Keyrt á hlið Hvíta hússins

Ökumaður bifreiðarinnar lést í árekstrinum. Mynd úr safni.
Ökumaður bifreiðarinnar lést í árekstrinum. Mynd úr safni. AFP/Mandel Ngan

Ökumaður lét lífið eftir að hafa keyrt á ofsahraða á hlið Hvíta hússins seint í gærkvöldi að staðartíma eða klukkan hálfþrjú í nótt að íslenskum tíma. 

Fréttastofa ABC greinir frá. 

Talsmenn Hvíta hússins segja að engum í húsinu hafi staðið ógn af bifreiðinni en ökumaður hennar fannst látinn á svæðinu. 

Verið er að rannsaka aðdraganda árekstursins sem er rannsakaður sem umferðaróhapp.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert