Hljóðleikhús Þjóðleikhússins hefur göngu sína annað kvöld klukkan átta. Hljóðleikhúsið verður í beinni útsendingu á vef leikhússins og á Facebook. Fyrsta sýning er Skugga Sveinn í leikstjórn Benedikts Erlingssonar en verkið er flutt af leikurum Þjóðleikhússins.
Alla fimmtudaga í aðventunni mun Þjóðleikhúsið vera með beinar útsendingar í nýstofnuðu Hljóðleikhúsi og flytja landsmönnum þekktar perlar leiklistarsögunnar í bland við verk sem lítið hafa verið leikin. Útsendingarnar verða í anda hins klassíska útvarpsleikhúss sem Íslendingar þekkja flestir all vel.
Dagskráin er klár fram að jólum en alls verða fimm verk leikin. Sem kunnugt er liggur hefðbundið sýningarhald niðri í Þjóðleikhúsinu eins og öðrum sviðslistastofnunum í landinu vegna Covid-19. Þjóðleikhúsið hefur hins vegar efnt til fjölda verkefna á meðan og er hljóðleikhúsið hið nýjasta sem kynnt er. Fyrir jólin verður leik- og grunnskólabörnum boðið á leiksýningar á virkum dögum um leið og aðstæður leyfa – en fleiri ný verkefni verða kynnt á næstunni.
Dagskrá Hljóðleikhússins fram að jólum
19. nóvember - Skugga Sveinn eftir Matthías Jochumsson í leikstjórn Benedikts Erlingssonar
26. nóvember - Rung læknir eftir Jóhann Sigurjónsson í leikstjórn Vigdísar Hrefnu Páldóttur
3. desember - Nýársnóttin eftir Indriða Einarsson í leikstjórn Hörpu Arnardóttur
12. desember - Dóttir Faraós eftir Jón Trausta í leikstjórn Önnu Maríu Tómasdóttur
17. desember - Ævintýri á gönguför eftir Hostrup í leikstjórn Hilmis Snæs Guðnasonar