Enn einu sinni er örlagastund runnin upp í baráttu þjóðarinnar við vágestinn COVID-19. Hátt í 80 innanlandssmit greindust í gær, meirihluti smitaðra fullbólusettur.
Búist er við samkomutakmörkunum á næstunni og útihátíðahald um verslunarmannahelgina er í hættu.
Upplýsingafundur Almannavarna vegna COVID-19 hófst kl. 11:03 og hér að neðan koma helstu tíðindi frá fundinum:
„Við vitum alveg hvað það er sem þarf að gera,“ sagði Víðir Reynisson í stuttu upphafsspjalli og síðan tók Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir við.
Frá mánaðamótum hafa 236 greinst innanlands með Covid, þar af 213 síðustu vikuna. Fram kemur í máli Þórólfs að öll smitin eru af Delta-afbrigðinu sem er meira smitandi en önnur afbrigði og veldur líklega meiri veikindum. Nýjar upplýsingar erlendis frá benda til þess að bóluefni virki síður gegn Delta-afbrigðinu en fyrri afbrigðum veirunnar.
Fullbólusett fólk á öllum aldri, en einkum á aldrinum 20-40 ára, hefur smitast undanfarið.
Þórólfur segir ljóst að eftir að slakað var á takmörkunum á landamærunum hafi margir komið inn í landið með veiruna. Veiran hafi náð að dreifa sér ótrúlega hratt innanlands þrátt fyrir útbreidda bólusetningu, sem bendir til þess að bóluefni virki síður gegn Delta-afbrigðinu. Ekki er ljóst núna hvort smit muni leiða til alvarlegra veikinda.
Þann 26. júlí þurfa allir að framvísa vottorði um neikvæða niðurstöðu úr Covid-skimun við komuna til landsins.
Þórólfur sendir frá sér minnisblað til heilbrigðisráðherra með tillögum að nýjum sóttvarnatakmörkunum í dag. Hann segist ekki tilbúinn að upplýsa um efni minnisblaðsins á þessari stundu en bendir á að við vitum hvað til þarf í baráttunni við faraldurinn.
Þórólfur segir að ítrekað hafi verið bent á að ný afbrigði veirunnar geti breytt faraldrinum og viðbrögðum við honum. Mikilvægt sé að láta ekki hugfallast og samstaða þjóðarinnar sé eftir sem áður besta vopnið í baráttunni.
Í svör við spurningum blaðamanna kom fram hjá Þórólfi að alvarleg veikindi væru yfirvofandi hjá einhverjum sem eru í eftirliti á Covid-göngudeildinni. Þórólfur segir skynsamlegra að grípa harkalega inn í núna með aðgerðum en að láta faraldurinn ganga yfir okkur og grípa inn í eftir að spítalainnlögnum hefur fjölgað.
Þórólfur segir að væntanlegar aðgerðir séu í raun og veru ekkert frábrugðnar fyrri aðgerðum. Reynslan frá fyrri bylgjum verður nýtt.
Aðspurður um hvort til greina kæmi að skima sérstaklega á Þjóðhátíð í Eyjum sagði Þórólfur að það væri gífurlega mikið fyrirtæki og hann sæi ekki almennilega fyrir sér að það gæti gengið. Hann útilokaði það ekki og sagði málið í skoðun. „Þetta er mjög dýrt og ég er ekki viss um að það takist almennilega að útfæra þetta,“ sagði Þórólfur. Víðir benti á að útihátíðir væru víðar en í Eyjum og þetta þýddi að skima þyrfti tugi þúsunda manna sem væri gífurlega mikið verk.