Úran í Íran: Segjast geta auðgað úran að vild Samúel Karl Ólason skrifar 16. apríl 2021 14:17 Gervihnattarmynd af Natanz kjarnorkurannsóknarstöðinni í Íran. AP/Planet labs Vísindamenn í Íran byrjuðu í dag að auðga úran í 60 prósent hreinleika, sem er hærra en gert hefur verið áður þar í landi. Með því er hreinleiki þess úrans orðinn nálægt því sem til þarf í kjarnorkuvopn.
Ráðamenn í Íran hafa áður sagt að þeir geti notað 60 prósent auðgað úran til að keyra kjarnorkuknúin skip. Ríkið býr þó ekki yfir neinum slíkum skipum. AP fréttaveitan hefur eftir háttsettum embættismanni að nokkur grömm verði framleidd á hverri klukkustund og þykir líklegt að ákvörðunin muni leiða til frekari spennu í tengslum við kjarnorkuáætlun ríkisins. Ríkissjónvarp Írans hafði í dag eftir Ali Akbar Salehi, yfirmanni kjarnorkustofnunar Írans, að ríkið gæti nú auðgað úran í hvaða hreinleika sem óskað væri. Þessi ákvörðun var tekin í kjölfar þess að skemmdarverk voru framin á skilvindum í Natanz kjarnorkurannsóknarstöðinni, þar sem Íranir hafa verið að auðga úran. Ráðamenn í Íran hafa sakað Ísrael um að bera ábyrgð á skemmdarverkinu og hafa heitið hefndum. Sjá einnig: Saka Ísraela um skemmdarverk og heita hefndum Ráðamenn í Íran hafa ítrekað sagt að þeir ætli sér ekki að koma upp kjarnorkuvopnum og kjarnorka verði eingöngu notuð í friðsömum tilgangi. Til að framleiða kjarnorkuvopn þarf úran sem hefur verið auðgað að 90 prósenta hreinleika, sem er tiltölulega auðvelt að gera við úran sem þegar er búið að auðga í 60 prósent. Samkvæmt kjarnorkusamkomulaginu svokallaða, sem vonast er að hægt verði að endurvirkja, máttu Íranir ekki auðga úran meira en 3,67 prósent. Eftir að Donald Trump, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna, sleit Bandaríkin frá samkomulaginu hófu Íranir að auðga úran í 20 prósent. Benjamín Netanjahú, forsætisráðherra Ísraels, hefur heitið því að koma í veg fyrir að Íran geti komið upp kjarnorkuvopnum. Ísraelar hafa tvisvar sinnum gert loftárásir gegn Íran, með það markmið að stöðva kjarnorkuáætlun ríkisins. Þegar helsti kjarnorkuvísindamaður Írans var myrtur í fyrra, beindust spjótin fljótt að Ísrael. Erindrekar frá Íran, Bandaríkjunum og Evrópusambandinu eru nú í Vín í Austurríki þar sem þeir ræða sín á milli mögulegar leiðir til að endurvekja kjarnorkusamkomulagið. Samkomulagið var gert á milli Írans, Bandaríkjanna, Kína, Rússlands, Bretlands, Frakklands og Þýskalands árið 2015 og var því ætlað að binda enda á kjarnorkuvopnaáætlun Írans. Í skiptum fyrir að þvingunum og öðrum refsiaðgerðum yrði aflétt samþykktu yfirvöld Írans að þróa ekki kjarnorkuvopn og hleypa eftirlitsaðilum í landið. Samkvæmt frétt Reuters hafa þessar nýjustu vendingar flækt viðræðurnar sagði embættismaður ESB við fréttaveituna að viðræðurnar yrðu líklegast stöðvaðar um tíma. Sendinefndir Bandaríkjanna og Írans myndu snúa aftur heim og fá frekari leiðbeiningar frá stjórnvöldum sínum.
Íran Kjarnorka Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Kveðst ekki svindla á neinum með happdrætti sínu Innlent Fannst látinn í klefa sínum á Litla Hrauni Innlent Skjálfti fannst vel á höfuðborgarsvæðinu Innlent Vinnubrögðin gátu leitt til dauða Innlent Hafi mögulega reynt að lenda á ísilögðu vatninu Innlent Nefndin aldrei heyrt aðrar eins frásagnir en lítið að gerast Innlent Halla fremst með 29,7 prósent í nýrri könnun Prósents Innlent Glórulausar framkvæmdir raski velferð íbúa hjúkrunarheimilis Innlent Hindraði mann sem ætlaði að komast úr bíl við Bónusbúð Innlent Faðir mannsins sem lést á Litla-Hrauni krefst umbóta Innlent Fleiri fréttir Hamas samþykkir vopnahléstillögu Áttatíu og tveggja ára Bernie vill sex ár í viðbót Ávítti Trump aftur og ítrekaði fangelsishótun Reiðir yfir ummælum Macrons og halda æfingar með kjarnorkuvopn Sökktu rússneskum hraðbát með sjálfsprengidróna Verður næsti formaður Skoska þjóðarflokksins Sakaði Biden um að reka lögregluríki í anda nasista Aukastörf meðfram þingmennsku skapi hættu á hagsmunaárekstrum Lík þriggja brimbrettakappa fundust í brunni í Mexíkó Xi og Macron ræða kínverska rafbíla og franskt koníak Um 100.000 sagt að rýma svæði á Rafah vegna „afmarkaðra aðgerða“ Búnaður Al Jazeera gerður upptækur og miðillinn í bann Ísrael samþykkir ekki vopnahlé Ísraelsmenn vísa fréttamönnum á dyr Íhaldsflokkurinn laut í lægra haldi í sveitarstjórnarkosningum Tuga enn saknað og 55 látnir Verður borgarstjóri Lundúna þriðja kjörtímabilið í röð Auka viðbúnað í aðdraganda Eurovision Forseti Argentínu skýtur föstum skotum á spænsku ríkisstjórnina Berlínarborg vill losna við glæsivillu Göbbels Flugvél Atlanta á tæpasta vaði í Ríad Varaforsetaefni í bobba vegna hundsdráps og meints fundar með Kim Kreml fordæmir ummæli Macrons og Camerons Reyna að sækja fyrsta sýnið frá fjærhlið tunglsins Hlustuðu á Trump og Cohen tala um þagnargreiðslu Danir rýmka reglur um þungunarrof Þrjátíu látnir og tuga saknað eftir flóð í Brasilíu Segja frumvarp um gyðingaandúð í andstöðu við Biblíuna Tyrkir stöðva öll viðskipti við Ísrael „Mun ekki halla mér aftur og leyfa deyjandi sjónvarpsstöð að ráðast á mig“ Sjá meira