Töskurnar fundust tómar á þremur mismunandi stöðum Kristín Ólafsdóttir og Vésteinn Örn Pétursson skrifa 26. mars 2024 20:41 Töskurnar sjö fundust á þremur mismunandi stöðum. Grafík/Sara Þjófar sem taldir eru hafa stolið spilakassafé að andvirði hátt í þrjátíu milljóna króna ganga enn lausir og peningarnir hafa heldur ekki fundist. Töskurnar sjö sem geymdu fjármunina eru allar fundnar. Tvær fundust við Lágafellskirkju í Mosfellsbæ, ein við Bugðufljót og fjórar úti í móa uppi við Esjumela.
Spilakassafénu var stolið úr bíl Öryggismiðstöðvarinnar í gærmorgun en málið rataði ekki í fjölmiðla fyrr en í morgun, um sólarhring síðar. Starfsmenn Öryggismiðstöðvarinnar komu fyrst við á Videomarkaðnum í Hamraborg í gærmorgun til að sækja peninga úr spilakössum. Þeir fóru svo inn á Catalinu í sömu erindagjörðum og það var þá sem þjófarnir komu fyrir horn, og létu til skarar skríða. Upptaka er til af ráninu. Samkvæmt heimildum fréttastofu bökkuðu þjófarnir á Toyota Yaris-bíl, sem lýst var eftir um hádegisbil í gær, á talsverðum hraða upp að bíl Öryggismiðstöðvarinnar fyrir utan Catalinu. „Þeir brjóta rúðu, afturrúðu á bílnum, komast þannig inn í hann og taka þarna nokkrar töskur, sjö töskur, fimm tómar en peningar í tveimur,“ segir Heimir Ríkharðsson lögreglufulltrúi. Þjófarnir hafi ekki verið mikið lengur en 40 sekúndur að athafna sig. Töskurnar opnaðar með slípirokk Rannsóknin hefur gengið hægt en síðdegis í dag var lýst eftir þessum tveimur mönnum á gráum Toyota Yaris, sem samkvæmt heimildum fréttastofu tengast rannsókn málsins. Töskurnar sjö eru allar fundnar; tvær fundust við Lágafellskirkju í Mosfellsbæ, ein við Bugðufljót og fjórar úti í móa uppi við Esjumela, ekki langt frá Ístaki, að sögn lögreglu. „Það var búið að opna allar töskurnar með slípirokk, skera í sundur og engin verðmæti eftir,“ segir Heimir. Heildarupphæð fjármunanna hafi ekki verið staðfest, en um 20 til 30 milljónir hafi verið í töskunum. Þær eru búnar sérstökum litasprengjum sem eiga að springa yfir verðmæti, sé reynt að brjótast inn í töskurnar. Heimir segir vísbendingar um að sprengjurnar hafi sprungið í sumum töskunum - en ekki öllum. „Ég man ekki eftir svipuðu atviki. Ekki svona í bíl en auðvitað hefur verið farið inn í banka og fleira. Og við eigum gömul mál varðandi svoleiðis. En ég man ekki eftir svipuðu.“ Forsvarsmenn Öryggismiðstöðvarinnar verjast allra fregna af málinu en sendu þó frá sér yfirlýsingu síðdegis þar sem þeir staðfestu að brotist hefði verið inn í bíl fyrirtækisins. Öll verðmæti séu tryggð gagnvart viðskiptavinum og atvik sem þessi leiði alltaf til ítarlegrar skoðunar á verklagsferlum. Forstjóri Happdrætti Háskólans staðfesti í dag að peningarnir væru úr spilakössum þeirra. Upphæðin sem stolið var hefur hins vegar ekki fengist staðfest hjá Happdrættinu.
Peningum stolið í Hamraborg Lögreglumál Mosfellsbær Reykjavík Tengdar fréttir Lögreglan lýsir eftir þjófunum Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur lýst eftir tveimur mönnum. Þeir eru grunaðir um að hafa rænt tuttugu til þrjátíu milljónum úr peningaflutningabíl í Hamraborg í Kópavogi í gærmorgun. 26. mars 2024 17:17 Fundu töskurnar í Mosfellsbæ en þjófarnir enn týndir Töskur sem tveir þjófar stálu í Hamraborg í Kópavogi í gærmorgun fundust í Mosfellsbæ í dag, meðal annars í Esjumelum. Verðmæti höfðu verið tekin úr töskunum. 26. mars 2024 14:06 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Fylgi Höllu hrundi eftir kappræðurnar á RÚV Innlent Eldvörp líkleg næst Innlent Meintur fjárdráttur mikið áfall fyrir starfsfólk skólans Innlent Facebook bannar Ástþóri að auglýsa Innlent Ellefu slasaðir eftir að flugtak Boeing 737 mistókst Erlent Börnum safnað saman og þau skotin Erlent María Sigrún birtir tölvupósta Dags Innlent Fylgjast grannt með gangi mála Innlent Skotið á íbúa Rafah og heilbrigðiskerfi Gasa hrunið Erlent Samanburður við lóðamál olíufélaganna eins „fjarri sannleikanum og hægt er“ Innlent Fleiri fréttir Dauð lömb á túni, árás á Rafah og Eurovision Maður sem áreitir börn í Hafnarfirði til rannsóknar Sýknaður af nauðgun en enginn vafi að konan telji á sér brotið Fylgi Höllu hrundi eftir kappræðurnar á RÚV Sinubruni við Hellisskóg á Selfossi 150 þolendum sinnt vegna ofbeldis í nánu sambandi Meintur fjárdráttur mikið áfall fyrir starfsfólk skólans Stóra Svört bar fimm svörtum lömbum Eldgosinu lokið, meintur fjárdráttur og manndrápsrannsókn Eldvörp líkleg næst Rannsókn vegna meints manndráps í Kiðjabergi miðar vel Samanburður við lóðamál olíufélaganna eins „fjarri sannleikanum og hægt er“ Guðríður Hrund skipuð skólameistari MK Eldgosinu lokið eftir 54 daga Leggja aftur fram tillögu um að selja húsnæði MÍR Facebook bannar Ástþóri að auglýsa Býður þjóðarhöll Færeyja undir landsleiki Íslands Reykjavík lækkar gjaldskrár vegna þjónustu við barnafjölskyldur Fylgjast grannt með gangi mála Margt bendi til þess að gosinu sé lokið María Sigrún birtir tölvupósta Dags „Á endanum snýst þetta allt um peninga“ Sækja veikan sjómann Eldur í iðnaðarhúsnæði á Höfða Efstar með ómarktækan mun á milli sín Fjögurra bíla árekstur efst í Ártúnsbrekku Björn Leví segir Harald hafa fundið skálkaskjól í orðum Bjarna Flæði innan við einn rúmmetri á sekúndu „Ég hafna því að við séum ekki að sinna velferð dýra á þessum bæ” Ákvörðun Seðlabankans sé óskiljanleg Sjá meira
Lögreglan lýsir eftir þjófunum Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur lýst eftir tveimur mönnum. Þeir eru grunaðir um að hafa rænt tuttugu til þrjátíu milljónum úr peningaflutningabíl í Hamraborg í Kópavogi í gærmorgun. 26. mars 2024 17:17
Fundu töskurnar í Mosfellsbæ en þjófarnir enn týndir Töskur sem tveir þjófar stálu í Hamraborg í Kópavogi í gærmorgun fundust í Mosfellsbæ í dag, meðal annars í Esjumelum. Verðmæti höfðu verið tekin úr töskunum. 26. mars 2024 14:06