Sagði rússneska menn hafa ætlað að fremja valdarán í Úkraínu Samúel Karl Ólason skrifar 26. nóvember 2021 17:00 Vólódómír Selenskí, forseti Úkraínu. AP/Forsetaembætti Úkraínu Vólódómír Selenskí, forseti Úkraínu, segir að komist hafi upp um tilraun til valdaráns þar í landi. Til hafi staðið að fella ríkisstjórn hans í næstu viku og að aðilar frá Rússlandi hafi náðst á upptöku reyna að fá ríkasta auðjöfur Úkraínu til að taka þátt í valdráninu.
Selenskí gaf ekki miklar upplýsingar um málið í dag þar sem hann hélt mjög langan blaðamannafund. Bendlaði hann Rinat Akhmetov við hið meinta valdarán. Akhmetov hefur harðneitað þessum ásökunum og segir frásögn Selenskís vera hreina lygi og segist hann bálreiður yfir því að forsetinn hafi dreift slíkri lygi um hann. „Sem úkraínskur borgari, stærsti fjárfestir, skattgreiðandi og vinnuveitandi landsins, mun ég halda áfram að verja frjálsa Úkraínu, frjálsan efnahag, lýðræði og málfrelsi,“ sagði Akhmetov í yfirlýsingu, samkvæmt Reuters fréttaveitunni. Selenskí var spurður hvort hann hefði upplýsingar um það hvort yfirvöld í Rússlandi kæmu að þessu meinta valdaráni og sagðist hann ekki geta talað um það. Kremlverjar segjast sömuleiðis enga hugmynd hafa um ásökun Selenskís og þvertaka fyrir að hafa komið að valdaránstilraun. Gífurleg spenna er á milli Úkraínu og Rússlands um þessar mundir en Rússar eru sagðir hafa flutt nærri því hundrað þúsund hermenn að landamærum Úkraínu. Úkraínumenn hafa sömuleiðis sent hermenn að landamærunum. Rússar innlimuðu Krímskaga af Úkraínu árið 2014 og hafa stutt við bakið á aðskilnaðarsinnum í austurhluta landsins.
Úkraína Rússland Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið „Mun ekki halla mér aftur og leyfa deyjandi sjónvarpsstöð að ráðast á mig“ Erlent Katrín efst en Jón hrynur í nýrri könnun Innlent Vilja svör um möguleg „óþægileg hagsmunatengsl“ borgar og RÚV Innlent „Fann það þegar ég vaknaði í morgun að þetta var lúmskt áfall“ Innlent Horfði á þegar vinur hans réðst á manninn sem braut á dóttur hans Innlent Kolbeinn Sigþórsson ákærður fyrir brot gegn barnungri stúlku Innlent „Helvíti fínt“ að komast aftur á Papa's Pizza Innlent Ætlar ekki að þröngva sér upp á fólk Innlent Hárgreiðslustóll ekki hættulegt tæki og konan fær engar bætur Innlent Halla vill skikka ungmenni í samfélagsþjónustu Innlent Fleiri fréttir „Mun ekki halla mér aftur og leyfa deyjandi sjónvarpsstöð að ráðast á mig“ Segir fólk eiga rétt til mótmæla en ekki til óreiðu Umfangsmikil mótmæli vegna „rússneskra“ laga í Georgíu Enn í basli með skemmdir á hitaskildi Orion Vornanen kastað úr þingflokknum Hafa engin varnarvirki til að hörfa í Yfirstandandi kosningar á Englandi prófsteinn fyrir Íhaldsflokkinn Viðbrögð Hamas við vopnahléstillögunum „neikvæð“ Hundruð lögreglumanna í viðbragðsstöðu vegna mótmæla í UCLA Vilja endurupptöku í máli Weinstein Þrjú hundruð handtekin í Columbia-háskóla Stuðningur við dönsku ríkisstjórnina aldrei verið minni Mótmælendur og gagnmótmælendur tókust á Trump sektaður um meira en milljón króna Rússar sagðir nota skotflaugar frá Norður-Kóreu Þrettán ára drengur stunginn til bana með sverði Særði minnst fimm með sverði í Lundúnum Íslendingur sem lúbarði lögreglumenn í Varsjá þarf að borga brúsann Fjórir lögreglumenn skotnir til bana í Charlotte Rostungur sem fannst í fyrra drapst af völdum fuglaflensu Hvetur Hamas til að ganga að rausnarlegum tillögum Ísrael Flugvöllur Færeyinga fær að taka við stærri þotum Yousaf segir af sér sem ráðherra og formaður Skoska þjóðarflokksins Sánchez hættir við að segja af sér Grafið undan fjölmiðlafrelsinu víða í Evrópu Vopnahlé í sjónmáli? Tveir látnir eftir að bíll hafnaði í sjónum við Stokkhólm Fjölmenn mótmæli vegna ofbeldisbylgju í Ástralíu Vasaúr ríkasta manns Titanic seldist á 210 milljónir Þúsundir hvöttu Sánchez til að segja ekki af sér Sjá meira