórónuveirunnar hefur nýjum afbrigðum veirunnar sem veldur Covid-19 fjölgað. Hvert smit gefur vírusnum tækifæri á að stökkbreytast og verður líklegra að afbrigði líti dagsins ljós sem geti gert skimun og meðferð erfiðari og jafnvel afbrigði sem núverandi bóluefni virki ekki gegn. 19. janúar 2021 10:19 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Lokuðu þorpi í leit að svörum um hvarf tveggja ára drengs Erlent Stærsti gígurinn orðinn „formfagur“ Innlent Voru sérstaklega varaðir við árás frá ISKP Erlent Lýsisskip strandaði í Fáskrúðsfirði Innlent Ísland að tapa í slagnum um ferðamenn Innlent Átta ára stúlka sú eina sem lifði rútuslys af Erlent Vilja einfalda fólki að komast til sjúkraþjálfara Innlent „Það þarf að stoppa svona menn áður en þeir drepa einhvern“ Innlent „Hvergi í verklagsreglum að við séum að reka fólk í burtu“ Innlent Hætt við framboð og vonast eftir þjóðhollum og guðræknum forseta Innlent Fleiri fréttir Lokuðu þorpi í leit að svörum um hvarf tveggja ára drengs Átta ára stúlka sú eina sem lifði rútuslys af Voru sérstaklega varaðir við árás frá ISKP Kallaði eftir aðstoð dráttarbáts skömmu fyrir slysið Rafmyntakóngurinn í 25 ára fangelsi Fundu lík tveggja verkamanna sem voru á brúnni Stjórnmálamaðurinn Joe Lieberman látinn Segir árásarmennina hafa ætlað til Belarús Taíland skrefinu nær því að leyfa samkynja hjónabönd Dómararnir virtust efast um réttmæti málsins gegn FDA Skammar lögreglu fyrir að nota lego til að dylja andlit sakborninga Japanskt fyrirtæki skiptir ungbarnableyjum út fyrir fullorðinsbleyjur Þeir sem fóru í ána taldir látnir Sakar Bandaríkjamenn og Breta um aðkomu að árásinni Kenna öryggisráðinu um „galnar“ kröfur Hamas Skipið varð vélarvana rétt áður en það hafnaði á brúnni Segja minnst sjö bíla hafa fallið í ána Assange verður ekki framseldur strax Leita fólks í ánni eftir að brúin hrundi Hverjir eru ISKP? Skæðasti angi Íslamska ríkisins teygir anga sína til Moskvu Strangtrúaðir æfir yfir því að verða mögulega skikkaðir til herþjónustu Brú hrundi eftir árekstur í Baltimore Gerðu húsleit hjá Diddy í Los Angeles og Miami Beinir spjótunum enn að Úkraínu Stórmál fari Ísrael ekki eftir ályktun öryggisráðsins Netanjahú í fýlu við Biden Lækka trygginguna meðan Trump áfrýjar Öryggisráð SÞ samþykkir ályktun um vopnahlé á Gasa Heita hefndum en freista þess enn að bendla Úkraínu við árásina Vísindamenn vilja friðlýsa vísindalega mikilvæg svæði á tunglinu Sjá meira
Þurfa að velja milli sjúklinga vegna súrefnisskorts Víða í Afríku og Suður-Ameríku glíma heilbrigðisstarfsmenn við súrefnisskort. Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin og læknar segja skortinn hafa verið fyrirsjáanlegan og að hann hafi leitt til óþarfa dauðsfalla. 25. febrúar 2021 12:23
Hafa áhyggjur af fjölgun afbrigða Með sífellt aukinni dreifingu nýju kórónuveirunnar hefur nýjum afbrigðum veirunnar sem veldur Covid-19 fjölgað. Hvert smit gefur vírusnum tækifæri á að stökkbreytast og verður líklegra að afbrigði líti dagsins ljós sem geti gert skimun og meðferð erfiðari og jafnvel afbrigði sem núverandi bóluefni virki ekki gegn. 19. janúar 2021 10:19