531 smitaður í þremur stærstu hópsýkingunum Kristín Ólafsdóttir skrifar 15. október 2020 10:59 Tvær af þremur stærstu hópsýkingunum má rekja til skemmtanahalds. Vísir/vilhelm
Á sjötta hundrað hafa greinst með kórónuveiruna í þremur stærstu hópsýkingum faraldursins. Stærsta sýkingin tengist Hnefaleikafélagi Kópavogs en hinar tvær skemmtanahaldi. Þá hefur tekist að rekja að minnsta kosti tíu aðrar hópsýkingar sem hver og ein telur 30 til 50 manns. Yfir fimmtán hundruð hafa greinst með veiruna í þriðju bylgju faraldursins sem miðað er við að hafi hafist um miðjan september. Raðgreining Íslenskrar erfðagreiningar hefur leitt í ljós að af þeim sem greinst hafa í seinni bylgjunni hafa 1.120 sýkst af veiru af sömu gerð, veiru sem nefnd hefur verið „bláa veiran“. Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir sagði á upplýsingafundi almannavarna á mánudag að stærstu hópsýkingar, sem rekja mætti til líkamsræktarstöðvar og skemmtistaða, í þessari bylgju faraldursins teldu nú einhver hundruð manns. Kom af stað fimm minni hópsýkingum Fram kemur í svari almannavarna við fyrirspurn Vísis að stærsta hópsýkingin telji 235 einstaklinga. Sýkingin er rakin til Hnefaleikafélags Kópavogs en þar greindust 55 með veiruna, líkt og RÚV greindi frá í gær. Veiran hafi síðan dreift sér áfram til 180 annarra og komið af stað að minnsta kosti fimm minni hópsýkingum. Þær tengjast meðal annars skólum, líkamsrækt og skemmtistöðum. Mjög einföld skýringarmynd af einni hópsýkingunni. Myndin segir ekkert til um í hvaða röð einstaklingar greinast heldur sýnir aðeins tengsl á milli smita. Næststærsta hópsýkingin telur 219 einstaklinga en hún tengist skemmtistað í miðbæ Reykjavíkur. Þar smituðust að minnsta kosti 45 á sama tíma og hefur veiran svo breiðst áfram til 174 annarra. Út frá þessu smiti hafa farið af stað fimm minni hópsýkingar, meðal annars í skólum og leikskólum. Þriðja stærsta hópsýkingin er frá því í lok sumars. Þar voru 77 smit rakin saman tengd skemmtanahaldi. Þar greindust 16 einstaklingar með veiruna á sama stað og tíma, sem leiddi til smita hjá rúmlega 50 öðrum. Þar á meðal greindust einstaklingar á leikskólum og sjúkrastofnun. Rakning hefur einnig leitt í ljós að minnsta kosti 10 aðrar sýkingar þar sem 30-50 einstaklingar hafa smitast. Tengjast þær nær alltaf stöðum þar sem margir koma saman, t.d. skemmtistöðum, veitingastöðum, skólum, líkamsræktarstöðvum o.s.frv.
Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Samkomubann á Íslandi Næturlíf Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið „Lífið heldur áfram eftir svona áfall“ Innlent „Skrímsladeildin“ hafi skorið upp herör gegn mótframbjóðendum Katrínar Innlent Sló til starfsmanns og beit viðskiptavin Innlent Halla Hrund eigi langt í land með að tryggja sér embættið Innlent Hvernig ætlar ríkið að sækja milljónirnar 360 sem Haraldur gaf? Innlent Sú sem var oftast nefnd ekki ein af fjórum efstu í könnunum Innlent Hefur ekki áhuga á slúðurfréttum af öðrum frambjóðendum Innlent Ríflega fjörutíu prósent líst illa á Katrínu Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Varaforsetaefni í bobba vegna hundsdráps og meints fundar með Kim Erlent Fleiri fréttir Öruggara Suðurland“ – nýtt og spennandi verkefni Sú sem var oftast nefnd ekki ein af fjórum efstu í könnunum Landsmenn ánægðir með frammistöðu Höllu Tómasdóttur í kappræðunum Sló til starfsmanns og beit viðskiptavin „Skrímsladeildin“ hafi skorið upp herör gegn mótframbjóðendum Katrínar Hefur ekki áhuga á slúðurfréttum af öðrum frambjóðendum Tólf tíma tökudagar og svo forsetaframboð Hvernig ætlar ríkið að sækja milljónirnar 360 sem Haraldur gaf? Flottustu Mustang bílarnir landsins til sýnis í dag Halla Hrund eigi langt í land með að tryggja sér embættið Rýnt í forsetakappræður og fylgst með Bakgarðshlaupi „Ég get ekki annað en sagt satt“ Ríflega fjörutíu prósent líst illa á Katrínu „Lífið heldur áfram eftir svona áfall“ Sigu niður í Gretti sterka og dældu úr honum sjó Ók á tvö hundruð með lögguna á hælunum Sólríkasta byrjun árs í Reykjavík í 77 ár Hafa rukkað þá sem valda sinubruna um kostnað við útkall Ótrúlegustu aðskotahlutir gera óskunda í dósatalningarvélum Fjöldi verkfallsboðana á Keflavíkurflugvelli áhyggjuefni Kosið um sameiningu Húna- og Skagabyggðar í júní Nýjustu skoðanakannanir, verkfallsaðgerðir á flugvellinum og týndur gaffall Halla Hrund líka vinsæll annar kostur Kolbeinn hafi strokið kynfæri stúlkunnar ítrekað Segja lýðræðis- og mannréttindabakslag staðreynd Ný sendiskrifstofa opnuð í Síerra Leóne Baldur segir niðurstöður nýjustu kannana vonbrigði Halla Hrund mælist með mest fylgi í nýrri könnun Maskínu Tilvísunum vegna skekkju á höfuðkúpu ungbarna fjölgað mikið Fréttaskýring Maríu Sigrúnar kemur út á mánudag Sjá meira