Daninn kominn með leikheimild

Lasse Petry (t.h.) í leik með Val gegn FH sumarið …
Lasse Petry (t.h.) í leik með Val gegn FH sumarið 2019. mbl.is/Hari

Daninn Lasse Petry er kominn með leikheimild hjá FH og verður því væntanlega í leikmannahópi liðsins í kvöld þegar það mætir KA á Dalvíkurvelli í Bestu deild karla í knattspyrnu.

Petry kom til FH frá danska liðinu HB Köge á dögunum en var ekki kominn með leikheimild þegar FH gerði 2:2-jafntefli við gamla lið Petry, Val.

Hinn þrítugi Petry lék við góðan orðstír hjá Val sumrin 2019 og 2020 en liðið varð Íslandsmeistari seinna sumarið.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert