Gripinn með nautalundir í buxnaskálminni

Þjófur í verslun í hverfi 108 var gripinn með tvær …
Þjófur í verslun í hverfi 108 var gripinn með tvær nautalundir í buxnaskálminni. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Tilkynnt var um þjófnað í verslun í hverfi 108 í Reykjavík í dag. Þegar lögregla kom á staðinn og leitaði á hinum grunaða komu í ljós tvær nautalundir í buxnaskálm hans. 

Þetta kemur fram í dagbók lögreglu. 

Í miðborginni var tilkynnt um líkamsárás þar sem maður lamdi annan í andlitið. Málið er í rannsókn. Þá var einnig tilkynnt um aðila með ætlað þýfi undir höndum í hverfi 105. 

Fjúkandi trampólín og laus hross 

Í hverfi 225 var tilkynnt um fjúkandi trampólín, enda gul viðvörun í gildi fyrir höfuðborgarsvæðið. Þá var í tvígang tilkynnt um þjófnað úr verslun í Árbænum og í hverfi 270 var tilkynnt um laus hross.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert