Bráðabirgðaforseti Barcelona segir að félagið hefði átt að selja Messi Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 4. desember 2020 09:30 Lionel Messi gæti yfirgefið Barcelona á frjálsri sölu í sumar. EPA-EFE/Alejandro Garcia Lionel Messi vildi fara frá Barcelona í haust en forráðamenn Barcelona þá vildu ekki selja hann nema fyrir einhverja ruglaða upphæð. Það voru mistök samkvæmt bráðabirgðaforseta Barcelona.
Carlos Tusquets settist tímabundið í forsetastólinn hjá Barcelona eftir að Josep Maria Bartomeu sagði af sér í lok október og hann er því með slæma fjárhagsstöðu félagsins á sínum herðum þessa dagana. Góð leið til að redda málunum hefði verið að selja Messi og losna um leið við það að himinhá laun argentínska knattspyrnusnillingsins. Barcelona hefði vissulega verið án Lionel Messi á þessu tímabili en um leið í miklu betri málum með fjármál sín ef félagið hefði selt argentínska snillinginn sinn í haust. Messi taldi sig hafa rétt til þess að fara frá félaginu á frjálsri sölu vegna ákvæðis í samningi sínum en þáverandi forseti, Josep Maria Bartomeu, gaf ekkert eftir. Það stefndi því í málarekstur en Messi vildi ekki enda Barcelona feril sinn í réttarsalnum. Barcelona should have sold Messi this summer to balance the books, according to acting club president Carles Tusquets. pic.twitter.com/r6ikzlp9sb— ESPN FC (@ESPNFC) December 3, 2020 Messi vandaði ekki forystu Barcelona kveðjurnar í framhaldinu og á endanum ákvað Josep Maria Bartomeu og öll stjórnin að segja af sér. Forsetakosningar eru framundan í janúar. „Þegar við tölum um fjárhagsstöðuna þá hefðum við átt að selja Messi í sumarglugganum,“ sagði Carlos Tusquets í útvarpsviðtali á RAC1. Það hefði kostað 700 milljónir evra að kaupa upp samninginn hjá Messi en Barcelona vildi ekki einu sinni fara í viðræður um kaupverð við áhugasöm lið eins og Manchester City. „Við hefðum sparað okkur að greiða launin hans og við hefðum líka fengið mikinn pening fyrir hann. Það hefði verið eftirsóknarvert í núverandi stöðu. Þetta er samt eitthvað sem þjálfarateymið hefði þurft algjölega að samþykkja“ sagði Tusquets. „LA Liga er að reyna að setja inn hámark á launagreiðslur og salan á Messi hefði hjálpað við að koma því á,“ sagði Tusquets. Lionel Messi er sagður vera með 500 þúsund evrur í vikulaun. Hann verður laus allra mála hjá Barcelona í sumar og má meira segja byrja að ræða við önnur félög í janúar.
Spænski boltinn Meistaradeild Evrópu Mest lesið Harma auglýsingar á gólfi og vilja banna þær eftir meiðsli Martins Körfubolti „Þið eruð lið fullt af feitabollum“ Enski boltinn Sjáðu dramatísku vítakastskeppnina í Eyjum Handbolti Drakk átta bjóra fyrir beina útsendingu Fótbolti Sló í myndavél og gæti fengið bann Körfubolti Aron í myndatöku í dag vegna meiðslanna Handbolti Vatnaskil hjá Red Bull og risafréttir fyrir Formúlu 1 Formúla 1 Segir aðeins þau hlutlausu hafa skemmt sér yfir fótbolta Ten Hag Enski boltinn Fengið nóg af því að vera ruslakista fyrir viðbjóð frá fólki Körfubolti Rangnick hafnar Bayern München Fótbolti Fleiri fréttir Í beinni: Valur - Víkingur | Íslands- og bikarmeistararnir mætast Í beinni: Þór/KA - Þróttur | Sandra María verið óstöðvandi Sjáðu mark Füllkrugs sem kom Dortmund í bílstjórasætið „Þið eruð lið fullt af feitabollum“ Besta upphitunin: „Finn ekki fyrir pressunni“ Tekur fyrir að starfsfólk Manchester United vinni að heiman Skúrkurinn endaði sem hetjan Drakk átta bjóra fyrir beina útsendingu Dortmund tók aukasætið sem ensku liðin dreymdi um Rangnick hafnar Bayern München Segir aðeins þau hlutlausu hafa skemmt sér yfir fótbolta Ten Hag FH fékk tvær sektir frá KSÍ Dortmund leiðir þökk sé þrumuskoti Füllkrug Logi kom inn af bekknum og skoraði í stórsigri Mark dæmt af Bjarka og dramatík hjá Alexöndru Sjáðu mörkin úr stórleiknum í München Júlíus og félagar unnu frækinn bikarsigur á Rosenborg Kenndi gráðugum Kim um bæði mörkin gegn Real Madrid Lewandowski gæti verið seldur á brunaútsölu Barcelona Bellingham reyndi að taka Kane á taugum fyrir vítið Heillaóskum rigndi yfir fimmtán ára hetju Fram í skólanum „Vestri hefur verið að taka leikhlé“ Courtois ekki með Belgíu á EM Einvígið galopið eftir jafntefli í Þýskalandi „Þú veist alveg svarið við þessu“ Sextán ára og skoraði hjá Arsenal eins og Rooney forðum Víkingar bjóða Grindvíkingum í Víkina á morgun „Real Madrid lofaði mér að ég yrði arftaki Modric“ Félögin sömdu um að banna Sigurbergi að spila Tuchel fullyrti að Gnabry muni skora á móti Real Madrid í kvöld Sjá meira