Ölfus og Hveragerðisbær ekki í eina sæng í bili Viktor Örn Ásgeirsson skrifar 15. mars 2023 20:17 Elliði Vignisson bæjarstjóri Ölfuss segist fagna öllu samstarfi. Sameining Ölfuss og Hveragerðisbæjar sé þó ekki á dagskrá núverandi meirihluta bæjarstjórnar. Vísir/Egill Elliði Vignisson bæjarstjóri Ölfuss segir sameiningu sveitarfélaganna Ölfuss og Hveragerðisbæjar ekki á dagskrá bæjarstjórnar þess fyrrnefnda. Bæjarfulltrúi í Hveragerði vill sameina sveitarfélagið að nýju.
Njörður Sigurðsson, bæjarfulltrúi í Hveragerði, sagði í aðsendri grein á Vísi í dag að sameining sveitarfélaganna væri af hinu góða. Með henni yrði til stærri og sterkari stjórnsýslueining, sem styrkja myndi lýðræði og bæta þjónustu til allra íbúa. „Í raun er Ölfus allt eitt samfélag, þó að því sé nú skipt í tvö sveitarfélög [...] Það er mikilvægt að íbúar hafi áhrif á þá þjónustu sem sveitarfélög veita í sínu nærsamfélagi og að sveitarfélögin séu einingar sem veiti þjónustu til íbúa sem þar búa. Leiðin til að laga þetta í Ölfusi er að sameina Ölfusið á ný í eitt sveitarfélag,“ sagði Njörður. Íbúar í Ölfusi sæki til að mynda skóla í Hveragerðisbæ, stundi þar íþróttir og afþreyingu. Staðan mjög ólík Elliði Vignisson bæjarstjóri Ölfuss segir í samtali við fréttastofu að sameiningin hafi verið skoðuð fyrir einhverjum árum síðan. Þá hafi þáverandi bæjarstjórn Ölfuss fellt tillöguna en Hveragerðisbær samþykkt. „Rekstrarleg staða þessara tveggja sveitarfélaga er mjög ólík. Það er mjög þungur rekstur í Hveragerði með miklum halla á meðan að það er umtalsverður rekstrarafgangur í sveitarfélaginu Ölfusi. Innviðir í Ölfusi eru líka mjög sterkir og minni kannski fjárfestingarþörf þar heldur en í Hveragerði. Og þar af leiðandi er skuldastaða í sveitarfélögunum mjög ólík. Þannig að þrátt fyrir að landfræðilega liggjum við náttúrulega mjög nálægt, og Hveragerði í raun inni í Ölfusinu, þá er staða þeirra mjög ólík.“ Elliði segir samstarf milli sveitarfélaganna mikilvægt. Sjálfsagt sé að fara yfir og skoða hvað sameining skili hvoru sveitarfélagi fyrir sig. Eins og staðan sé í dag hafi bæjarstjórn Ölfuss ekki skoðað málið sérstaklega. „Það kann alveg að vera svo að um þetta verði einhvern tímann kosið. Ég er búinn að sitja alla bæjarstjórnarfundi nánast síðustu fimm árin og það hefur ekki verið minnst á það í eitt skipti. Það er sjálfsagt að skoða alla hagsmuni í málinu,“ segir Elliði. Sveitarfélagið sé ávallt opið fyrir samstarfi.
Hveragerði Ölfus Sveitarstjórnarmál Tengdar fréttir Fjölgunin í Ölfusi og sameining þess Árið 1946 varð til nýtt sveitarfélag í Ölfusi, Hveragerðishreppur, en þá klauf þéttbýlið í Hveragerði sig úr Ölfushreppi. Íbúum í Hveragerði hafði þá um nokkra hríð þótt lítið tillit tekið til þarfa í hinu nýja þorpi og þótti hag sínum betur borgið í sérstöku sveitarfélagi. 15. mars 2023 17:01 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Horfa á bíómyndir og senda tölvupósta á meðan þeir keyra Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Segir alvarlegt hvernig Katrín tjáði sig um Persónuvernd Innlent Gantz hótar að segja af sér vegna ósættis við Netanjahú Erlent Bergvin dæmdur fyrir að áreita þrjár konur Innlent Ástand Fico enn alvarlegt Erlent Ekki megrunarlyf heldur lyf við offitu Innlent Býst við aukinni sókn Rússa Erlent „Nú á dögunum tók sonur minn líf sitt innan veggja fangelsisins“ Innlent Of þung en annars hraust á Ozempic Innlent Fleiri fréttir Horfa á bíómyndir og senda tölvupósta á meðan þeir keyra 40 tungumál eru töluð í leik- og grunnskólum Árborgar Segir alvarlegt hvernig Katrín tjáði sig um Persónuvernd Þungar áhyggjur af þyngdarstjórnunarlyfjum Bergvin dæmdur fyrir að áreita þrjár konur Slasaður eftir hestaslys í Ölfusi Nauðsynlegt að fresta atkvæðagreiðslu um umdeilda verksmiðju Ekki megrunarlyf heldur lyf við offitu Segja grafalvarlegt mál að fresta atkvæðagreiðslu „Það er miður að það falli til kostnaður vegna þessa“ Átök í Ölfusi og offitulyf Ákærður fyrir að pissa daginn eftir Fiskidaginn mikla Gular viðvaranir á Suðurlandi, Suðausturlandi og Faxaflóa á morgun Nauðugur sá kostur að fresta atkvæðagreiðslunni „Engu okkar er boðið að koma þarna og sjá“ Skuldirnar bíði þegar frelsið taki við Of þung en annars hraust á Ozempic Slagsmálahundar afþökkuðu aðstoð lögreglu Útgjöld ríkissjóðs vegna Grindavíkur hátt í hundrað milljarðar Fresta íbúakosningu í Ölfusi um mölunarverksmiðju Lífleg og skrautleg kosningabarátta að mati forsætisráðherra Dregur saman með efstu frambjóðendum Mesta kvika frá því að kvikugangurinn myndaðist Nota sykursýkislyf til að léttast og Rottweilerhundar bjóða í partý Látin móðir ekki dæmd í tugmilljóna lyfjasölumáli sonarins Sendiherra, sveitarstjóri og bæjarstjóri skipuð í nefnd Ætlar alla leið í baráttu fyrir nafninu sínu Stuðningslán með ríkisábyrgð fyrir grindvísk fyrirtæki Skipið leggur úr höfn „Alls ekki svo að við tútturnar séum að taka yfir“ Sjá meira
Fjölgunin í Ölfusi og sameining þess Árið 1946 varð til nýtt sveitarfélag í Ölfusi, Hveragerðishreppur, en þá klauf þéttbýlið í Hveragerði sig úr Ölfushreppi. Íbúum í Hveragerði hafði þá um nokkra hríð þótt lítið tillit tekið til þarfa í hinu nýja þorpi og þótti hag sínum betur borgið í sérstöku sveitarfélagi. 15. mars 2023 17:01