Nítján mánuðir síðan kraftaverkið í París færði Solskjær framtíðarstarfið Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 20. október 2020 14:31 Ole Gunnar Solskjær fagnar sigri Manchester United á Parc des Princes í París 6. mars 2019. Getty/Julian Finney
Ole Gunnar Solskjær er mættur aftur með lið sitt til borgarinnar þar sem hann vann sinn stærsta sigur sem knattspyrnustjóri Manchester United fyrir 594 dögum en það var sigurinn sem öðrum fremur færði honum framtíðarstjórastarf hjá Manchester United. Paris Saint Germain tekur í kvöld á móti Manchester United í riðlakeppni Meistaradeildarinnar. Leikurinn verður sýndur beint á Stöð 2 Sport 4 og hefst útsendingin klukkan 18.50. Það þykir því við hæfi að rifja upp stærstu stund Ole Gunnar Solskjær sem knattspyrnustjóra Manchester United. "Of course everyone wants to be in the Champions League and play the top teams," says Ole."We ve drawn last season s finalists, semi-finalists and this is the first chance we'll have to play the best, which will be the biggest challenge for this team."#MUFC #UCL pic.twitter.com/wXI6CBSZQh— Manchester United (@ManUtd) October 19, 2020 Það bjuggust örugglega fáir við því að Ole Gunnar Solskjær yrði framtíðar knattspyrnustjóri Manchester United þegar Jose Mourinho var rekinn í desember 2018. Líkurnar jukust vissulega þegar hann tók við liðinu tímabundið en flestir voru á því að svo yrði kallað á stærra nafn. Manchester United liðið vann hins vegar átta fyrstu leikina undir hans stjórn þar af sex fyrstu deildarleikina. Ole Gunnar var kosinn knattspyrnustjóri mánaðarins í sínum fyrsta heila mánuði. United liðið náði alls í 25 stig í fyrstu níu deildarleikjum sínum undir stjórn Solskjær. Fyrsta tap Solskjær sem knattspyrnustjóra Manchester United kom aftur á móti á heimavelli á móti Paris Saint Germain í Meistaradeildinni. Þetta var fyrri leikur liðanna í sextán liða úrslitunum og auk þess að tapa 2-0 á heimavelli þá missti United einnig Paul Pogba í leikbann en hann hafði verið frábær eftir að Solskjær mætti á svæðið. Paris Saint Germain var með stjörnuprýtt lið sem var búið að bíða lengi eftir því að fara alla leið í Meistaradeildinni. Útlitið var því ekki bjart og tap í seinni leiknum hefði mögulega getað þýtt að yfirmenn Manchester United myndu finna sér nýjan knattspyrnustjóra um sumarið. watch on YouTube Ole Gunnar Solskjær og lærisveinum hans tókst hins vegar að fara til Parísar og sækja sér sigurinn sem liðið þurfti. Romelu Lukaku kom Manchester United í 2-0 á fyrsta hálftímanum og Marcus Rashford tryggði United síðan 3-1 sigur og sæti í átta liða úrslitunum með marki úr vítaspyrnu á fjórðu mínútu í uppbótatíma. Þetta var í fyrsta sinn í sögu Meistaradeildarinnar sem lið tapar fyrri leiknum 2-0 á heimavelli en kemst samt áfram. Eftir þetta litla kraftaverk var fátt sem kom í veg fyrir að Solskjær yrði ráðinn knattspyrnustjóri til framtíðar. Leikurinn fór fram 6. mars og 28. mars skrifaði Solskjær undir þriggja ára samning um að taka við sem fastráðinn knattspyrnustjóri Manchester United. Liðið hafði þá unnið fjórtán af nítján leikjum sínum undir hans stjórn en það var samt sigurinn í París sem stóð upp úr. Þessi sigur í París fyrir nítján mánuðum og fjórtán dögum síðan er líka síðasti sigur Manchester United í Meistaradeildinni undir stjórn Solskjær því liðið komst ekki í Meistaradeildina á síðustu leiktíð.
Meistaradeild Evrópu Mest lesið Þetta gerðist í lokaumferðinni í enska | City meistari og Jóhann Berg kvaddi Enski boltinn Usyk fyrstur til að vinna Fury Sport Telur að Usyk hafi unnið vegna stríðsins í Úkraínu Sport Daníel stórbætti þrjátíu ára Íslandsmet Jóns Arnars Sport Var spáð falli en eru á leið í Meistaradeildina Fótbolti Tapið í gær þýðir að Kane missir af enn einum titlinum Fótbolti Manchester City Englandsmeistari fjórða árið í röð Fótbolti Skytturnar gerðu sitt en horfa samt á eftir titlinum Enski boltinn Klopp segir að Liverpool verði í góðum höndum hjá Slot Enski boltinn „Eins og að spila við landslið Þýskalands nasismans“ Sport Fleiri fréttir Manchester City Englandsmeistari fjórða árið í röð Í beinni: Brighton - Man. Utd. | United mætir Brighton í kveðjuleik De Zerbis Skytturnar gerðu sitt en horfa samt á eftir titlinum Klopp kvaddi með sigri Ísak lagði upp mark í fyrsta byrjunarliðsleiknum Í beinni: Lokaumferðin í enska | Hvaða lið verður meistari? Missti af rauðvínsglasi með Sir Alex Klopp segir að Liverpool verði í góðum höndum hjá Slot Ten Hag segir United í betri stöðu en fyrir ári Tapið í gær þýðir að Kane missir af enn einum titlinum Chelsea sækir undrabarn frá Brasilíu Var spáð falli en eru á leið í Meistaradeildina Ótrúlegir yfirburðir tryggðu tíunda bikarmeistaratitilinn Stutt gaman hjá Birki er Brescia missti af sæti í efstu deild AC Milan hleypti Torino inn í Evrópubaráttu Keflavík og Grindavík tryggðu sér sæti í átta liða úrslitum Jón Daði og félagar náðu ekki að koma sér upp um deild Hayes kvaddi Chelsea með fimmta titlinum í röð og Dagný komin í hóp Leiknir vann Breiðholtsslaginn og Njarðvík með fullt hús stiga Reus kvaddi með draumamarki og Leverkusen kláraði tímabilið ósigrað De Zerbi hættir hjá Brighton Foden valinn bestur á Englandi Sandra María lagði upp bæði mörk Þórs/KA í bikarsigri á Dalvík Hélt upp á landsliðsvalið með marki Tvisvar sinnum rekinn á sama deginum Arteta vonast eftir hjálp frá Moyes: „Vonandi gerist eitthvað dásamlegt“ Klökkur Jóhann Berg beygði af í viðtali Jóhann Berg fer frá Burnley í sumar Íhuga að reka Xavi sem hætti við að hætta Klopp myndi kjósa með afnámi VAR Sjá meira