Fótbolti

Óvænt hættur 17 dögum fyrir mót

Valur Páll Eiríksson skrifar
Steve Cooper var orðaður við mörg störf í sumar en er nú hættur hjá Swansea eftir tveggja ára starf sem knattspyrnustjóri.
Steve Cooper var orðaður við mörg störf í sumar en er nú hættur hjá Swansea eftir tveggja ára starf sem knattspyrnustjóri. Athena Pictures/Getty Images

Steve Cooper gekk frá þjálfarastarfi sínu hjá Swansea City í dag eftir tveggja ára starf, þegar aðeins 17 dagar eru þar til keppni fer af stað í Championship-deildinni. Hinn 41 árs gamli Walesverji var nálægt því að stýra liðinu upp í úrvalsdeildina í vor.

Cooper, sem áður þjálfaði unglingalandsliðs Englands og hjá Liverpool, var ráðinn knattspyrnustjóri Swansea sumarið 2019. Hann stýrði liðinu í tvö tímabil og í bæði skiptin komst það í umspil um sæti í úrvalsdeildinni.

Í vor fór liðið alla leið í úrslit en laut í gras fyrir Brentford á Wembley í Lundúnum svo þeir síðarnefndu fór upp í deild þeirra bestu.

Cooper var orðaður við fjölmörg laus störf í ensku deildunum í sumar, þar á meðal hjá Crystal Palace og West Bromwich Albion, en hélt áfram sem stjóri Swansea allt þar til í dag. Þrátt fyrir góðan árangur herma fregnir frá Bretlandi að samband milli hans og stjórnar félagsins hafi verið stirt vegna skorts á fjárfestingu frá eigendum félagsins.

Þá var álit stuðningsmanna félagsins á Cooper misjafnt þar sem fótboltinn sem liðið spilaði undir hans stjórn þótti misskemmtilegur, en Swansea hefur verið rekið eftir gildum sem byggja á flæðandi og skemmtilegri knattspyrnu frá því að Roberto Martínez var þar við stjórnvölin og síðar Brendan Rodgers.

Óvíst er hver tekur við velska liðinu en aðeins 17 dagar eru í fyrsta leik liðsins í Championship-deildinni, gegn Blackburn Rovers þann 7. ágúst.

Championship-deildin er á Stöð 2 Sport en upplýsingar um útsendingar má finna hér. EFL Championship er hluti af Stöð 2 Sport erlent sem kostar 3.990 krónur á mánuði en einnig má kaupa útsendingar sem stakan viðburð á 990 krónur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×