Starfsmaður hægrijaðarflokks handtekinn fyrir njósnir fyrir Kína Kjartan Kjartansson skrifar 23. apríl 2024 08:46 Sá handtekni vann fyrir Maximilian Krah, leiðtoga Valkosts fyrir Þýskaland á Evrópuþinginu. Vísir/EPA Þýska lögreglan handtók aðstoðarmann Evrópuþingmanns hægrijaðarflokksins Valkosts fyrir Þýskaland (AfD) sem er grunaður um að njósna fyrir kínversk stjórnvöld. Málið er sagt sérstaklega alvarlegt.
Aðstoðarmaðurinn hefur aðeins verið nefndur Jian G. Hann vinnur fyrir Maximilian Krah, leiðtoga AfD, sem er í framboði fyrir Evrópuþingskosningar sem fara fram í júní. Maðurinn er sakaður um að veita kínversku leyniþjónustunni upplýsingar um samningaviðræður og ákvarðanir Evrópuþingsins og að njósna um kínverska stjórnarandstæðinga í Þýskalandi. „Hann er sakaður um sérstaklega alvarlegt brot um að vinna fyrir erlenda leyniþjónustu,“ sögðu alríkissaksóknarar í yfirlýsingu. Sá grunaði var handtekinn í Dresden í gær. Húsleit var gerð í íbúð hans þar og í Brussel. Sama dag voru þrír aðrir þýskir ríkisborgarar handteknir og sakaðir um að því að koma tækni sem gæti verið notuð í hernaðarlegum tilgangi í hendur kínverskra stjórnvalda. Talsmaður AfD lýsti fréttunum sem „óhugnanlegum“ við Reuters-fréttastofuna. Flokkurinn hafi ekki frekari upplýsingar um málið. Nancy Faeser, innanríkisráðherra Þýskalands, sagði málið háalvarlegt og ef rétt reyndist að einhver hafi njósnað um Evrópuþingið fyrir Kína væri það „árás innan frá á evrópsk lýðræði“, að því er kemur fram í frétt breska ríkisútvarpsins BBC. Kínverska utanríkisráðuneytið vísaði fregnunum á bug og sagði þær tilraun til þess að koma óorði á Kína og halda landinu niðri.
Þýskaland Kína Evrópusambandið Tengdar fréttir Útsendarar Rússa sakaðir um skipulagningu árása í Þýskalandi Lögregluþjónar í Bæjarlandi í Þýskalandi hafa handtekið tvo menn sem grunaðir eru um njósnir fyrir yfirvöld í Rússlandi. Þeir eru meðal annars sakaðir um að skipuleggja skemmdarverk og fyrir að ætla að framleiða sprengiefni, með því markmiði að skaða hernaðaraðstoð Þjóðverja til Úkraínu. 18. apríl 2024 14:27 Njósnaskandall skekur Austurríki Yfirvöld í Austurríki standa frammi fyrir umfangsmiklum njósnaskandal sem bendir til þess að leyniþjónustur Rússlands séu umsvifamiklar í ríkinu og varpar ljósi á slæmt eftirlit hins opinbera. Háttsettur fyrrverandi njósnari í Austurríki var handtekinn á dögunum. 8. apríl 2024 16:59 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Bergvin dæmdur fyrir að áreita þrjár konur Innlent Segir alvarlegt hvernig Katrín tjáði sig um Persónuvernd Innlent Of þung en annars hraust á Ozempic Innlent Ekki megrunarlyf heldur lyf við offitu Innlent Gular viðvaranir á Suðurlandi, Suðausturlandi og Faxaflóa á morgun Innlent Skuldirnar bíði þegar frelsið taki við Innlent Slasaður eftir hestaslys í Ölfusi Innlent Segja grafalvarlegt mál að fresta atkvæðagreiðslu Innlent Myndband sýnir árás Diddy Erlent Fleiri fréttir Gantz hótar að segja af sér vegna ósættis við Netanjahú Ástand Fico enn alvarlegt Býst við aukinni sókn Rússa Beitti neitunarvaldi gagnvart umdeildum fjölmiðlalögum Myndband sýnir árás Diddy Færeyingar felldu frumvarp um fóstureyðingar Þrjátíu ár fyrir árásina á mann þingforsetans Segir Rússa ekki hafa í hyggju að taka Kharkív Viðtal á Stöð 2 kveikir upp í færeyskum stjórnmálum Reyndi að kveikja í bænahúsi gyðinga og var skotinn til bana Spánverjar neita skipi með vopn innanborðs um að leggja að bryggju „Einfari“ ákærður fyrir tilræðið við Fico Hver er Robert Fico? Neyðarástandi lýst yfir á Nýju-Kaledóníu eftir miklar óeirðir Ágreiningur innan stjórnarinnar brýst upp á yfirborðið Hægriflokkar ná saman um myndun ríkisstjórnar Samið um kappræður í júní og september Fico ekki talinn í lífshættu Þróun ES-30 flugvélarinnar flutt frá Svíþjóð til Kaliforníu Þetta er vitað um árásarmanninn Biden skorar á Trump Forsætisráðherra Slóvakíu í lífshættu eftir skotárás Þverpólitískar tillögur um viðbrögð vegna gervigreindar FIFA byrjað að vinda ofan af umbótum eftir spillingarhneykslið Fulltrúar Talíbana á ráðstefnu í Ósló Fyrsta opinbera málverkið af konunginum Karli III afhjúpað í gær Gróðureldar ógna olíuvinnslumiðstöð í Kanada Gríðarleg leit gerð að mönnum sem frelsuðu fanga í Frakklandi Skriðdrekar Ísraelshers komnir inn í íbúðahverfi í Rafah Framámaður AfD sektaður fyrir að nota slagorð nasista Sjá meira
Útsendarar Rússa sakaðir um skipulagningu árása í Þýskalandi Lögregluþjónar í Bæjarlandi í Þýskalandi hafa handtekið tvo menn sem grunaðir eru um njósnir fyrir yfirvöld í Rússlandi. Þeir eru meðal annars sakaðir um að skipuleggja skemmdarverk og fyrir að ætla að framleiða sprengiefni, með því markmiði að skaða hernaðaraðstoð Þjóðverja til Úkraínu. 18. apríl 2024 14:27
Njósnaskandall skekur Austurríki Yfirvöld í Austurríki standa frammi fyrir umfangsmiklum njósnaskandal sem bendir til þess að leyniþjónustur Rússlands séu umsvifamiklar í ríkinu og varpar ljósi á slæmt eftirlit hins opinbera. Háttsettur fyrrverandi njósnari í Austurríki var handtekinn á dögunum. 8. apríl 2024 16:59