Gafl fauk af húsi á Siglufirði

Frá Siglufirði.
Frá Siglufirði. mbl.is

Gafl fauk af stóru verksmiðjuhúsnæði á Siglufirði í kvöld en gengið hefur á með hviðum í bænum.

Lögreglunni á Norðurlandi eystra barst tilkynning um óhappið klukkan 19.45 í kvöld.

Búið er að festa gaflinn aftur á húsnæðið og tóku lögreglan og björgunarsveit þátt í því, að sögn varðstjóra hjá lögreglunni.

Spáð er áframhaldandi hvassviðri á Siglufirði í kvöld og í nótt.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert