Öll spjót beinast nú að Meghan hertogaynju en viðtal við hana og Harry Bretaprins fer í loftið í Bandaríkjunum á sunnudaginn. Vinir hertogaynjunnar keppast við að tala fallega um Meghan á meðan hún hefur verið sökuð um að leggja starfsfólk í einelti.
Lindsay Roth vinkona Meghan úr háskóla fór fallegum orðum um vinkonu sína á Instagram. Hún sagði góðmennsku vera einkennisorð Meghan en hún hefur þekkt hertogaynjuna í 22 ár og fylgst með henni. Hún segir Meghan gera allt sem í hennar valdi stendur til þess að hjálpa fólki. „Hún er fyndin. Svo fyndin að maður skellir upp úr. Og klár. Hún er meira en bara forsíðufrétt,“ skrifar Roth. Hún segir vinkonu sína hafa verið þessi manneskja þegar hún var í háskóla, þegar hún var að reyna fyrir sér sem leikkona, þegar hún lék í Suits, þegar hún hitti Harry fyrst og eftir að hún gekk í konungsfjölskylduna.
Leikkonan Janina Gavankar tísti um Meghan og segist hafa þekkt hana í 17 ár. Hún segir Meghan vera góða, sterka og opna en ekki konu sem leggi fólk í einelti.
I have known Meghan for 17 years.
— janina gavankar (@Janina) March 4, 2021
Here’s what she is: kind, strong, open. Here’s what she’s not: “a bully”.
ANY of us who know her, feel the same thing from her broken silence: Relief.
The truth shall set you free.
Einn af handritshöfundum Suits, Jon Cowan, tjáði sig um Meghan á Twitter. Hann velti fyrir sér þeim möguleika að Meghan hafi verið góð manneskja í erfiðum heimi. „Ég sá hlýja, góða, umhyggjusama manneskju þegar ég vann með henni í þrjú ár áður en hún varð hertogaynja. Ég veit ekkert um núverandi stöðu hennar en hún fær að njóta vafans í mínum bókum.“
It’s also possible the Duchess of Sussex is a good person thrust into an unimaginable world. Having spent 3 years working with her in her pre-Duchess days, I saw a warm, kind, caring person. I know nothing of her current situation but she gets the benefit of the doubt in my book. https://t.co/7JD3ig6tws
— Jon Cowan (@JonCowan2015) March 3, 2021