Segja áhættuna af AstraZeneca mjög litla Heimir Már Pétursson skrifar 7. apríl 2021 19:21 Lyfjaeftirlitsstofnanir Evrópu og Bretlands segja blóðtappa aukaverkanir vegna AstraZeneca mjög sjaldgæfar. Vísir/Vilhelm Fólk er í mun meiri hættu að fá blóðtappa veikist það af Covid 19 en ef það er bólusett með AstraZeneca bóluefninu samkvæmt ítarlegum rannsóknum bæði evrópsku og bresku lyfjastofnanna sem kynntar voru í dag. Ábatinn af notkun efnisins sé til mikilla muna meiri en áhættan sem fylgi því að veikjast af Covid.
Lyfjaeftirlitsstofnanir Evrópu og Bretlands kynntu báðar niðurstöður viðamikilla rannsókna á notkun AstraZenece bóluefninu í dag og komust báðar að sams konar niðurstöðu. Samkvæmt bresku niðurstöðunum eru fjórir af milljón líklegir til að fá blóðtappa eftir bólusetningu með efninu. Áhættan á að fá blóðtappa sé aftur á móti mun meiri hjá þeim sem veikist af Covid 19 en þeim sem eru bólusettir með AstraZeneca. Til að greina mjög sjaldgæfar hliðaverkanir eins og blóðtappa hjá þeim sem hafi verið bólusettir með AstraZeneca þurfi að gefa miklum fjölda efnið. Dr. June Raine forstjóri Lyfjaeftirlitsstofnunar Bretlands. Dr. June Raine forstjóri Lyfjaeftirlitsstofnunar Bretlands segir að í Bretlandi hafi tuttugu milljónum manna verið gefið AstraZeneca. „Á grunni rannsóknargagna vegur virkni bóluefnisins AstraZeneca gegn COVID-19 og tengdri áhættu, sjúkrahúsinnlögn og dauðsföllum þyngra hvað varðar áhættu hjá miklum meirihluta fólks. Rannsókn okkar hefur staðfest enn enn frekar að áhættan sem fylgir þessum meintu, sjaldgæfu aukaverkunum er afar lítil," segir Dr. Raine. Báðar stofnanir segja ábatan af efninu mestan hjá eldri aldurshópum en í öllum aldurshópum frá tuttugu og upp úr komi bóluefnið í veg fyrir að fólk veikist illa af Covid 19. Óhætt ætti að vera að gefa öllum aldurshópum og fólki af báðum kynjum AstraZeneca bóluefnið. Þórólfur Guðnason segir hvert ríki fyrir sig verða að meta hvort og þá fyrir hverja AstraZeneca bóluefnið verði notað.Vísir/Vilhelm Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir segir þetta í samræmi við fyrri niðurstöður. Þessar aukaverkanir sjáist hjá yngra fólki og einkum konum yngri en sextugt. Þess vegna sé efnið aðeins gefið sjötugum og eldri og hugsanlega megi færa aldurinn niður í sextíu og fimm. „Það verður að leggja mat á þetta í ljósi faraldursins í hverju landi. Þar sem faraldurinn er í miklum vexti og miklum gangi er ávinningurinn miklu meiri en áhættan. Í löndum eins og hér þar sem faraldurinn er í lágmarki er áhættan jafnvel meiri en ávinningurinn þannig að ég held að við þurfum að fara varlega í það," segir Þórólfur.
Bólusetningar Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið „Breiðholt mesta fátæktargildra landsins“ Innlent Sigríði þykir ólíklegt að hún nái undirskriftum Innlent Útlagar spreyjaðir gylltir Innlent Tíu sektaðir vegna notkunar nagladekkja Innlent „Ákveðnar efasemdir um ákveðna þætti“ Innlent Dómi Harvey Weinstein snúið við Erlent Tveir létust í banaslysi í Eyjafirði Innlent Spaðar Rauðu myllunnar hrundu til jarðar í nótt Erlent Helga Þórisdóttir komin með lágmarksfjölda meðmæla Innlent Segir borgarstjóra óttalegan vettling Innlent Fleiri fréttir Ögurstund og opnunarhóf hjá frambjóðendum Forsetaslagurinn, leit að eiganda fjármuna og rjómablíða Fjölbreytt verkefni hjá björgunarsveitum í dag Útlagar spreyjaðir gylltir Helga Þórisdóttir komin með lágmarksfjölda meðmæla Sinueldur í Reykjanesbæ Pétur Einarsson leikari látinn Kólnar á öllu landinu eftir óvenjugóðan fyrsta sumardag „Ákveðnar efasemdir um ákveðna þætti“ Fimm teravött af orku og 20 milljarðar í samgöngur Seltjarnarnesbær gengur frá sölu á Safnatröð Sigríði þykir ólíklegt að hún nái undirskriftum Umdeilt frumvarp, íslenskan og sumarveðrið Eiríkur og Bjarni takast á um nefnd um íslenska tungu Ræða mest málefni íslenskunnar á fundum enskumælandi ráðs Tíu sektaðir vegna notkunar nagladekkja „Breiðholt mesta fátæktargildra landsins“ Segir borgarstjóra óttalegan vettling Vilja taka upp auðlindagjald að hætti Norðmanna „Dapurlegt“ að andstæðingar bólusetninga hafi svo mikil áhrif Stefnir í sólríkan og hlýjan sumardag fyrsta víða um land Eigendur sjókvíaeldis þurfa ekki að greiða auðlindagjald Tveir létust í banaslysi í Eyjafirði Veturinn sá kaldasti síðan 1999 Vill rjúfa framkvæmdastopp í orkumálum Kári Stefánsson, ákall um vaxtalækkun og hinsegin list Skemmtiferðaskip um tíu metrum frá strandi við Viðey Kínversk ferðaskrifstofa mátti sín lítils gegn TM Komu litlum fiskibáti til bjargar Þyrlan í loftið vegna slasaðs vélsleðamanns Sjá meira