Trump birti „falskt og hlutdrægt“ viðtal fyrir 60 mínútur Samúel Karl Ólason skrifar 22. október 2020 19:40 Donald og Melania Trump á leið um borð í flugvél forsetans í dag. AP/Evan Vucci
Donald Trump, Bandaríkjaforseti, stóð við stóru orðin í dag og birti upptöku Hvíta hússins af viðtali hans við Lesley Stahl, fréttakonu 60 mínútna. Trump stöðvaði viðtalið á þriðjudaginn og kvartaði yfir því að Stahl væri ósanngjörn og hlutdræg. Strax um kvöldið sagði forsetinn svo á Twitter að hann væri að íhuga að birta upptöku af viðtalinu til að sýna fram á hvernig „FALSKT OG HLUTDRÆGT“ viðtal væri. Forsetinn sagði að fólk ætti að skoða þetta og bera saman við viðtöl Joe Biden, mótframbjóðanda hans. ...Everyone should compare this terrible Electoral Intrusion with the recent interviews of Sleepy Joe Biden!— Donald J. Trump (@realDonaldTrump) October 20, 2020 Upptakan sem Trump birti var tekin upp af starfsmönnum Hvíta hússins og sýnir bara forsetann sjálfan. CBS segir að Hvíta húsið hafi heitið því að nota upptökuna eingöngu í skjalasafn ríkisstjórnarinnar. Hún byrjar á því að Stahl spyr Trump hvort hann sé tilbúinn fyrir erfiðar spurningar og hann biður hana um að vera sanngjarna. Stahl sagði þá að síðast hefði hann verið klár í slaginn en Trump sagðist ekki vera það að þessu sinni. Hann sagðist ekki tilbúinn til að svara erfiðum spurningum og gagnrýndi Stahl fyrir að spyrja Biden ekki erfiðra spurninga. Myndbandið sýnir að hann ver miklum tíma í að saka Stahl um að vera ósanngjarna og hlutdræga þegar hún gengur á hann að svara spurningum um meðhöndlun ríkisstjórnar hans á faraldri nýju kórónuveirunnar, efnahagsmál og ýmislegt annað. Stahl spurði Trump fljótt að því hvert hans helsta áherslumál fyrir komandi kjörtímabil væri. Þá sagði Trump að hann hefði byggt upp besta efnahag í sögu Bandaríkjanna, sem er ekki rétt, og benti hún honum á að svo væri ekki. „Það er víst satt,“ sagði Trump og bætti við skömmu seinna: „Þú myndir ekki segja við Biden það sem þú sagðir við mig.“ Í tísti sem Trump birti fyrr í dag sagði hann fylgjendum sínum að taka eftir framígripum Sthal og reiði hennar og bera það saman við „ítarleg, flæðandi og „mikilfenglega snilldarleg““ svör hans. I will soon be giving a first in television history full, unedited preview of the vicious attempted takeout interview of me by Lesley Stahl of @60Minutes. Watch her constant interruptions & anger. Compare my full, flowing and magnificently brilliant answers to their Q s . https://t.co/L3szccGamP— Donald J. Trump (@realDonaldTrump) October 22, 2020 Undir enda myndbandsins gagnrýndi Trupm Stahl aftur fyrir að spyrja Biden ekki erfiðra spurninga. Þá sagði hún að Biden væri ekki forseti. „Afsakaðu mig Lesley, þú sagðir við mig, það fyrsta sem þú sagðir við mig var: Ertu tilbúinn fyrir erfiðar spurningar? Svona segir maður ekki. Svona segir maður ekki,“ sagði Trump. Mike Pence, varaforseti, átti svo að mæta einnig í viðtalið en Trump hætti við það og stöðvaði viðtalið. Í Facebookfærslu þar sem myndbandið var birt stendur: „Sjáið hlutdrægnina, hatrið og dónaskapinn frá 60 mínútum og CBS. Þulur kvöldsins, Kristen Welker, er mun verri!“ Welker mun stýra kappræðum Trump og Biden í nótt.
Donald Trump Forsetakosningar í Bandaríkjunum Bandaríkin Tengdar fréttir Hæstaréttardómaraefni Trump samþykkt í þingnefnd Dómsmálanefnd öldungadeildar Bandaríkjaþings samþykkti tilnefningu Donalds Trump forseta á Amy Coney Barrett sem hæstaréttardómara þrátt fyrir mótbárur demókrata í dag. Repúblikanar breyttu þingsköpum til að geta haldið áfram með staðfestinguna. 22. október 2020 13:48 Telja Írani að baki ógnandi tölvupóstum til bandarískra kjósenda Bandarískar leyniþjónustustofnanir sökuðu Írani um að standa að baki tölvupósta sem voru sendir kjósendum í nokkrum ríkjum og virtust eiga að ógna þeim til að kjósa Donald Trump forseta. Telja þær að bæði Rússar og Íranir hafi komist yfir gögn um kjósendur. 22. október 2020 10:06 Obama líkti Trump við brjálaðan frænda Barack Obama fyrrverandi forseti Bandaríkjanna kom fram á kosningafundi í Pennsylvaníu í gær þar sem hann fór hörðum orðum um eftirmann sinn í Hvíta húsinu, Donald Trump. 22. október 2020 07:40 Trump krefst þess að Barr rannsaki Biden Donald Trump, Bandaríkjaforseti, hefur kallað eftir því að hinn umdeildi dómsmálaráðherra William Barr hefji rannsókn á Joe Biden, mótframbjóðanda Trump og syni hans Hunter Biden. 20. október 2020 22:33 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Litaðir seðlar til skoðunar og málið á mjög viðkvæmu stigi Innlent Sagðist ætla að nota tíu milljón króna kókaín allt sjálfur Innlent Sér eftir Landsdómsmálinu: „Ég myndi aldrei gera þetta svona aftur“ Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Íslenskar stjörnur fái peninga að gjöf til að leggja undir í veðmálum Innlent Gæti dregið til tíðinda á næstu klukkustundum Innlent Hjólastólinn í „tengdamömmuboxi“ á toppi bílsins Innlent Rúður skotnar í spað í verslun innflytjenda Innlent Allt að fimm milljóna króna sekt á hvern fisk Innlent Hver er Kári Hansen? Innlent Fleiri fréttir Trump sektaður um meira en milljón króna Rússar sagðir nota skotflaugar frá Norður-Kóreu Þrettán ára drengur stunginn til bana með sverði Særði minnst fimm með sverði í Lundúnum Íslendingur sem lúbarði lögreglumenn í Varsjá þarf að borga brúsann Fjórir lögreglumenn skotnir til bana í Charlotte Rostungur sem fannst í fyrra drapst af völdum fuglaflensu Hvetur Hamas til að ganga að rausnarlegum tillögum Ísrael Flugvöllur Færeyinga fær að taka við stærri þotum Yousaf segir af sér sem ráðherra og formaður Skoska þjóðarflokksins Sánchez hættir við að segja af sér Grafið undan fjölmiðlafrelsinu víða í Evrópu Vopnahlé í sjónmáli? Tveir látnir eftir að bíll hafnaði í sjónum við Stokkhólm Fjölmenn mótmæli vegna ofbeldisbylgju í Ástralíu Vasaúr ríkasta manns Titanic seldist á 210 milljónir Þúsundir hvöttu Sánchez til að segja ekki af sér Skoða að færa Mónu Lísu í eigið herbergi Harvey Weinstein lagður inn á spítala Þingmaður hleypti af skoti fyrir utan skemmtistað Rýma dómshús vegna sprengjuhótunar Dómstóll fyrirskipar handtöku landbúnaðarráðherra Selenskís Ákvörðun áfrýjunardómstólsins áfall og stórt skref aftur á bak Trump líklegur til að græða á úrskurði Hæstaréttar Dómi Harvey Weinstein snúið við Tekur fyrir að hafa verið „hermaður Hitlers“ Maður á sextugsaldri sagður hafa stungið grunnskóladreng Sánchez íhugar að segja af sér vegna meintrar spillingar Spaðar Rauðu myllunnar hrundu til jarðar í nótt Skipulögðu árásir í Þýskalandi og víðar í nafni ISKP Sjá meira
Hæstaréttardómaraefni Trump samþykkt í þingnefnd Dómsmálanefnd öldungadeildar Bandaríkjaþings samþykkti tilnefningu Donalds Trump forseta á Amy Coney Barrett sem hæstaréttardómara þrátt fyrir mótbárur demókrata í dag. Repúblikanar breyttu þingsköpum til að geta haldið áfram með staðfestinguna. 22. október 2020 13:48
Telja Írani að baki ógnandi tölvupóstum til bandarískra kjósenda Bandarískar leyniþjónustustofnanir sökuðu Írani um að standa að baki tölvupósta sem voru sendir kjósendum í nokkrum ríkjum og virtust eiga að ógna þeim til að kjósa Donald Trump forseta. Telja þær að bæði Rússar og Íranir hafi komist yfir gögn um kjósendur. 22. október 2020 10:06
Obama líkti Trump við brjálaðan frænda Barack Obama fyrrverandi forseti Bandaríkjanna kom fram á kosningafundi í Pennsylvaníu í gær þar sem hann fór hörðum orðum um eftirmann sinn í Hvíta húsinu, Donald Trump. 22. október 2020 07:40
Trump krefst þess að Barr rannsaki Biden Donald Trump, Bandaríkjaforseti, hefur kallað eftir því að hinn umdeildi dómsmálaráðherra William Barr hefji rannsókn á Joe Biden, mótframbjóðanda Trump og syni hans Hunter Biden. 20. október 2020 22:33