Lettneska landsliðskonan áfram í Eyjum

Eliza Spruntule og Andri Ólafsson, þjálfari ÍBV.
Eliza Spruntule og Andri Ólafsson, þjálfari ÍBV. Ljósmynd/ÍBV

Lettneska landsliðskonan Eliza Spruntule hefur framlengt samning sinn við ÍBV um eitt ár og verður því áfram innan herbúða liðsins á Íslandsmótinu í knattspyrnu næsta sumar.

Spruntule spilaði 12 deildarleiki fyrir ÍBV á nýliðnu keppnistímabili en liðið hafnaði í 8. sæti deildarinnar með 17 stig að loknum 16 leikjum. Ásamt því að spila með meistaraflokki þjálfar hún einnig yngri flokka ÍBV.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert