Meistararnir úr leik

Leikmenn Fílabeinsstrandarinnar fögnuðu vel og innilega í leikslok.
Leikmenn Fílabeinsstrandarinnar fögnuðu vel og innilega í leikslok. AFP

Alsír er úr leik á Afríkumótinu í knattspyrnu eftir tap gegn Fílabeinsströndinni í E-riðli keppninnar í Kamerún í dag.

Leiknum lauk með 3:1-sigri Fílabeinsstrandarinnar þar sem Franck Kessie, Ibrahim Sangare og Nicolas Pépé skoruðu mörk Fílabeinsstrandarinnar.

Fílabeinsströndin hafnaði í efsta sæti riðilsins og er komin áfram í sextán-liða úrslit keppninnar en Alsír, sem átti titil að verja á mótinu, er úr leik.

Þá er Miðbaugs-Gínea einnig komin áfram í sextán-liða úrslitin eftir 1:0-sigur gegn Síerra Leóne þar sem Pablo Ganet skoraði sigurmark leiksins á 38. mínútu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert