Sjáðu heitasta framherjann á Ítalíu minna vel á sig á móti Mourinho Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 31. janúar 2023 15:01 Victor Osimhen tók af sér grímuna þegar hann fagnaði marki sínu yrir Napoli á móti Roma á Diego Armando Maradona leikvanginum. AP/Alessandro Garofalo Napoli er á góðri leið að verða ítalskur meistari í fyrsta skiptið án hjálpar frá Diego heitnum Maradona.
Napoli er nú með þrettán stiga forystu og fyrsti meistaratitilinn frá 1990 er í augsýn. Ástæðan er ekki síst mögnuð samvinna þeirra Khvicha Kvaratskhelia og Victor Osimhen í framlínunni. Kvaratskhelia, eða Kvaradona eins og sumir vilja kalla hann, er allt í öllu í sóknarleik liðsins og fremstur er síðan markaskorarinn Victor Osimhen sem er sá heitasti í ítölsku deildinni í dag. Osimhen hefur skorað fjórtán mörk í sextán deildarleikjum en þar af eru tólf mörk í ellefu leikjum síðan að hann kom aftur inn í liðið eftir meiðsli í september og október. Osimhen skoraði í fjórða leiknum í röð þegar Napoli vann 2-1 sigur á Roma um síðustu helgi. Markið sýndi styrk hans og snilli og um leið samvinnu hans við umræddan Kvaratskhelia. Hér fyrir neðan má sjá mörkin úr leiknum þar á meðal þetta magnaða mark kappans sem kom eftir sendingu frá Kvaradona sem var þarna að gefa sína áttundu stoðsendingu í deildinni í vetur. Klippa: Mörkin úr leik Napoli og Roma Þetta var fjórtánda deildarmark Osimhen eins og áður sagði en hann er með tveggja marka forskot á Ademola Lookman hjá Atalanta og þriggja marka forskot á Lautaro Martinez hjá Inter í baráttunni um markakóngstitilinn. Osimhen er 24 ára Nígeríumaður sem kom til Napoli frá franska félaginu Lille í september 2020. Hann skoraði fjórtán mörk á 27 leikjum á síðasta tímabili og á fyrsta tímabili sínu með ítalska liðinu skoraði hann tíu mörk í 24 leikjum. Áður en hann kom til Napoli hafi hann skipt um lið þrjú sumur í röð, farið frá Wolfsburg í Þýskalandi, til Charleroi í Belgíu og loks til Lille í Frakklandi þar sem hann var með 13 mörk í 27 leikjum tímabilið 2019-20.
Ítalski boltinn Mest lesið Bakgarðshlaupið í beinni útsendingu Sport Stórfurðuleg atburðarás þegar markvörður KR sá rautt Íslenski boltinn Kostar 600 þúsund að keppa með U18: „Þetta eru þakkirnar fyrir að spila fyrir landsliðið“ Handbolti Aðeins einum leik frá ótrúlegu meti Fótbolti Miðvarðamartröð Man United heldur áfram Enski boltinn Albert Guðmunds: Verður að hafa sjálfstraust og trúa á sjálfan þig Fótbolti Lýsti Haaland sem „ofdekruðum krakka“ Enski boltinn Vann mótið fárveikur og fór á sjúkrahús Sport Freyr nærri kraftaverki: „Þetta var fokking taugatrekkjandi“ Fótbolti „Veit ekki hvað Elmar þarf að gera til að komast í landsliðið“ Handbolti Fleiri fréttir Freyr nærri kraftaverki: „Þetta var fokking taugatrekkjandi“ Bæjarar skoði að ráða ten Hag Öll mörkin í gær: Sjáðu hvernig HK vann meistarana og kóngurinn komst á blað Lopetegui tekur við West Ham Lýsti Haaland sem „ofdekruðum krakka“ Stórfurðuleg atburðarás þegar markvörður KR sá rautt Aðeins einum leik frá ótrúlegu meti Albert Guðmunds: Verður að hafa sjálfstraust og trúa á sjálfan þig Miðvarðamartröð Man United heldur áfram „Ég vona innilega að ég sé ekki að væla of mikið“ „Ólíkir okkur að mörgu leyti“ Uppgjör: HK - Víkingur 3-1 | Botnliðið lagði meistarana og Arnar sá rautt Uppgjör og viðtöl: Fram - Fylkir 2-1 | Heimamenn upp í þriðja sætið „Eftir það fannst mér við bara slökkva ljósin og fara heim“ „Hef aldrei séð markmann fá gult spjald fyrir leiktöf eftir átta sek” „Við missum okkur ekkert yfir þessum sigri“ Lærisveinar Freys felldu Guðlaug Victor og Alfreð Finnboga „Komum sterkt til baka og kláruðum þetta“ „Er með góða tilfinningu eftir að hafa komið til baka“ Uppgjörið: Stjarnan - ÍA 4-1 | Þriðji sigur Stjörnunnar í röð Sverrir Ingi lagði upp sigumarkið sem galopnaði toppbaráttuna Samherjar Alberts náðu í stig í Mílanó Uppgjör og viðtöl: KA-KR 1-1 | Smit stal fyrirsögnunum enn og aftur Markasúpa þegar Liverpool komst á sigurbraut Hilmir Rafn kominn á blað í Noregi Sjáðu frábært mark hjá Arnóri Ingva sem dugði þó skammt Langt hlé gert á leik hjá Guðrúnu vegna mikillar rigningar Jón Dagur lagði upp mark Birkir skoraði fyrir Brescia Katla tryggði Kristianstad sigur Sjá meira