Tæknirisarnir keppast um athygli í næstu viku Samúel Karl Ólason skrifar 13. október 2021 14:45 Þrjú fyrirtæki og þrjár kynningar í næstu viku. EPA Nóg verður um að vera fyrir aðdáendur nýrra tækja í næstu viku. Stærstu tæknirisar heimsins eru allir að fara að kynna ný tæki, tól og hugbúnað þrjá daga í röð.
Apple byrjar á mánudaginn í næstu viku. Þá heldur fyrirtækið kynningu sem nefnist Unleashed. Greg Joswiak, markaðsstjóri Apple opinberaði kynninguna á Twitter í gær. The Verge segir að Apple muni væntanlega kynna nýjar tölvur og mögulega ný heyrnartól. Unleashed! These next six days are going to speed by. #AppleEvent pic.twitter.com/0ops2bVPvl— Greg Joswiak (@gregjoz) October 12, 2021 Google ætlar að kynna nýja Pixel-farsíma á þriðjudaginn í næstu viku. Fyrirtækið opinberaði nýverið tilvist Pixel 5A og Pixel 6 en svo virðist sem starfsmenn Google hafi meira um á að segja. Kynning Google kallas Pixel Fall Launch og hefur fyrirtækið gert sérstaka síðu fyrir það. Upplýsingum um búnað beggja símana hefur þegar verið lekið á netið. Gizmodo fór yfir þær upplýsingar og þar á meðal það að símarnir eiga báðir að vera með 50 mp aðalmyndavélar. Samsung, tæknirisinn frá Suður-Kóreu, boðaði svo í nótt til kynningar á miðvikudaginn í næstu viku. Sú kynning ber titilinn Galaxy Unpacked Part 2, eins og sjá má í kynningunni hér að ofan. Nokkur óvissa ríkir meðal tækniblaðamanna ytra sem eru ekki vissir um hvað til standi að sýna á kynningu Samsung. Ólíklegt þyki að nýir símar verði kynntir og með tilliti til „part 2“ hluta nafns kynningarinnar þykir tækniblaðamönnum líklegra að Samsung ætli að kynna nýjungar í tengslum við tæki sem eru þegar í sölu. Mögulega verði nýir litir síma kynntir og breytingar á hugbúnaði í símum Samsung. Uppfært: Fyrri fyrirsögn fréttarinnar var Tæknirisarnir keppast eitthvað næstu viku. Þetta var vinnutitill sem hefur verið breytt.
Tækni Apple Google Samsung Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Ljúfustu stundirnar þegar allir eru saman í hjónarúminu Atvinnulíf Breytinga þörf eigi Landsbankinn ekki að keppa á markaði Viðskipti innlent Stöð 2+ lækkar verð Neytendur Ný kynslóð vélmenna vekur óhug Viðskipti erlent Jón nýr formaður bankaráðs Landsbankans Viðskipti Sólin sest fyrir fullt og allt á Sælunni Viðskipti innlent Sýn hættir við að selja vefmiðla og útvarp Viðskipti innlent Enn ekkert að frétta af félagi sem þúsundir Íslendinga eiga kröfu á Neytendur Opna verslun á Keflavíkurflugvelli þar sem Arion var áður Viðskipti innlent Tók fimm mánuði að byrja að tala íslensku Atvinnulíf Fleiri fréttir Ný kynslóð vélmenna vekur óhug Ólígarkar unnu mál vegna refsiaðgerða fyrir Evrópudómstól Gervigreind Amazon reyndist þúsund Indverjar Rekja meirihluta heimslosunar til 57 framleiðenda Í basli með viðhald og viðgerðir á olíuvinnslum Taylor Swift meðal 265 nýliða á milljarðamæringalista Forbes Wow lifir enn góðu lífi í undraheimi Roosevelt Edwards Rússar flytja inn eldsneyti eftir drónaárásir Trump græddi milljarða dala í dag Forstjóri Boeing lætur af störfum fyrir árslok Bandaríkin höfða mál gegn Apple vegna einokunar Færeyska 757-þotan fær aðra ferð á Vogaflugvöll Boeing 757-þotan fær ekki að lenda í Færeyjum Birta tölvupósta frá Musk Sala á iPhone-símum hríðfellur í Kína Færeyingar fagna fiskflutningaþotu Facebook virkar á ný Bezos tekur aftur fram úr Musk Apple sektað um 270 milljarða af ESB Sjá meira