Mynd: Bára Huld Beck Piratar312312321.jpg
Mynd: Bára Huld Beck

Stórsókn Pírata virðist ætla að halda meirihlutanum á floti

Sósíalistaflokkurinn bætir við sig einum manni í borgarstjórn samkvæmt nýjustu kosningaspá Kjarnans og Dr. Baldurs Héðinssonar. Sjálfstæðisflokkur tapar þremur mönnum, Viðreisn og Samfylkingin einum og Miðflokkurinn þurrkast út. Meirihlutinn heldur tólf fulltrúum þar sem Píratar bæta við sig tveimur, en 78 prósent líkur eru á því að meirihlutinn haldi. Framsókn hirðir þrjá fulltrúa og yrði líklega í lykilstöðu ef svo færi að meirihlutinn héldi ekki velli í kosningunum á laugardag.

Meiri­hlut­inn í borg­ar­stjórn Reykja­víkur heldur velli með óbreyttan fjölda borg­ar­full­trúa, en bæði Sam­fylk­ingin og Við­reisn missa einn mann frá því sem nú er, á meðan Píratar bæta við sig tveimur full­trú­um, sam­kvæmt nýj­ustu kosn­inga­spá Kjarn­ans og Dr. Bald­urs Héð­ins­son­ar.

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn sér enn fram á afhroð og mun sam­kvæmt nið­ur­stöðu kosn­inga­spár­innar fá 19,1 pró­sent fylgi, sem yrði versta nið­ur­staða flokks­ins í borg­ar­stjórn­ar­kosn­ingum frá upp­hafi, en flokk­ur­inn fékk 30,8 pró­sent atkvæða í borg­inni árið 2018. Sam­fylk­ingin yrði nú stærsti flokk­ur­inn með hart­nær fjórð­ungs­fylgi, sam­kvæmt kosn­inga­spánni.

Sam­hliða kosn­­inga­­spánni er nú keyrð sæta­­spá. Hún er fram­­­kvæmd þannig að keyrðar eru 100 þús­und sýnd­­­ar­­­kosn­­­ingar miðað við fylgi flokka í kosn­­­inga­­­spánni. Í hverri þeirra er úthlutað 23 borg­­­ar­­­full­­­trúum og þar sem sýnd­­­ar­­­kosn­­­ing­­­arnar eru allar með inn­­­­­byggða óvissu þá getur fylgi flokka í hverri ein­stakri sýnd­­­ar­­­kosn­­­ingu stundum verið hærra og stundum lægra, þótt með­­­al­­­tal kosn­­­ing­anna allra sé það sama og kom fram í kosn­­­inga­­­spánni. Hægt er að sjá sæta­­spánna hér að neð­an:

Borgarstjórn Reykjavíkur
23 borgarfulltrúar kjörnir
FlokkarFramboðslistar
  • >99%
    Dagur B. Eggertsson
  • >99%
    Heiða Björg Hilmisdóttir
  • >99%
    Skúli Þór Helgason
  • 99%
    Sabine Leskopf
  • 92%
    Hjálmar Sveinsson
  • 68%
    Guðný Maja Riba
  • 33%
    Sara Björg Sigurðardóttir
  • >99%
    Hildur Björnsdóttir
  • >99%
    Ragnhildur Alda María Vilhjálmsdóttir
  • >99%
    Kjartan Magnússon
  • 92%
    Marta Guðjónsdóttir
  • 70%
    Björn Gíslason
  • 35%
    Friðjón R. Friðjónsson
  • >99%
    Dóra Björt Guðjónsdóttir
  • 97%
    Alexandra Briem
  • 83%
    Magnús Norðdahl
  • 47%
    Kristinn Jón Ólafsson
  • >99%
    Einar Þorsteinsson
  • 98%
    Árelía Eydís Guð­munds­dótt­ir
  • 86%
    Magnea Gná Jóhanns­dótt­ir
  • 51%
    Aðal­steinn Haukur Sverr­is­son
  • 17%
    Þorvaldur Daníelsson
  • 87%
    Sanna Magdalena Mörtudóttir
  • 47%
    Trausti Breiðfjörð Magnússon
  • 11%
    Andrea Jóhanna Helgadóttir
  • 82%
    Þór­dís Lóa Þór­halls­dótt­ir
  • 39%
    Pawel Bartoszek
  • 67%
    Líf Magneudóttir
  • 22%
    Stefán Pálsson
  • 69%
    Kolbrún Baldursdóttir
  • 18%
    Helga Þórðardóttir
  • 36%
    Ómar Már Jónsson

Áfram verða átta flokkar í borg­ar­stjórn Reykja­vík­ur, sam­kvæmt þessum nið­ur­stöð­um, en Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn kæmi inn af krafti með þrjá full­trúa á meðan að fylgi Mið­flokks­ins dugar ekki til þess að fá mann kjör­inn.

Sós­í­alistar verða með tvo menn sam­kvæmt þess­ari nýj­ustu kosn­inga­spá, odd­vit­ann Sönnu Magda­lenu Mörtu­dóttur og Trausta Breið­fjörð Magn­ús­son sem situr í öðru sæti list­ans. Frá nið­ur­stöðum síð­ustu kosn­inga­spár hefur Trausti ýtt Pawel Bar­toszek, öðrum manni á lista Við­reisn­ar, út úr borg­ar­stjórn.

Sam­fylk­ing og Píratar með 10 af 23 full­trúum

Sam­fylk­ingin og Píratar yrðu sam­an­lagt með tíu borg­ar­full­trúa af 23, en sam­an­lagt fylgi flokk­anna tveggja er 40,3 pró­sent sam­kvæmt kosn­inga­spánni. Það má því segja að þessir flokk­ar, sem eiga mál­efna­lega sam­leið um margt, hafi öll tromp á hendi er kemur að myndun nýs meiri­hluta.

Dagur B. Egg­erts­son borg­ar­stjóri og odd­viti Sam­fylk­ing­ar­innar hefur sagt á und­an­förnum dögum að hans fyrsti val­kostur eftir kosn­ingar verði að halda núver­andi meiri­hluta­sam­starfi við Pírata, Vinstri græn og Við­reisn áfram, ef meiri­hlut­inn held­ur.

Aðrir odd­vitar meiri­hluta­flokk­anna hafa einnig gefið það til kynna í vik­unni að fyrsti val­kostur þeirra yrði að hið minnsta setj­ast niður með núver­andi meiri­hluta og ræða áfram­hald­andi sam­starf, að því gefnu að meiri­hlut­inn haldi velli.

Niðurstöður kosningaspárinnar 12. maí 2022
Kosningaspáin er unnin í aðdraganda borgarstjórnarkosninga 2022.

Píratar eru sam­kvæmt kosn­inga­spánni þriðji stærsti flokk­ur­inn í borg­inni með 15,6 pró­sent fylgi og myndu þá bæta veru­lega við sig frá síð­ustu kosn­ing­um, en þá fékk flokk­ur­inn 7,7 pró­sent greiddra atkvæða.

Ef kosn­inga­spáin rætt­ist væri óhætt að tala um Pírata sem sig­ur­veg­ara kosn­ing­anna, ásamt Fram­sókn­ar­flokknum sem hefur risið upp í borg­inni með Einar Þor­steins­son í odd­vita­sæt­inu. Fram­sókn fær 11,9 pró­sent atkvæða sam­kvæmt kosn­inga­spánni en fékk ein­ungis 3,2 pró­sent í borg­ar­stjórn­ar­kosn­ing­unum fyrir fjórum árum, alls 1.870 atkvæði.

Við­reisn dalar ögn frá síð­ustu kosn­inga­spá og mælist nú með 7,3 pró­sent og er Pawel Bar­toszek borg­ar­full­trúi á mörkum þess að ná inn í borg­ar­stjórn eins og mál standa. Sam­kvæmt kosn­inga­spánni mælist hann ekki inni, heldur tapar sæti sínu til ann­ars manns Sós­í­alista­flokks­ins, sem áður seg­ir.

Vinstri græn eru í ves­eni í Reykja­vík og mæl­ast nú með 5 pró­sent fylgi, sem myndi duga til þess að halda Líf Magneu­dóttur odd­vita flokks­ins inni í borg­ar­stjórn en flokk­ur­inn er langt frá því að ná öðrum manni inn og fylgið er á nið­ur­leið í þess­ari nýj­ustu kosn­inga­spá.

Flokkur fólks­ins siglir nokkuð lygnan sjó og er með 4,7 pró­senta fylgi, sem er aðeins meira en kom upp úr kjör­köss­unum í borg­inni árið 2018 og myndi tryggja Kol­brúnu Bald­urs­dóttur áfram­hald­andi veru í borg­ar­stjórn. Eitt­hvað sér­stakt virð­ist þó þurfa að koma til svo Mið­flokk­ur­inn nái manni í borg­ar­stjórn, en fylgi flokks­ins mælist 2,4 pró­sent í kosn­inga­spánni.

Sam­kvæmt síð­ustu kosn­inga­spá sögð­ust sam­an­lagt 0,2 pró­sent ætla að kjósa ýmist Reykja­vík, bestu borg­ina eða Ábyrga fram­tíð, en það hlut­fall eykst nokkuð nú og sam­kvæmt kosn­inga­spánni hyggj­ast 1,7 pró­sent kjós­enda ljá þeim fram­boðum atkvæði sitt.

Engin sjá­an­leg leið fyrir Sjálf­stæð­is­flokk í meiri­hluta

Kosn­inga­spáin reiknar líka út lík­urnar á meiri­hlutum í borg­inni. Lík­­­­­urnar eru fengnar með því að fram­­­kvæma 100 þús­und sýnd­­­ar­­­kosn­­­ing­­­ar. Í hverri sýnd­­­ar­­­kosn­­­ingu er vegið með­­­al­­­tal þeirra skoð­ana­kann­ana sem kosn­­­inga­­­spáin nær yfir hverju sinni lík­­­­­leg­asta nið­­­ur­­­staðan en sýnd­­­ar­n­ið­­­ur­­­staðan getur verið hærri eða lægri en þetta með­­­al­­­tal og hversu mikið byggir á sög­u­­­legu frá­­­viki skoð­ana­kann­ana frá úrslitum kosn­­­inga.

Hildur Björnsdóttir virðist ólíklega geta leitt Sjálfstæðisflokkinn inn í meirihlutasamstarf í borginni, samkvæmt kosningaspánni.
Mynd: Bára Huld Beck

Lík­urnar á því að sitj­andi meiri­hluti haldi mæl­ast nú 78 pró­sent og hafa þær líkur farið vax­andi eftir því sem nær dregur kosn­ing­um, en til sam­an­burðar voru lík­urnar á því að meiri­hlut­inn héldi 47 pró­sent um miðjan apr­íl. 

Athygl­is­vert er að staðan er nú sú að líkur á að hægt verði að mynda þriggja flokka meiri­hluta Sam­fylk­ing­ar, Pírata og Fram­sókn­ar­flokks eru meiri en að núver­andi meiri­hluti haldi, þó ekki muni miklu, en 83 pró­sent líkur eru á því að slíkur meiri­hluti, sem hefði 13 borg­ar­full­trúa, gæti orðið til.

Nú þegar tveir dagar eru til kosn­inga virð­ast afar fáir mögu­leikar í stöð­unni fyrir Sjálf­stæð­is­flokk­inn til valda í borg­inni. Um miðjan apríl benti kosn­inga­spáin til þess að um helm­ings­líkur væru á því að flokk­ur­inn gæti leitt meiri­hluta í sam­floti við Fram­sókn, Við­reisn og Flokk fólks­ins, en í dag mæl­ast lík­urnar á því ein­ungis 14 pró­sent.

Það eru minni líkur en kosn­inga­spáin gefur tveggja flokkar meiri­hluta Sam­fylk­ingar og Pírata, en lík­urnar á því að þeir tveir flokkar bæti hvor um sig við sig einum manni frá núver­andi stöðu og nái að mynda tveggja flokka meiri­hluta mæl­ast nú 16 pró­sent.

Þróun fylgis framboða í kosningaspánni
Kosningaspáin er unnin í aðdraganda borgarstjórnarkosninga 2022.
B C D F M P S V Aðrir

Kann­­­anir í nýj­­­ustu kosn­­­inga­­­spá fyrir borg­­­ar­­­stjórn­­­­­ar­­­kosn­­­ingar 14. maí:

  • Skoð­ana­könnun Pró­sent 4. – 9. maí (48,7%)
  • Skoð­ana­könnun Mask­ínu 6. – 11. maí (51,3%)

Hvað er kosn­­­­­inga­­­­­spá­in?

Fyrir hverjar kosn­­­­ingar um allan heim birta fjöl­miðlar gríð­­­­ar­­­­legt magn af upp­­­­lýs­ing­­­­um. Þessar upp­­­­lýs­ingar eru oftar en ekki töl­fræð­i­­­­leg­­­­ar, byggðar á skoð­ana­könn­unum þar sem fólk hefur verið spurt hvernig það upp­­­­lifir stjórn­­­­­­­málin og hvað það getur ímyndað sér að kjósa. Stjórn­­­­­­­mála­fræð­ingar og fjöl­miðlar kepp­­­­ast svo við að túlka nið­­­­ur­­­­stöð­­­­urnar og veita almenn­ingi enn meiri upp­­­­lýs­ingar um stöð­una í heimi stjórn­­­­­­­mál­anna.

Allar þessar kann­­­anir og allar mög­u­­­legar túlk­­­anir á nið­­­ur­­­stöðum þeirra kunna að vera rugl­andi fyrir hinn almenna neyt­anda. Einn kannar skoð­­­anir fólks yfir ákveðið tíma­bil og annar kannar sömu skoð­­­anir á öðrum tíma og með öðrum aðferð­­­um. Hvor könn­unin er nákvæm­­­ari? Hverri skal treysta bet­­­ur? Svarið er oftar en ekki óljóst því vand­inn er að hinn almenni kjós­­­andi hefur ekki for­­­sendur til að meta áreið­an­­­leika hverrar könn­un­­­ar.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Meira eftir höfundinnArnar Þór Ingólfsson
Meira úr sama flokkiFréttaskýringar