Í dag eru 25 ár liðin síðan mbl.is hóf göngu sína sem fréttavefur. Vefurinn varð strax meðal mest heimsóttu vefja landsins og mest lesni fréttavefur landsins, líkt og hann er í dag. Á þeim 25 árum sem liðin eru síðan mbl.is hóf göngu sína hafa verið birtar þar ríflega 1,2 milljónir frétta, eða sem nemur 134 fréttum að meðaltali á hverjum degi frá upphafi, en til gamans má geta að ef allar þessar fréttir væru prentaðar út myndi það jafnast á við um 3.400 bækur.
Heimsóknir á mbl.is voru sjö þúsund fyrsta sólarhringinn, en í síðustu viku voru daglegir innlendir gestir mbl.is að meðaltali ríflega 217.000. Um 84% landsmanna koma inn á vefinn í hverri viku og skoðar hver og einn gestur að meðaltali 74 síður á vefnum í hverri viku.
Fyrstu árin ólst mbl.is upp í skjóli systurmiðilsins Morgunblaðsins. Vefurinn var þá kallaður Fréttavefur Morgunblaðsins og naut þess trausts og sterku innviða sem byggðir höfðu verið um Morgunblaðið.
Í tilefni dagsins geta lesendur hér skoðað hvernig vefurinn leit út aldamótaárið 2000, en í desember það ár var meðal helstu frétta ákvörðun Hæstaréttar Bandaríkjanna í tengslum við nýliðnar forsetakosningar um hvort George Bush væri réttkjörinn forseti landsins. Þá ræddu þingmenn á Íslandi um díoxínmengun í fiskimjöli í Evrópu og kempan Karl Malone hafði verið útnefndur leikmaður mánaðarins í NBA.
Frá upphafi starfaði sérstök fréttadeild á mbl.is og þessi nýi miðill ruddi nýjar brautir í hinu rótgróna útgáfufélagi. Nú eru blaðið og vefurinn tvær aðskildar einingar þótt vissulega sé áfram gott og náið samstarf með miðlunum.
Ritstjórn mbl.is þakkar lesendum fyrir traustið og fagnar deginum með því að halda áfram að bjóða upp á nýjustu fréttir og annað áhugavert efni.