Kálfinn angrar Jóhann Berg þegar stutt er í úrslitaleikinn við Ungverja Sindri Sverrisson skrifar 29. október 2020 16:31 Jóhann Berg Guðmundsson spilaði leikinn mikilvæga við Rúmeníu fyrr í þessum mánuði þegar Ísland fagnaði 2-1 sigri. vísir/Hulda Margrét
Óvíst er að Jóhann Berg Guðmundsson geti leikið með Burnley gegn Chelsea um helgina vegna kálfameiðsla, nú þegar sléttar tvær vikur eru í úrslitaleik Íslands og Ungverjalands um sæti á EM í fótbolta. Jóhann meiddist í hné í byrjun þessarar leiktíðar og hefur aðeins leikið þrjá leiki í ensku úrvalsdeildinni í vetur, eftir að hafa sömuleiðis misst af stórum hluta síðustu leiktíðar vegna kálfameiðsla. Jóhann náði þó að spila með íslenska landsliðinu í leiknum mikilvæga við Rúmeníu fyrr í þessum mánuði, og stóð fyrir sínu. Hann lék svo með Burnley gegn WBA 19. október og gegn Tottenham á mánudagskvöld, og var í byrjunarliðinu í báðum leikjum. Á blaðamannafundi í dag greindi knattspyrnustjórinn Sean Dychy hins vegar frá því að kálfinn angraði Jóhann og að það yrði að koma í ljós á morgun eða á leikdegi hvort að hinn nýþrítugi kantmaður gæti spilað heimaleikinn gegn Chelsea á laugardaginn. Til hamingju með daginn Jói! Hann fagnar þrítugsafmæli sínu í dag! Happy 30th birthday to our Jóhann Berg Guðmundsson!#fyririsland pic.twitter.com/MVHb9f8UNR— Knattspyrnusambandið (@footballiceland) October 27, 2020 Burnley á svo eftir að spila við Brighton 7. nóvember áður en íslenski landsliðshópurinn kemur saman í Búdapest mánudagskvöldið 9. nóvember, til stutts undirbúnings fyrir leikinn sem ræður því hvort Ísland eða Ungverjaland spilar á EM næsta sumar. Eftir leikinn við Ungverja spilar Ísland svo útileiki við Danmörku og England, sína síðustu leiki í A-deild Þjóðadeildarinnar í bili.
EM 2020 í fótbolta Þjóðadeild UEFA Mest lesið Ómar Ingi skaut Evrópumeisturunum áfram eftir vítakeppni Handbolti Bucks í sögubækurnar eftir sigurinn á Pacers Körfubolti FH fékk tvær sektir frá KSÍ Íslenski boltinn Dortmund leiðir þökk sé þrumuskoti Füllkrug Fótbolti Fengið nóg af því að vera ruslakista fyrir viðbjóð frá fólki Körfubolti Uppgjörið: ÍBV - FH 39-38 | ÍBV tryggði sér oddaleik eftir vítakastkeppni Handbolti Dagskráin í dag: Stórleikir og stórstjörnur út um allt Sport Elín Jóna færir sig á milli félaga á Jótlandi Handbolti „Féllu dómar í dag sem voru að mér fannst ansi augljósir“ Handbolti Óheflaði Eyjapeyinn Kári Kristján: „Töpum aldrei í vítakeppnum“ Handbolti Fleiri fréttir FH fékk tvær sektir frá KSÍ Dortmund leiðir þökk sé þrumuskoti Füllkrug Logi kom inn af bekknum og skoraði í stórsigri Mark dæmt af Bjarka og dramatík hjá Alexöndru Sjáðu mörkin úr stórleiknum í München Júlíus og félagar unnu frækinn bikarsigur á Rosenborg Kenndi gráðugum Kim um bæði mörkin gegn Real Madrid Lewandowski gæti verið seldur á brunaútsölu Barcelona Bellingham reyndi að taka Kane á taugum fyrir vítið Heillaóskum rigndi yfir fimmtán ára hetju Fram í skólanum „Vestri hefur verið að taka leikhlé“ Courtois ekki með Belgíu á EM Einvígið galopið eftir jafntefli í Þýskalandi „Þú veist alveg svarið við þessu“ Sextán ára og skoraði hjá Arsenal eins og Rooney forðum Víkingar bjóða Grindvíkingum í Víkina á morgun „Real Madrid lofaði mér að ég yrði arftaki Modric“ Félögin sömdu um að banna Sigurbergi að spila Tuchel fullyrti að Gnabry muni skora á móti Real Madrid í kvöld Þrír Íslendingar í liði umferðarinnar Gáttaðar á því að fyrirliði Víkings var settur á bekkinn Guy Smit sendir frá sér afsökunarbeiðni Keflavík og Aftureldingu spáð sigri í Lengjudeildunum Bara Eiður Smári og Bjargvætturinn höfðu skorað fyrir sextán ára afmælið Sjáðu ungar hetjur bjarga Fram og Stjörnunni Hundfúll og ýtti ungum KR-krökkum frá sér: „Ekki fallegt að sjá“ „Mo Salah sá sem að gekk of langt“ Valur sýndi Berglindi meiri áhuga en Breiðablik Fótboltafortíð fjölskyldunnar í sviðsljósinu í viðtali DR við Andra Lucas Manchester-liðin og Aston Villa á móti því að eyðsluþak verði sett á Sjá meira