Undanþágur á reglum aðeins hugsaðar til skamms tíma Margrét Helga Erlingsdóttir skrifar 17. mars 2023 19:37 Endurskoðun barnaverndarlaga er enn í gangi og reiknar ráðherra með að leggja fram frumvarp með miklum breytingum á barnaverndarlögum næsta haust. Vísir/Sigurjón Barnamálaráðherra segir að það eigi að vera undantekning en ekki regla að sveitarfélög nýti sér heimild til að víkja frá reglu um lágmarksfjölda íbúa í umdæmi hverrar barnaverndarþjónustu. Faðir stúlku sem hefur slæma reynslu af barnaverndarnefnd í litlum bæ segir lögin ekki virka sem skyldi en lögin eru sett til að tryggja faglega og óháða þjónustu við börn.
Í gær sögðu feðgin, sem nú höfða skaðabótamál gegn Seltjarnarnesi vegna þáverandi barnaverndarnefndar, að lög um lágmarksíbúafjölda virkuðu ekki sem skyldi vegna undanþága frá reglunni sem hægt er að sækja um og slíkt sé til þess fallið að bitna á börnum. Þau vilja í ljósi sinnar reynslu passa að öll börn geti fengið óháða og faglega þjónustu. Sjá nánar: Krefjast breytinga og skaðabóta Í lögunum er heimild til að víkja frá skilyrðinu um sex þúsund íbúa lágmark, til dæmis vegna landfræðilegra ástæðna og ef næg fagþekking er til staðar sem og samningur um umdæmisráð. Barnamálaráðherra segir að ráðuneytið eigi í samtali við sveitarfélög um nákvæmlega þetta. „Við leggjum höfuðáherslu á að þessi stærðarmörk séu virkt. Í einhverjum tilvikum er verið að biðja um undanþágur til ákveðins tíma en við erum í samtali við einstaka sveitarfélög allt í kringum landið vegna þess að hugsunin er sú að við vinnum þetta á það stórum svæðum, með það miklum íbúafjölda að það sé dregið úr líkum á því að einhvers konar tengsl myndist. Reglan um lágmarksfjölda íbúa var sett á til að koma í veg fyrir nálægð starfsmanns og skjólstæðings og til að reyna að tryggja að ákvarðanir sem varða börn séu teknar af óháðum aðila. „Við vitum það allt í kringum landið að það eru dæmi um slíkt og það er það sem við viljum sporna við.“ Ráðherra leggur áherslu á að umræddar undanþágur séu hugsaðar til skamms tíma og til að aðstoða sveitarfélög við að innleiða lögin. „Á einstaka landsvæðum getur það verið þannig að landfræðileg staða og annað slíkt geri það að verkum að þetta sé til lengri tíma en undanþágur eiga ekki að vera almenn regla.“ Endurskoðun barnaverndarlaga er enn í gangi og reiknar ráðherra með að leggja fram frumvarp með miklum breytingum á lögunum næsta haust.
Kompás Barnavernd Seltjarnarnes Sveitarstjórnarmál Tengdar fréttir Seltjarnarnesbær biður Margréti Lillý afsökunar Seltjarnarnesbær biður Margréti Lillý Einarsdóttur, sem þola mátti ofbeldi og vanrækslu í æsku, afsökunar. Bæjarfulltrúi segir málið endurspeglast af meðvirkni og frændhygli og semja eigi um miskabætur. 26. nóvember 2019 19:00 Lokuð á heimilinu með geðveikri móður 17 ára stúlka segir barnaverndarnefnd, skólakerfið og samfélagið allt á Seltjarnarnesi hafa brugðist sér með því að hafa litið framhjá og ekki gert viðeigandi ráðstafanir vegna vanrækslu og ofbeldis sem hún varð fyrir alla æsku sína. 25. nóvember 2019 09:00 Krefjast breytinga og skaðabóta: „Þetta eru ár sem ég fæ ekki til baka“ Ung kona sem ólst upp við vanrækslu og ofbeldi móður án eiginlegra afskipta barnaverndaryfirvalda á Seltjarnarnesi hefur ásamt föður sínum höfðað skaðabótamál á hendur bænum. Þau krefjast breytinga á barnaverndarkerfinu til að koma í veg fyrir að fleiri börn „verði rænd æskunni,“ líkt og feðginin komast að orði. 16. mars 2023 19:49 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Meint framhjáhald og sambandsslit í stunguárásarmáli Innlent Vildi heimsækja krabbameinssjúka móður sína en vísað úr landi Innlent Hjól undan strætó braut svalir á annarri hæð Innlent Um 800.000 Evrópubúar taldir hafa fallið fyrir kínverskri svikamyllu Erlent Neyðast óvænt til að tæma laugina Innlent Fjöldaúrsagnir kvenna úr mannkyninu Innlent „Þetta getur ekki annað en endað með algjörum ósköpum“ Innlent Enok ákærður fyrir að fleygja manni niður tröppur og berja annan Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Bandaríkjamenn stöðvuðu vopnasendingu til Ísrael í síðustu viku Erlent Fleiri fréttir Kannabis en ekki kjólar í kassanum Miklar verðbólguvæntingar halda vöxtunum uppi Halla Hrund áfram efst Fjöldaúrsagnir kvenna úr mannkyninu Leki kom að bát út af Barða Óbreyttir stýrivextir, fangamál og dræmt Eurovision áhorf Forsetaefni takast á um forsetavaldið „Þetta getur ekki annað en endað með algjörum ósköpum“ Hjól undan strætó braut svalir á annarri hæð Bein útsending: Bjarkey kynnir lagareldisfrumvarpið Neyðast óvænt til að tæma laugina Bein útsending: Þrjátíu ár af EES-samstarfi Drógu fiskibát sem fékk veiðarfæri í skrúfuna til hafnar Meint framhjáhald og sambandsslit í stunguárásarmáli Stjórn Íslensku óperunnar afar gagnrýnin á frumvarp um Þjóðaróperu Vildi heimsækja krabbameinssjúka móður sína en vísað úr landi Fyrsta flugið til Íslands var hluti heimsviðburðar Öllum aðgerðum aflýst og flugfarþegar geta andað léttar Bein útsending frá samstöðutónleikum í Háskólabíó í opinni dagskrá Skelfilegt að þurfa grípa til hópuppsagna Nýtt sanngirnisbótafrumvarp gæti komið fram Atburðirnir fyrir botni Miðjarðarhafs því sem næst „óraunverulegir“ Engri kirkju hollt að vera of nálægt ríkinu Samþykktu tillögu Sjálfstæðisflokksins Reynt til þrautar að ná samningum áður en aðgerðir skella á Júróvisíon í skugga stríðsreksturs og sársaukafullar uppsagnir Enok ákærður fyrir að fleygja manni niður tröppur og berja annan Undirbúa hópuppsögn hjá Grindavíkurbæ Töluverð óvissa um framvindu jarðhræringanna Gæsluvarðhald yfir manninum framlengt Sjá meira
Seltjarnarnesbær biður Margréti Lillý afsökunar Seltjarnarnesbær biður Margréti Lillý Einarsdóttur, sem þola mátti ofbeldi og vanrækslu í æsku, afsökunar. Bæjarfulltrúi segir málið endurspeglast af meðvirkni og frændhygli og semja eigi um miskabætur. 26. nóvember 2019 19:00
Lokuð á heimilinu með geðveikri móður 17 ára stúlka segir barnaverndarnefnd, skólakerfið og samfélagið allt á Seltjarnarnesi hafa brugðist sér með því að hafa litið framhjá og ekki gert viðeigandi ráðstafanir vegna vanrækslu og ofbeldis sem hún varð fyrir alla æsku sína. 25. nóvember 2019 09:00
Krefjast breytinga og skaðabóta: „Þetta eru ár sem ég fæ ekki til baka“ Ung kona sem ólst upp við vanrækslu og ofbeldi móður án eiginlegra afskipta barnaverndaryfirvalda á Seltjarnarnesi hefur ásamt föður sínum höfðað skaðabótamál á hendur bænum. Þau krefjast breytinga á barnaverndarkerfinu til að koma í veg fyrir að fleiri börn „verði rænd æskunni,“ líkt og feðginin komast að orði. 16. mars 2023 19:49