Jóhanna gagnrýnir ríkisstjórn undir forystu Vinstri grænna fyrir að fjölga ráðuneytum

Fyrrverandi forsætisráðherra segir það vekja furðu að Vinstri græn ætli að „afhenda íhaldinu“ umhverfis-og loftslagsmálin. Það hafi barist kröftulega gegn rammaáætlun í áratug.

Jóhanna Sigurðardóttir, fyrrverandi forsætisráðherra.
Jóhanna Sigurðardóttir, fyrrverandi forsætisráðherra.
Auglýsing

Jóhanna Sig­urð­ar­dótt­ir, fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra og for­maður Sam­fylk­ing­ar­inn­ar, gagn­rýnir nýja rík­is­stjórn undir for­ystu Vinstri grænna fyrir að kljúfa upp ráðu­neyti og fjölga þeim. 

Ráðu­neytin í stjórn­ar­ráði Íslands eru nú tólf og hafa aldrei verið fleiri, en auk þess ákvað rík­is­stjórnin að færa fjöl­marga mála­flokka á milli ráðu­neyta. Sam­kvæmt heim­ildum Kjarn­ans er talið að til­færsl­urnar muni hafa áhrif á rúm­lega fjórð­ung starfs­manna ráðu­neyta. 

Jóhanna, sem var for­sæt­is­ráð­herra frá 2009 til 2013 í rík­is­stjórn sem bæði Katrín Jak­obs­dóttir og Svan­dís Svav­ars­dóttir sátu í, segir í stöðu­upp­færslu á Face­book að í rann­sókn­ar­skýrslu til Alþingis um hrunið sem varð haustið 2008, og unnin var undir for­ystu Páls Hreins­son­ar, hafi ein til­lagan verið að fækka ráðu­neytum og stækka, því mörg hver væru of lítil og van­máttug til að takast á við verk­efni sín. 

Auglýsing
Eftir þessu hafi rík­is­stjórn Sam­fylk­ingar og Vinstri grænna farið á árunum 2009-2013 þegar ráðu­neyti stækk­uðu og fækk­aði. Alls var ráð­herrum fækkað niður í átta. „Þessi rík­is­stjórn undir for­ystu VG gefur þess­ari til­lögu langt nef og bæði klífur upp ráðu­neyti og fjölg­ar.“

Jóhanna segir það líka vekja furðu að Vinstri græn skuli „af­henda íhald­inu umhverf­is-og lofts­lags­mál­in“, og á þar við Sjálf­stæð­is­flokk­inn. Hann hafi barist kröft­ug­lega í heilan ára­tug gegn ramma­á­ætlun um vernd og nýt­ingu nátt­úru­auð­linda. „Og ekki síður að íhaldið mun einnig fara með lofts­lags­mál­in, en aðgerðir á því sviði munu geta ráðið úrslitum um hvort líf­væn­legt verður á jörð­inni í náinni fram­tíð.“

Guð­laugur Þór Þórð­ar­son er nýr ráð­herra umhverf­is-, orku- og lofts­lags­mála.

Í rann­sókn­ar­ský­slu til Alþingis um hrunið 2008, sem unnin var undir for­ystu Páls Hreins­son­ar, var ein til­lagan að fækk­a...

Posted by Jóhanna Sig­urð­ar­dóttir on Monday, Novem­ber 29, 2021

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent