Skipstjóri ákærður vegna dauða 34 um borð í bandarísku skemmtiskipi Samúel Karl Ólason skrifar 2. desember 2020 10:01 Þessi mynd frá 2. september 2019 sýnir vel hve mikill eldurinn var. 34 dóu í eldsvoðanum. AP/Slökkvilið Santa Barbara Skipstjóri skemmtibátsins Conception hefur verið ákærður vegna dauða 34 farþega hans undan ströndum Kaliforníu í fyrra. Hann er sakaður um 34 manndráp og gæti tæknilega séð verið dæmdur í 340 ára fangelsi.
Eldur kom upp í skipinu snemma morguns í byrjun september í fyrra og voru allir sofandi um borð. 39 manns voru um borð í skipinu og var að mestu um að ræða um áhugakafara sem voru í þriggja daga siglingu. Sex manns sem voru í áhöfn skipsins og sváfu flestir þeirra ofan þilja. Þegar eldurinn kom upp stukku fimm þeirra frá borði og voru í raun þau einu sem komust af. Jerry Nehl Boylan, skipstjórinn, var meðal þeirra. Farþegarnir 33 sváfu í stóru rými neðan þilja með eingöngu einn þröngan stiga sem útgönguleið. Enginn þeirra komst út og talið er að þau hafi dáið vegna reykeitrunar. Auk þeirra dó einn úr áhöfninni sem svaf einnig í sama rými. Þessi mynd frá Rannsóknarnefnd samgönguslysa í Bandaríkjunum sýnir hvernig skipið leit út eftir brunann.AP/NTSB Áhafnarmeðlimirnir sögðu rannsakendum að eldurinn hefði verið of mikill til að bjarga fólki úr farþegarýminu. Hinn 67 ára gamli Boylan er sakaður um að hafa valdið dauða þeirra 34 sem dóu með vanrækslu sinni. Hann hafi til að mynda ekki verið með næturvörð og ekki haldið brunaæfingar og annars konar þjálfun fyrir áhöfn sína eins og lög segja til um, samkvæmt frétt Reuters. Sérfræðingar telja að eldurinn hafi kviknað á svæði þar sem farþegar skipsins voru að hlaða síma sína en ekki hefur verið staðfest að það hafi valdið eldinum, samkvæmt frétt BBC. Hér að neðan má sjá tvær sjónvarpsfréttir frá því í fyrra. Sú fyrri er frá CBS og má þar heyra samskipti áhafnar við björgunaraðila. Í hinni frá CNN var tekið viðtal við Ken Kurtis, eigands Conception.
Bandaríkin Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Halla Hrund fremst í nýrri könnun og Katrín dottin niður í þriðja sæti Innlent Dramatík þegar tveimur var tilkynnt um ólögleg framboð Innlent Ætlaði að ganga frá álverinu og upp á Keflavíkurflugvöll Innlent Ók blindfullur við Grímsvötn og hótaði að drepa alla Innlent Vopnuð rán tíðari en fólk gerir sér grein fyrir Innlent Langt í að þeir nái sér að fullu Innlent Best ef forseti hefur ekki verið í stjórnmálastarfi Innlent Ástand hinnar látnu bar þess merki að henni hefði verið ráðinn bani Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Vopnahlé í sjónmáli? Erlent Fleiri fréttir Sánchez hættir við að segja af sér Grafið undan fjölmiðlafrelsinu víða í Evrópu Vopnahlé í sjónmáli? Tveir látnir eftir að bíll hafnaði í sjónum við Stokkhólm Fjölmenn mótmæli vegna ofbeldisbylgju í Ástralíu Vasaúr ríkasta manns Titanic seldist á 210 milljónir Þúsundir hvöttu Sánchez til að segja ekki af sér Skoða að færa Mónu Lísu í eigið herbergi Harvey Weinstein lagður inn á spítala Þingmaður hleypti af skoti fyrir utan skemmtistað Rýma dómshús vegna sprengjuhótunar Dómstóll fyrirskipar handtöku landbúnaðarráðherra Selenskís Ákvörðun áfrýjunardómstólsins áfall og stórt skref aftur á bak Trump líklegur til að græða á úrskurði Hæstaréttar Dómi Harvey Weinstein snúið við Tekur fyrir að hafa verið „hermaður Hitlers“ Maður á sextugsaldri sagður hafa stungið grunnskóladreng Sánchez íhugar að segja af sér vegna meintrar spillingar Spaðar Rauðu myllunnar hrundu til jarðar í nótt Skipulögðu árásir í Þýskalandi og víðar í nafni ISKP Fyrstu hergögnin eiga að berast til Úkraínu á næstu klukkustundum Segir ekki af sér þrátt fyrir njósnir aðstoðarmannsins Aðstoðarvarnarmálaráðherra ákærður fyrir mútuþægni Upptök eldsins í gömlu kauphöllinni enn ókunn Settur út af sakramentinu fyrir að stýra minningarstund um Navalní Handtóku barnunga öfgamenn eftir stunguárás í Sydney Ekki ólöglegt fyrir konur að brjóta gegn körlum Grunuð um að hafa banað tveimur börnum Vitni greinir frá ráðabruggi og lögmaður Trump fær viðvörun Öldungadeildin samþykkti 95 milljarða dala aðstoð við Úkraínu, Ísrael og Taívan Sjá meira