Toppliðið tekur á móti botnliðinu

Þórey Anna Ásgeirsdóttir og stöllur hennar í Val taka á …
Þórey Anna Ásgeirsdóttir og stöllur hennar í Val taka á móti botnliði HK í dag. mbl.is/Óttar Geirsson

Heil umferð fer fram í úrvalsdeild kvenna í handbolta í dag. Valur tekur á móti HK á Hlíðarenda klukkan 13.30. Valskonur eru fyrir leikinn í 1.-2. sæti deildarinnar með 20 stig en HK í því 8. og neðsta með 2 stig.

Í Úlfarsárdal taka heimakonur í Fram á móti KA/Þór klukkan 15. Fram er fyrir leikinn í 4. sæti með 15 stig en KA/Þór í því 5. með 10 stig. Þá tekur Selfoss á móti ÍBV klukkan 16. Selfoss situr fyrir leikinn í 7. sæti með 4 stig en ÍBV deilir toppsætinu með Val og hefur 20 stig.

Að lokum mætast Haukar og Stjarnan á Ásvöllum í Hafnarfirði klukkan 18. Haukar eru í 6. sæti með 8 stig en Stjarnan í 3. sæti með 17 stig.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka