Samþykkt að leggja Nýsköpunarmiðstöð niður Sunna Sæmundsdóttir skrifar 15. apríl 2021 17:42 Nýsköpunarmiðstöð Íslands verður lögð niður samkvæmt frumvarpi sem var samþykkt á Alþingi í dag. vísir/Vilhelm Nýsköpunarmiðstöð verður lögð niður og nýtt tæknisetur tekur við verkefnum hennar samkvæmt frumvarpi sem var samþykkt á Alþingi í dag. Þingmenn stjórnarandstöðunnar mótmæltu harðlega við atkvæðagreiðslu. Málið væri skaðlegt og vanhugsað.
Samkvæmt frumvarpi um opinberan stuðning við nýsköpun sem samþykkt var á Alþingi í dag verða nýsköpunarmál færð í nýtt einkahlutafélag í eigu ríkissjóðs. Til stendur að stofna tæknisetur sem á að taka við verkefnum Nýsköpunarmiðstöðvar sem verður lögð niður. Í frumvarpinu segir að forsenda breytinganna sé að starfsemi tækni- og rannsóknarseturs eigi betur heima í félagaformi en innan stofnunar í eigu ríkisins. „Við lögðum út í þetta verkefni því ég er þeirrar skoðunar að það sé skylda okkar stjórnmálamanna að vera stanslaust að rýna hvar hið opinbera geti sinnt verkefnum betur og hverju megi einfaldlega hætta með áherslu á að forgangsraða til framtíðar,“ sagði Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ferðamála-, iðnaðar og nýsköpunarráðherra við atkvæðagreiðslu á Alþingi í dag. Þórdís Kolbrún Reykjfjörð Gylfadóttir, ferðamála-, iðnaðar og nýsköpunarráðherra.vísir/Vilhelm Frumvarpið er umdeilt og hefur Nýsköpunarmiðstöð gagnrýnt það harðlega og talið málaflokkinn betur eiga heima í opinberum rekstri. Frumvarpið var samþykkt með 32 atkvæðum gegn 25 og vísuðu þingmenn stjórnarandstöðunnar til andstöðu sem birtist í fjölda neikvæðra umsagna. „Þrjátíu umsagnir bárust um þetta mál til Alþingis, tveir þriðju neikvæðar. Það er ótrúlega mikið búið að benda á að þetta er ótrúlega lélegt frumvarp. Þetta er að valda skaða,“ sagði Smári Mccarthy, þingmaður Pírata. „Þetta mál er dæmi um allt það versta sem gerist hér á Alþingi þegar fram kemur slæmt mál. Allir vita að það er slæmt en því er samt böðlað áfram. Þeir sem koma sem gestir fyrir nefnd lýsa áhyggjum. Umsagnir eru neikvæðar, starfsfólkið var ekki haft með í ráðum. Það er allt rangt við þetta frumvarp,“ sagði Þorsteinn Sæmundsson, þingmaður Miðflokksins. Lilja Rafney Magnúsdóttir, formaður atvinnuvegnanefndar, sagði aftur á móti fyrirkomulagið lið í því að styrkja nýsköpun. „Ríkisstjórnin hefur verið að leggja mikla fjármuni í nýslöpun í landinu, um sjötíu prósent aukning. Þetta er eitt af því sem við erum að gera til þess að styrkja nýsköpunarumhverfi í landinu.“
Nýsköpun Alþingi Stjórnsýsla Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Vitni gefur ekki upp nafn vegna ótta við hefndaraðgerðir Innlent Þurftu að farga 30 þúsund eintökum vegna forsetaframboðs Innlent „Heill vinnustaður er dreginn sundur og saman í háði“ Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent „Við lögleiðum heróínið en bönnum áfengið. Þetta er galið“ Innlent Lýsa eftir Sigurði Fannari Innlent Álftin breyttist í dreka og rak hundinn upp úr með látum Innlent Fékk ekki að kveðja eiginmanninn fyrir flugið til Nígeríu Innlent Megrunarlyfin nýjasta vopnið gegn hjartasjúkdómum? Erlent Drengurinn er fundinn Innlent Fleiri fréttir 1.715 börn fengið leikskólapláss Fékk ekki að kveðja eiginmanninn fyrir flugið til Nígeríu Vill sjá Latabæ birtast aftur í sjónvarpsstöðvum heims Drengurinn er fundinn Lýsa eftir Sigurði Fannari „Við lögleiðum heróínið en bönnum áfengið. Þetta er galið“ Koma á fót framkvæmdanefnd um málefni Grindavíkur Vonleysi veðmálanna og eiginmanni vísað úr landi Álftin breyttist í dreka og rak hundinn upp úr með látum Sóttu veikan mann á skemmtiferðaskip umkringt hafís Settur forstjóri skipaður forstjóri „Heill vinnustaður er dreginn sundur og saman í háði“ Breyttar forsendur kalli á nýjan unglingaskóla í Laugardal Ævintýralandið Ísland séð úr háloftunum Dæmdir fyrir ofbeldishrinu Hefur áhyggjur af nýfæddum lömbum á Höfða Uppflettingar í sjúkraskrá: Segir málinu alls ekki lokið Ítrekar afsökunarbeiðni til vöggustofubarna og fjölskyldna þeirra Helmingi dræmari kjörsókn nú en í síðustu forsetakosningum Fulltrúar Stígamóta reyna að tryggja öryggi kvennanna í Nígeríu Heimsótti Julian Assange í Belmarsh-öryggisfangelsið Brottvísun hælisleitenda og dræm þátttaka í utankjörfundi Bein útsending: Má ég taka þátt... í lífinu? Vitni gefur ekki upp nafn vegna ótta við hefndaraðgerðir Beint streymi: Uppfinningar og einkaleyfi Landris heldur áfram á sama hraða Þurftu að farga 30 þúsund eintökum vegna forsetaframboðs Friðlýsir hluta Fjaðrárgljúfurs Fjórum nígerískum ríkisborgurum flogið til Frankfurt Nær einróma ánægja en spurningum ósvarað um þjóðleikhússtjóra Sjá meira