Amnesty yfirgefur Hong Kong vegna umdeildra öryggislaga Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir skrifar 25. október 2021 13:13 Amnesty International mun loka skrifstofum sínum í Hong Kong fyrir árslok. EPA-EFE/JEROME FAVRE Mannréttindasamtökin Amnesty International tilkynntu það í dag að þau muni loka skrifstofum sínum í Hong Kong vegna umdeildra öryggislaga, sem yfirvöld í Kína komu á í sjálfsstjórnarhéraðinu. Lögin hafa gert mannréttindasamtökum erfitt fyrir að starfa á eigin forsendum, án þess að sæta viðurlögum yfirvalda.
Anjhula Mya Singh Bais, formaður alþjóðastjórnar Amnesty, sagði í yfirlýsingu í morgun að skrifstofurnar tvær muni loka fyrir árslok. Vísaði hún til þess að lögreglan í Hong Kong hafi í auknum mæli snúið spjótum sínum að mannréttindasamtökum og frjálsum fjölmiðlum sem hafi orðið til þess að meira en 35 samtök og hópar hafi leyst upp vegna laganna á þessu ári. Fréttastofa Reuters greinir frá. „Þessi erfiða ákvörðun var tekin vegna öryggislaga Hong Kong en þau hafa gert það nær ómögulegt fyrir mannréttindasamtök að starfa frjálst í Hong Kong án hættu á refsiaðgerðum,“ sagði Singh Bais í yfirlýsingunni. Hong Kong hefur í gegn um tíðina verið miðstöð mannréttinda- og góðgerðasamtaka í Asíu, hafandi verið frjálst og öruggt svæði undanfarna áratugi. Eftir að öryggislögin umdeildu voru tekin í gildi í héraðinu í fyrra hefur staðan breyst nokkuð mikið. Á þessu ári hafa til að mynda nokkur stéttafélög, fjölmiðlar og góðgerðasamtök þurft að loka dyrum sínum en önnur samtök fært starfsemi sína yfir til Taívan. Lögin breyttu héraðinu Lögin tóku gildi í Hong Kong í fyrra að frumkvæði stjórnvalda í Peking. Hong Kong hefur hingað til verið sjálfsstjórnarhérað en með þessu segja gagnrýnendur að héraðið sé nær alveg undir stjórn kínverskra stjórnvalda. Lögin voru sett í skjóli óeirða sem skuku héraðið árið 2019. Fjöldamótmæli höfðu staðið yfir í Hong Kong í marga mánuði þegar lögin voru sett og var ástæðan, að sögn stjórnvalda, þau að koma þyrfti á lögum og reglum að nýju í kjölfar óeirðanna. Lögin eru hins vegar sögð skerða réttindi borgara verulega, og mega þeir til að mynda ekki tala gegn kínverskum stjórnvöldum. Mótmælendur hafa undanfarin ár kallað eftir því að kínversk stjórnvöld standi við loforð sín um að borgin njóti frelsis, sjálfsstjórnar og sjálfstæðis í framtíðinni undir svokallaðri „eitt land, tvö kerfi,“ tilhögun. Síðan lögin tóku gildi hafa yfirvöld hins vegar sett á strangar reglur og brotið frjálsa orðræðu og réttinn til mótmæla á bak aftur. Margir aðgerðasinnar fyrir sjálfstæði hafa verið fangelsaðir eða sendir í útlegð.
Hong Kong Mannréttindi Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Mikill viðbúnaður vegna bráðra veikinda Innlent Ráðherrar hafi verið ítrekað varaðir við gjöf Haraldar Innlent Sat saklaus í unglingafangelsi í tvö ár Innlent Íransforseti fórst í þyrluslysinu Erlent „Ég stóð bara með sóttvarnalækni“ Innlent Saksóknari Alþjóðlega sakamáladómstólsins vill handtaka Netanjahú og Hamas-liða Erlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Erfitt að ímynda sér meiri harðlínumann en Raisi Innlent Fimm stríðsþristar á leiðinni til landsins Innlent Handtökuskipun á hendur forsætisráðherra og kjaradeila Innlent Fleiri fréttir Spánverjar kalla sendiherrann heim í kjölfar ummæla Milei Sigur fyrir Assange sem fær að áfrýja framsali Saksóknari Alþjóðlega sakamáladómstólsins vill handtaka Netanjahú og Hamas-liða Komst loks út í geim sextíu árum síðar Íransforseti fórst í þyrluslysinu Leitin enn ekki borið árangur Tveir látnir og fimm saknað eftir slys í Dóná Diddy biðst afsökunar á „ófyrirgefanlegri hegðun“ Óljóst hvort þyrlan sé fundin Íranski forsetinn í óljósu þyrluslysi Færeyingar draga í land með ferðamannaskatt Bæjarstjóri sakaður um að vera njósnari: „Enginn veit hver hún er“ Gantz hótar að segja af sér vegna ósættis við Netanjahú Ástand Fico enn alvarlegt Býst við aukinni sókn Rússa Beitti neitunarvaldi gagnvart umdeildum fjölmiðlalögum Myndband sýnir árás Diddy Færeyingar felldu frumvarp um fóstureyðingar Þrjátíu ár fyrir árásina á mann þingforsetans Segir Rússa ekki hafa í hyggju að taka Kharkív Viðtal á Stöð 2 kveikir upp í færeyskum stjórnmálum Reyndi að kveikja í bænahúsi gyðinga og var skotinn til bana Spánverjar neita skipi með vopn innanborðs um að leggja að bryggju „Einfari“ ákærður fyrir tilræðið við Fico Hver er Robert Fico? Neyðarástandi lýst yfir á Nýju-Kaledóníu eftir miklar óeirðir Ágreiningur innan stjórnarinnar brýst upp á yfirborðið Hægriflokkar ná saman um myndun ríkisstjórnar Samið um kappræður í júní og september Fico ekki talinn í lífshættu Sjá meira
Saksóknari Alþjóðlega sakamáladómstólsins vill handtaka Netanjahú og Hamas-liða Erlent
Saksóknari Alþjóðlega sakamáladómstólsins vill handtaka Netanjahú og Hamas-liða Erlent