Segir lið sitt aldrei hafa spilað jafn vel á Goodison Park Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 1. desember 2021 23:15 Klopp var mjög ánægður með sína menn í kvöld. Alex Livesey/Getty Images Jürgen Klopp, þjálfari Liverpool, var að vonum ánægður með 4-1 stórsigur sinna manna á Everton er liðin mættust í ensku úrvalsdeildinni í kvöld, þá sérstaklega eftir það sem gerðist á sama velli á síðustu leiktíð. „
Þetta var mjög góður leikur af okkar hálfu, þroskuð frammistaða, fullorðins frammistaða. Mun betri en undanfarin ár, sérstaklega á Goodison Park.“ „Síðar mun ég njóta þess að horfa á leikinn aftur því ég veit hvernig hann fór, það hjálpar til. Ég naut leiksins á köflum, naut þess sem ég sá þar sem þetta var okkar besta frammistaða til þessa á Goodison. Við tókum stór skref í þróun okkar sem lið, það er að við getum lagt tilfinningar til hliðar í svona mikilvægum leikjum.“ „Við vorum of opnir til baka þegar við gáfum þeim markið en það getur gerst þegar þú hefur mikla yfirburði. Við hefðum átt að vera komnir yfir áður en við brutum ísinn. Við komumst í 2-0 og voru ef til vill ekki nægilega öflugir fyrir framan markið, það gaf þeim líflínu. Ég er ekki að leitast eftir fullkomnun, ef þetta væri auðvelt þá gætu allir gert þetta. Strákarnir stóðu sig mjög vel,“ bætti sá þýski við. „Síðast þegar við spiluðum hér urðum við fyrir tveimur skelfilegum meiðslum. Við erum eins og fjölskylda og þegar einhver meiðist illa þá finnur þú fyrir því í búningsklefanum. Hann (Virgil Van Dijk) höndlaði meiðslin ótrúlega vel, sama á við um Thiago og allir strákarnir spiluðu vel í kvöld því þú finnur fyrir tilfinningunum þegar þú snýrð aftur,“ sagði Klopp en Van Dijk sleit krossband í hné í leik liðanna á síðustu leiktíð eftir glórulausa tæklingu Jordan Pickford, markvarðar Everton. Mo Salah var ekki sáttur eftir leik „Hann var reiður eftir leikinn, hann vildi skora þriðja markið sitt og fullkomna þrennuna. Ég tek svona mörkum ekki sem sjálfsögðum hlut, hann neyðir varnarmanninn til að gera mistök í öðru markinu sínu í kvöld. Mo setti Seamus Coleman undir pressu og vann boltann, þegar hann er í slíkri stöðu er líklegt að hann skori.“ „Við erum í góðu augnabliki og þetta var okkar langbesta frammistaða hér á Goodison síðan ég tók við. Fyrir leikinn sagði fólk mér að í nágrannaslögum skipti almennt form og gengi liðanna engu máli, ég gæti ekki verið meira ósammála,“ sagði Klopp að endingu.
Fótbolti Enski boltinn Mest lesið Usyk fyrstur til að vinna Fury Sport Var spáð falli en eru á leið í Meistaradeildina Fótbolti Tapið í gær þýðir að Kane missir af enn einum titlinum Fótbolti „Eins og að spila við landslið Þýskalands nasismans“ Sport Telur að Usyk hafi unnið vegna stríðsins í Úkraínu Sport Dagskráin í dag: Sófasunnudagur frá morgni til kvölds Sport Chelsea sækir undrabarn frá Brasilíu Fótbolti Klökkur Jóhann Berg beygði af í viðtali Enski boltinn Verstappen á ráspól og jafnaði 35 ára gamalt met Formúla 1 Ten Hag segir United í betri stöðu en fyrir ári Enski boltinn Fleiri fréttir Klopp segir að Liverpool verði í góðum höndum hjá Slot Ten Hag segir United í betri stöðu en fyrir ári Hayes kvaddi Chelsea með fimmta titlinum í röð og Dagný komin í hóp De Zerbi hættir hjá Brighton Foden valinn bestur á Englandi Arteta vonast eftir hjálp frá Moyes: „Vonandi gerist eitthvað dásamlegt“ Klökkur Jóhann Berg beygði af í viðtali Jóhann Berg fer frá Burnley í sumar Meiðslapésarnir fara frá Liverpool Slot staðfestir að hann taki við Liverpool Vill komast hjá því að afhenda City bikarinn Klopp enn fúll út í Maddison eftir að Liverpool missti af titlinum 2019 Leeds í úrslit um sæti í ensku úrvalsdeildinni Tímabilið búið hjá Ederson og City treystir á Ortega í síðustu tveimur leikjunum Chelsea sló spjaldametið í deildinni Hjólaði frá Mongólíu og grét af gleði þegar hann hitti hetjuna Umboðsmaður Olise dæmdur í sex mánaða bann Rashford reiður og reifst við áhorfanda fyrir leik Man. United sagði konunum ekki frá ákvörðuninni Rooney segir United losa sig við nær allan leikmannahópinn Gerir sér grein fyrir erfiðu tímabili: „Þið eruð bestu stuðningsmenn í heimi“ United lyfti sér upp að hlið Newcastle Evrópudraumurinn lifir góðu lífi eftir fjórða sigurinn í röð Everton boðið neyðarlán til að klára nýja heimavöllinn Félagaskiptaglugganum lokað fyrr en vanalega í sumar Stjóri Spurs ósáttur við viðhorfið: „Þetta er utan félagsins, innan þess, alls staðar“ Segir að Ortega hafi unnið titilinn fyrir City Ten Hag vísar gagnrýni Rooneys til föðurhúsanna United íhugar að ráða stjóra Ipswich sem eftirmann Ten Hags Telja að Bruno verði áfram á Old Trafford Sjá meira