Leikjavísir

Grínast ekki lengur með FIFA þegar úr­slitin eru í aug­sýn

Tinni Sveinsson skrifar
Birkir Már þekkir þessa tilfinningu ágætlega. Hér fagnar hann marki og andstæðingarnir súpa hveljur á meðan.
Birkir Már þekkir þessa tilfinningu ágætlega. Hér fagnar hann marki og andstæðingarnir súpa hveljur á meðan. Albumm

Birkir Már Sævarsson, Birgir Steinn Stefánsson, Ísleifur Eldur og Logi Snær Stefánsson keppa í FIFA 21 í leikjaþættinum Galið. Þátturinn er gerður af Albumm og kemur út hér á Vísi.

Komið er að seinni undanúrslitum þáttarins. Í þeim fyrri slógu Víkingarnir Kristall Máni og Adam Ægir út tónlistarmennina Bjarka Bomarz og Doctor Victor. 

Klippa: Galið - Birkir og Birgir vs. Logi og Ísleifur

Framleiðendur Galið lofa því að eitthvað óvænt komi fram í þessum þætti en sá síðasti væntanlegur í næstu.

„Já, í þessum næstum því síðasta þætti kemur smá „twist“ í endann. Sjón er sögu ríkari. Það er óhætt er að segja að það sé komin mikil alvara í leikinn enda til mikils að vinna. Playstation 5 frá Senu og forláta GALIÐ faraldsbikar,“ segir Steinar Fjeldsted, ritstjóri Albumm.

Framleiðslufyrirtækið AlbummTV og vefmiðillinn Albumm.is framleiða þessa nýju leikjaþætti í samstarfi við Snorri Bros, Vísi og Stöð 2 Esport. Þættirnir voru teknir upp á veitingastaðnum Le Kock í Hafnarstræti.


Tengdar fréttir

Gátu ekki hamið sig þegar þeir skoruðu mark

Víkingarnir Adam Ægir og Kristall Máni mæta HK-ingnum Ívari Erni og bassaleikaranum Hálfdáni Árnasyni í FIFA 21 í leikjaþættinum Galið. Þátturinn er gerður af Albumm og kemur út á fimmtudögum hér á Vísi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×