Bíða eftir nýjum bílum fyrir strandaglópana Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 26. september 2022 10:21 Fjölmargir óökuhæfir bílar úti í vegakanti á þjóðveginum nærri Möðrudal. Helga Björg Eiríksdóttir Rúmlega sjötíu ferðamenn sem fengu skjól hjá Ferðaþjónustunni Fjalladýrð í Möðrudal bíða þess nú að fá nýja bíla senda frá bílaleigum sínum. Vertinn í Fjalladýrð segir fjöldann allan af bílum á svæðinu með ekki einni heilli rúðu.
Ferðamennirnir komust hvorki lönd né strönd á þjóðveginum um Möðrudalsöræfi í gær. Björgunarsveitir komu fólki til aðstoðar og sömuleiðis Vilhjálmur Vernharðsson, staðarhaldari í Fjalladýrð. Hann segir gott hljóð í ferðalöngunum sem gistu í Fjalladýrð í nótt. Fólk hafi verið í áfalli í gær eftir óveðrið en bjartsýni svífi yfir vötnum hjá fólkinu í morgunsárið. Fólk hafi snætt morgunverð á hlaðborði hússins. Vonir standi til að bílaleigurnar sendi nýja bíla á viðskiptavini sína. „Bílaleigurnar eru misjafnar. En ég held að flestar séu að koma með nýja bíla fyrir fólkið.“ Héldu upp á áramótin Þá stendur annað verkefni fyrir höndum. Að fjarlægja alla ónýtu bílana. Hann sjálfur komi eflaust að því verkefni en fleiri aðilar á svæðinu taki að sér slík verkefni. Því verki verði líkast til lokið á morgun. Bílar í misgóðu ástandi við Beitarhúsið.Helga Björg Eiríksdóttir „Margir bílar eru ónýtir og óaksturshæfir. Fjöldi bíla er ekki með einni heilli rúðu í,“ segir Vilhjálmur. Hann telur ólíklegt að ferðalangar hafi tapað einhverjum verðmætum í óveðrinu. Reynt hafi verið eftir fremsta megni að tæma alla bílana við björgunarstörf í gær. „Það voru allir glaðir að komast inn í hlýju og fá að borða,“ segir Vilhjálmur. Fólk frá öllum heimshornum hafi gist í Fjalladýrð í nótt. Þeirra á meðal fimm Ísraelar sem héldu upp á nýtt ár í gær. Aðspurður hvernig þau hátíðahöld hafi farið fram svarar Vilhjálmur: „Bara eins og þú heldur upp á áramótin. Það var étið, drukkið og haft gaman.“ Bílarnir fullir af sandi og snjó Vilhjálmur man tímana tvenna og sömuleiðis fjölmörg fyrri óveður. Hann segir þetta ekki það versta sem hann muni eftir. Hann muni þó ekki eftir slíkum fjölda ferðamanna sem hafi lent í ógöngum. Ástand bílanna er allt annað en gott.Helga Björg Eiríksdóttir „Spáin var ekki svona slæm. Þetta varð miklu verra en reiknað hafði verið með,“ segir Vilhjálmur. Hann hafði verið á ferðinni í morgun og skoðað skemmdu bílana. „Bílarnir eru hálffullir af snjó og sandi. Svo er lakkið farið af þessum bíl að stórum hluta,“ segir Vilhjálmur. Hægt væri að lýsa veðrinu í gær frekar sem grjótfoki en sandfoki. Að neðan má sjá fleiri myndir sem Helga Björg Eiríksdóttir, eigandi harðfiskverkunarinnar Sporð á Borgarfirði eystra, tók í morgun. Helga Björg Eiríksdóttir Helga Björg Eiríksdóttir Helga Björg Eiríksdóttir Helga Björg Eiríksdóttir
Ferðamennska á Íslandi Veður Samgöngur Múlaþing Tengdar fréttir Róleg nótt hjá björgunarsveitunum miðað við nóttina þar á undan Björgunarsveitir sinntu einhverjum minniháttar verkefnum í nótt en þó ekkert í samanburði við aðfaranótt sunnudags. Björgun ferðamanna í Möðrudalsöræfum, vatnstjón á Akureyri og foktjón á Austfjörðum voru meðal helstu verkefna. 26. september 2022 08:33 „Þetta var eins og það gerist verst“ Búið er að koma öllum þeim ferðamönnum sem fastir voru á Möðrudalsöræfum í öruggt skjól. Rúmlega sjötíu erlendir ferðamenn leituðu skjóls í Fjalladýrð í Möðrudal. Staðarhaldarinn þar segir að veðrið á svæðinu hafi verið mun verra en veðurspár sögðu til um. 25. september 2022 21:33 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Þurftu að farga 30 þúsund eintökum vegna forsetaframboðs Innlent Vitni gefur ekki upp nafn vegna ótta við hefndaraðgerðir Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Sáu ekki andlit huldumanns sem þeir telja vera Pétur Jökul Innlent Megrunarlyfin nýjasta vopnið gegn hjartasjúkdómum? Erlent „Heill vinnustaður er dreginn sundur og saman í háði“ Innlent Umgengni og viðhorf til fatagáma hafi farið hríðversnandi Innlent Losnar af réttargeðdeild eftir allt saman Erlent Fjórum nígerískum ríkisborgurum flogið til Frankfurt Innlent Nær einróma ánægja en spurningum ósvarað um þjóðleikhússtjóra Innlent Fleiri fréttir Sóttu veikan mann á skemmtiferðaskip umkringt hafís Settur forstjóri skipaður forstjóri „Heill vinnustaður er dreginn sundur og saman í háði“ Breyttar forsendur kalli á nýjan unglingaskóla í Laugardal Ævintýralandið Ísland séð úr háloftunum Dæmdir fyrir ofbeldishrinu Hefur áhyggjur af nýfæddum lömbum á Höfða Uppflettingar í sjúkraskrá: Segir málinu alls ekki lokið Ítrekar afsökunarbeiðni til vöggustofubarna og fjölskyldna þeirra Helmingi dræmari kjörsókn nú en í síðustu forsetakosningum Fulltrúar Stígamóta reyna að tryggja öryggi kvennanna í Nígeríu Heimsótti Julian Assange í Belmarsh-öryggisfangelsið Brottvísun hælisleitenda og dræm þátttaka í utankjörfundi Bein útsending: Má ég taka þátt... í lífinu? Vitni gefur ekki upp nafn vegna ótta við hefndaraðgerðir Beint streymi: Uppfinningar og einkaleyfi Landris heldur áfram á sama hraða Þurftu að farga 30 þúsund eintökum vegna forsetaframboðs Friðlýsir hluta Fjaðrárgljúfurs Fjórum nígerískum ríkisborgurum flogið til Frankfurt Nær einróma ánægja en spurningum ósvarað um þjóðleikhússtjóra Fækka þeim tilvikum þar sem skrifa þarf tilvísanir fyrir börn Stefnt að því að ljúka samningaviðræðum um Ölfusárbrú nú í maí Umgengni og viðhorf til fatagáma hafi farið hríðversnandi „Erum hér í kvöld svo þetta gerist ekki í þögn“ Heimafæðingum fjölgar og teljast eðlilegri en áður Sáu ekki andlit huldumanns sem þeir telja vera Pétur Jökul Næsta gos gæti hafist á hverri stundu „Kisuprestar“ á Snæfellsnesi Hið opinbera skuldi sér og öðrum mæðrum afsökunarbeiðni Sjá meira
Róleg nótt hjá björgunarsveitunum miðað við nóttina þar á undan Björgunarsveitir sinntu einhverjum minniháttar verkefnum í nótt en þó ekkert í samanburði við aðfaranótt sunnudags. Björgun ferðamanna í Möðrudalsöræfum, vatnstjón á Akureyri og foktjón á Austfjörðum voru meðal helstu verkefna. 26. september 2022 08:33
„Þetta var eins og það gerist verst“ Búið er að koma öllum þeim ferðamönnum sem fastir voru á Möðrudalsöræfum í öruggt skjól. Rúmlega sjötíu erlendir ferðamenn leituðu skjóls í Fjalladýrð í Möðrudal. Staðarhaldarinn þar segir að veðrið á svæðinu hafi verið mun verra en veðurspár sögðu til um. 25. september 2022 21:33