Fótbolti

For­seti Barcelona segir af sér | Verður Messi á­fram?

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Josep Maria Bartomeu á körfuboltaleik hjá Barcelona nýverið.
Josep Maria Bartomeu á körfuboltaleik hjá Barcelona nýverið. Joan Valls/Getty Images

Svo virðist sem Lionel Messi hafi haft betur í valdabaráttu spænska stórliðsins Barcelona en forseti félagsins - Josep Maria Bartomeu - sagði af sér nú í kvöld.

Messi hefur staðið í stappi við forráðamenn spænska félagsins allt síðan félagið beið afhroð gegn Bayern Munchen í Meistaradeild Evrópu á síðustu leiktíð. Tapaði spænska félagið 8-2 og fór því í sumarfrí með skottið á milli lappanna. 

Í kjölfarið brutust út allskyns fréttir að Messi væri ósáttur með lífið og tilveruna. Ekki hjálpaði til að einn af hans betri vinum, Luis Suarez, var svo gott sem rekinn frá félaginu. Hann leikur nú með Atletico Madrid.

Í sumar óskaði Messi svo eftir sölu frá félaginu en hann vildi meina að ákvæði í samningi hans myndi gera honum kleift að fara frítt frá félaginu. Það gekk ekki eftir og hann er enn leikmaður Börsunga.

Hvort uppsögn Bartomeu breyti skoðun Messi á eftir að koma í ljós. Gengið liðsins á þessari leiktíð hefur ekki verið frábært en Börsungar eru í 12. sæti spænsku úrvalsdeildarinnar með sjö stig eftir fimm leiki.


Tengdar fréttir

Segir að hann muni ávallt elska Barcelona

Eftir að hafa haldið knattspyrnuheiminum í gíslingu undanfarnar vikur opinberaði Lionel Messi loks í dag að hann yrði áfram hjá spænska stórveldinu Barcelona.

Messi verður áfram hjá Barcelona

Lionel Messi vill ekki enda ferill sinn hjá Barcelona inn í réttarsal og hefur ákveðið að klára síðasta tímabilið í samningi sínum.

Úrslitastund í Messi-málinu í dag

Faðir og umboðsmaður Lionels Messi er mættur til Barcelona til að reyna að höggva á hnútinn í deilu sonar síns og Katalóníufélagsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×